Í dag fagna Íslendingar afmæli lýðveldis á Íslandi. Að þessu sinni hafa yfirvöld ákveðið að vegna hryðjuverkaógnar muni lögreglumenn vopnaðir skammbyssum ganga um götur, þjóðinni til verndar.

Í tilefni þessa gæfuspors gefur áhugamannafélagið Nasisti út nýtt vefrit undir heitinu Íslanska ríkið – vitræn gagnrýni er búin. Meðal efnis er þjóðrækilegur kveðskapur, lesendabréf frá áhyggjufullum þjóðernissinnum, kynning á nasista dagsins og margt fleira.

Ekki hafa fengist upplýsingar um það hverjir standa fyrir útgáfunni en um aðstandendur vefritsins segir:

[quote align=“center“ color=“#999999″]Sem einstaklingar aðhyllumst við ekki endilega nasisma,
þótt vinna okkar kunni að miða að framgangi hans.[/quote]

 

Meðal efnis sem þegar hefur verið birt er þetta ljóð, undir nafni Björns Bjarnasonar

Reykjavík gef mér öryggi

Reykjavík!
nóttin aumkvast yfir þínum rústum,
smáfuglar verða úti,
vitstola konur betla salt,
óvopnaðar löggur,
vorgígjustrengur þess
sem ekkert getur

Reykjavík!

Abba-labba-lá sígur úr
götum þínum babba-blóð,
abba-babba-löggu-ló
hvar eru þínar vélbyssur,
sem verja mig gegn sorg?

Reykjavík,
fuccboi og verndari,
gemmér að ríða
gemmér byssukúlur
í andlit ógnarinnar

Abba-labba-blabba-blö
ak-fjörtíuogsjö
ég vil að við elskumst
ég og þú Reykjavík
undir skugga þeirra

venjulegra manna
sem þora að bera
vopnin

Björn Bjarnason

Hér er hægt að lesa Íslanska ríkið.

 

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago