Mynd: mbl,is/Hanna
Ég heiti Guðmundur Karl Karlsson, ég er fæddur 1982 og ég gef kost á mér í prófkjöri Pírata í Suðvesturkjördæmi. Ég er tveggja barna faðir, Bryndís (9 ára) og Aron Daði (15 ára) og giftur ástinni í lífinu Rögnu Engilbertsdóttir (xx ára) og við eigum Labradorinn Atlas (7 mánaða). Við erum mjög hefðbundin samheld millistéttarfjölskylda. Við höfum sterka réttlætiskennd og vinnum saman að góðum málefnum.
Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta
Ég finn það í eigin bókhaldi þegar læknaþjónusta hækkar í verði og ég hef verið í þeirri stöðu að draga á langinn mikilvægar myndatökur og jafnvel aðgerð sem var nauðsynleg vegna kostnaðar. Ég greindist með fibrous dysplasia fyrir nokkrum árum. Þar sem vandamálið var í kinnholu og nálægt tönnunum þurfti ég að fara til kjálkaskurðlæknis. Einhverra hluta vegna var þetta flokkað sem tannlækning. En ef ekkert hefði verið gert hefði það á endanum geta orðið mitt banamein. Þessi aðgerð kostaði mig heil mánaðarlaun fyrir skatt.
Ég er í ágætri stöðu í dag, og ég hef nýtt mér þessa forréttindastöðu til að standa vörð um réttindi og öryggi þeirra sem minnst mega sín í samfélaginu. Ég vil tryggja öllum gjaldfrjálsa, öfluga heilbrigðisþjónustu. Ég fór í ekki ósvipaða aðgerð á Bretlandi, þar sem ég bjó í 7 ár, þar sem reynt var að sporna við því sem leit út eins og auka tönn í kinnholunni. Sú aðgerð kostaði mig ekki krónu. Ég komst líka að í þá aðgerð á aðeins örfáum dögum.
Það er mér að öllu leiti óskiljanlegt hvers vegna ný fjárlög gera ráð fyrir 44 milljörðum í afgang sem ætti nýta til að hluta að uppfæra úr sér gengin og biluð tæki á landsspítalanum sem eru með vikna, mánaða eða jafnvel áralanga bið fyrir fólk að komast í.
Virðum stjórnarskrá og mannréttindasáttmála
Ég vil að mínir stuðningsmenn viti að þegar ég tala um fólkið í landinu þá er ég að tala um alla án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti eins og stendur skýrum stöfum í Stjórnarskrá Íslands.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna:
2. gr.
1. Aðildarríki skulu virða og tryggja hverju barni innan lögsögu sinnar þau réttindi sem kveðið er á um í samningi þessum, án mismununar af nokkru tagi, án tillits til kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, uppruna með tilliti til þjóðernis, þjóðhátta eða félagslegrar stöðu, eigna, fötlunar, ætternis eða annarra aðstæðna þess eða foreldris þess eða lögráðamanns.2. Aðildarríki skulu gera allar viðeigandi ráðstafanir til að sjá um að barni sé ekki mismunað eða refsað vegna stöðu eða athafna foreldra þess, lögráðamanna eða fjölskyldumeðlima, eða sjónarmiða sem þeir láta í ljós eða skoðana þeirra.
Það er því mín áhersla að við vinnum saman að nýrri stjórnarskrá. En mitt áhersluatriði verður ávalt að tryggja að við förum eftir þeirri stjórnarskrá sem kann að vera í gildi.
Nýtum auðlindir í þágu okkar allra
Nú búum við ansi vel með tilliti til auðlinda. Orka er næg, vatnið hreint, fiskurinn sprækur og ferðamannaþjónustan blómstrar, með sveiflum þó eins og gengur og gerist. Eins og dæmin hafa kennt okkur gegnum tíðina þá mun það alltaf enda með auðsöfnun einstakra aðila þegar þessir gersemar sem eiga að heita okkar allra eru færðar markaðnum. Fyrirtæki á markaði munu ávalt leita leiða til að hámarka innkomu og hugsa um hagsmuni hluthafa eins og fyrirtækjalög gera ráð fyrir. Þetta getur ekki leitt gott af sér. Svo erum við að sjá þessa fjármuni hverfa í skjól á aflandseyjum og þeir eru ekki nýttir í þágu landsmanna með fjárfestingum og atvinnusköpun eins og fræðin vilja reyna að sannfæra okkur um (e. trickle down theory). Það gerist að sjálfsögðu að einhverju marki, en það er ekki ásættanlegt að einstaka fólk sitji á auðnum og greiði ekki af honum skatta. Ef að þessir auðsafnarar væru að safna dagblöðum væru þeir lokaðir inná viðeigandi stofnun og settir í meðferð við söfnunaráráttu.
Það sem ég vil líka sjá er jákvæður hvati, ekki alltaf þessi neikvæða refsing. Þannig að ef öryrki sem hefur til að mynda verið smiður, eða af öðrum ástæðum langveikur og ekki fær í líkamlega vinnu þá vil ég að við séum með hvatakerfi og styrki sem gerir viðkomandi kleift að fara í nám og taka sér fyrir hendur starf á vettvangi sem viðkomandi treystir sér í. Án þess að skilda viðkomandi eða refsa á nokkurn hátt komist hann í launað starf. Því vil ég sjá samræmi á frítekjumarki og borgaralaunum þannig að þegar viðkomandi kemst í vinnu, koma launin út á það sama og hann nýtur hagnaðar af því að vinna. Þetta markmið tel ég ekki aðeins hagkvæmt fyrir þjóðarbúið, heldur heilsubætandi fyrir viðkomandi. Það er í okkar eðli að við viljum leggja okkar að mörkum.
