Aldeilis mögnuð ræðan hans Ögmundar við Bandaríska sendiráðið, sérstaklega þetta: „Hvað verður búið að drepa mörg börn í tíu fréttum?“ Ég má eiginlega til með að deila þessum skilaboðum sem ég sá á facebook, svona í tilefni dagsins.
Hvað verður búið að drepa mörg börn fyrir tíu fréttir?“ spurði innanríkisráðherra í „eldræðu“ sinni við bandaríska sendiráðið í dag, þar sem hann m.a „bar aðstæður í Palestínu saman við Ísland, til þess að setja þær hörmungaraðstæður sem þar ríkja í samhengi.“(visir.is)
Aðeins örfáum tímum eftir ræðuna var búið að hneppa þrjá flóttamenn, þar af einn frá Írak, í varðhald lögreglunnar á Suðurnesjum, og verða þeir sendir áleiðis til helvítis með fyrsta flugi í fyrramálið.
„Hvað verður búið að senda marga flóttamenn út í opinn dauðann fyrir mánaðarmót“ ??? er hægt að spyrja Ögmund á móti, til þess að setja hörmungaraðstæður, sem flóttamenn eru að flýja, í samhengi.
Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…
Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…
Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…
Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…
Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…
Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…