Ég hef ekkert tjáð mig um skopmyndamálið fyrr en nú. Hef bara ekkert um það að segja sem aðrir mér ritfærari og vinsælli hafa ekki þegar sagt. Þessvegna finnst mér svolítið dapurlegt til þess að vita að fólk sem ég taldi fremur skynsamt virðist ennþá, eftir alla þessa umræðu líta á málið sem talandi dæmi um húmorsleysi og trúarofstæki múslima.

Málið er bara ekki svo einfalt. Þetta er ekkert í fyrsta sinn sem menn beina gríni sínu að Múhammeð og ef þetta snerist ekki um neitt annað en húmor og trú, hefði Arabaheimurinn fyrir löngu sagt Vesturlöndum stríð á hendur vegna vanvirðu við spámanninn og menningu þeirra.

Óánægja múslima stafar af langvarandi undirokun og menningarhroka vestrænna ríkja, sem hafa svipt fjölda manns heimilium sínum, atvinnu og heilsu og í mörgum tilvikum lífinu. Skopmyndamálið er bara kornið sem fyllir mælinn. Málið snýst hvorki um húmor né ritskoðun, heldur um örvæntingarfulla tilraun lifandi fólks til að halda í einhverjar leifar af sjálfsvirðingu.

Viðbrögð múslima endurspegla kröfu þeirra um að mannréttindi þeirra séu virt. Sennilega finnst þeim sem eiga um sárt að binda eftir framgöngu Bandaríkjamanna og vina þeirra t.d. í Írak, ekkert sérstaklega fyndið að fulltrúar þeirra sem hafa lagt líf þeirra í rúst og drepið fjölskyldur þeirra, dragi upp af þeim mynd sem heimskum og hlægilegum morðvörgum.

Og nei, það er ekki hægt að lækna það með því að leyfa þeim bara að gera grín að Jesúsi.

Eva Hauksdóttir

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

54 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

54 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

54 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

54 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

54 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

54 ár ago