Tryggjum öllum aðgang að góðri menntun
Ég vil sjá sambærilegt kerfi og er í Danmörku fyrir menntafólk. Ég vil að við veitum námsstyrki ekki lán. Heimurinn er að breytast hratt, og verkamannastörf eru í auknum mæli að víkja fyrir vélrænum tækjum og gervigreind. Ef við ætlum að tryggja öllum skapandi vinnu í framtíðinni og til að getum verið samkeppnishæf þjóð, þá þurfum við vel menntað fólk á öllum sviðum. Því er gríðarlega mikilvægt að þeir sem það kjósa, komist í nám, geti framfært sér á meðan námi stendur og komi ekki út úr því með ártugalanga skuld á bakinu. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir nám sem getur tekið mjög langan tíma og skilar samfélaginu gríðarlega miklu. Þá er mér efst í huga lækna- og hjúkrunarnám.
Grunnskólanámið er að mörgu leyti úrelt, og þekkingu vantar til að kenna mikilvæg fög til að búa börn undir tölvubyltinguna sem er í hámarki. Enn er verið að vinna færibandavinnu með námsstefnu sem samræmist meira iðnbyltingu en tölvubyltingu. Ég hef rætt þetta við kennara, allir eru sammála, og ég veit að allir eru að gera sitt besta.
Komum vel fram – þá getum við verið stolt af þjóðerni okkar
Ég veit að við eigum frábært fólk í skólum landsins með mikinn metnað, en alltaf heyri ég sömu skýringuna; við höfum ekki fjármagn til að þjálfa kennara eða kaupa tækin og tólin sem þarf. Það er líka gríðarlega mikilvægt að kenna börnum að nota veraldarvefinn með ábyrgum og öruggum hætti. Því miður ganga nú miður góðar myndir og athugasemdir sem kunna að koma illa í bakið á viðkomandi. Það sem börnin þurfa að læra og skilja er að það sem þau gera á netinu, verður á netinu um ókomna tíð.
Ég hef ávalt verið stoltur af því að vera Íslendingur. Þegar landslið Íslands komst í 16 liða úrslit á Evrópukeppninni þá pantaði ég miða út án þess að hafa miða til baka, stað til að gista á eða miða á leikinn. Það reddaðist og ég sat á fínum stað ásamt bláókunnu fólki sem ég faðmaði í gríð og erg eftir mörkin og lokaflautuna. Ég fylltist gæsahúð við að sjá stemninguna á Austurvelli þennan dag og við heimkomu landsliðsins.
Ég mæti á þá leiki sem ég get, bæði hjá karla og kvennalandsliðinu sem eru ekki nægjanlega margir uppá síðkastið. En þessu stolti fylgir ekki sú hugmynd að þetta sé eitthver arfleið sem ég á af því ég fæddist á Íslandi og er Íslendingur. Þetta er arfleið og stolt sem mig langar að deila með þeim sem hafa áhuga á að kenna sig við Ísland og Íslendinga.
Ég læt mig innflytjendamál mikið varða og þar læt ég skynsemi ráða. Það er þjóðhagslega hagkvæmt að fá til okkar fólk sem vill og getur unnið. Mig svíður í eyrun þegar einhver talar um kostnað vegna innflytjenda en tekur ekki með í reikninginn skattheimtuna af þessum hópi fólks sem kemst til vinnu þann stutta tíma sem þau fá að vera hér í hælisleitarferli. Það er ekki bara mannvonska að senda burt fjölskyldur þar sem annar eða jafnvel báðir foreldrar vinna og greiða skatta, leigu og sjá fyrir sér sjálf – það er óhagkvæmt.
Ég þekki fólk sem eru bæði löglegir innflytjendur frá Schengen, efnahagsflóttamenn og flóttamenn frá stríðshrjáðum löndum. Ég þekki persónulega mikið af fólki sem mun lenda í alvarlegum lífsháska verði þau send á brott, og ég þekki fólk sem hefur verið flutt á brott og dottið af radar. Ég er mjög hræddur um að eitthvað af þessu fólki er nú látið
Ég hef líka ávalt fyllst stolti þegar þjóðin tekur sig til og mótmælir þegar tilefni er til. Við höfum sýnt og sannað að við látum ekki ráðamenn vaða yfir okkur og munum ekki hika við að kollvarpa ríkistjórnum séu þær ekki að vinna í þágu fólksins, réttlætis eða af heiðarleika. Ég er mjög hlynntur því að færa völdin frekar til fólksins og ég vil ávalt fara eftir vilja þjóðarinnar. Þ.e. ég vil að ákvarðanir og lög þjóni fjöldanum en ekki einstaka elítu. Því vil ég að fjöldinn fái að tjá hug sinn og hafa bein áhrif á strauma og stefnur stjórnmálmanna.
Fulltrúi fólksins á þingi er starfsmaður á plani.
Þjóðin er yfirmaðurinn.
Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…
Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…
Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…
Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…
Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…
Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…