Mannanafnanefnd hefur samþykkt nokkur nöfn til viðbótar en foreldrar Christu litlu verða enn um sinn að sætta sig við að nafn hennar sé ólöglegt. Sú ákvörðun stenst enga rökvísi enda eru fjölmörg nöfn með samstöfunni ch á mannanafnaskrá og nafnið fellur prýðilega að beygingakerfinu.Þegar úrskurðir mannanafnanefndar eru skoðaðir nokkur ár aftur í tímann kemur í ljós að eina reglan sem raunverulega er virt er hefðarreglan. Tvöfaldur sérhljóði er stundum leyfður og stundum ekki. Nöfn má stundum rita án broddstafa og stundum ekki, sum nöfn sem enda á óframbornu e má gefa íslenskum börnum en önnur ekki. Samstafan th er stundum leyfð og stundum ekki og það er álíka tilviljanakennt hvort ph er leyft. Útlensku stafirnir c og z eru stundum leyfðir en q hlýtur ekki náð fyrir augum nefndarinnar og fleiri dæmi má nefna þar sem engin rök er hægt að finna önnur en þau að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir nýsköpun.

Það er ekki bara tregða gegn nýsköpun sem nafnalögin byggja á heldur er er svo langt gengið í íhaldsseminni að undantekningar eru háðar því að ættingjar barnsins beri eða hafi borið það nafn sem ágreiningur er um. Þannig er ákveðin ættbálkahugsun lögfest, rétt eins og fólki sé ekki treystandi til þess að ákveða sjálft hverjir það eru sem standa því næst.

Mannanafnalög eru öðrum lögum fávitalegri. Hvaða rök sem menn kunna að færa fyrir þeim í orði, þjóna lögin í raun þeim eina tilgangi að geðjast ákveðinni íhaldssemi. Í fjölmenningarsamfélagi þar sem fólk getur gefið börnum nöfn í samræmi við hefðir fjarlægra menningarsamfélaga er einfaldlega útilokað að viðhalda beygingarvenjum og framburði með valdboði. Eðlilegast væri að afnema lög um mannanöfn en fá mannanafnanefnd ráðgjafarhlutverk fyrir þá foreldra sem óska ráðgjafar t.d. um stafsetningu eða beygingu.

Það er heldur engin ástæða til að setja mannanafnalög í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að fólk velji börnum sínum ónefni. Þegar gilda í landinu barnaverndarlög og ef einhverjir foreldrar velja barni sínu nafn sem þykir niðurlægjandi eða til þess fallið að verða barninu til ama, þá er það bara mál barnaverndaryfirvalda rétt eins og önnur vanvirða gagnvart börnum. Ef út í það er farið bjóða núgildandi lög upp á svo fíflalegasamsetningar að þeir sem endilega vilja gera brandara úr nöfnum barna sinna ættu ekki að vera í neinum vandræðum með að gera það samkvæmt núgildandi lögum.

 

admin

Recent Posts

Óþvegni ruddinn frá Nasaret

Mér hefur alltaf, frá því að ég var 7-8 ára, þótt Jesús frekar áhugaverður karakter.…

55 ár ago

Launasvik með andlitslyftingu

Það er ekkert nýtt að þeir sem vilja bæta ímynd sína taki upp ný orð…

55 ár ago

Facebook greiðir starfsfólki með geðröskun miskabætur

Facebook hefur samþykkt að greiða samanlagt 52 milljónir bandaríkjadala miskabætur til starfsfólks sem hefur fengið áfallastreituröskun vegna…

55 ár ago

Eru ráðherrar undanþegnir tveggja metra reglunni?

Mynd Ríkisútvarpsins frá blaðamannafundi í Safnahúsinu á Hverfisgötu í gær hefur vakið nokkrar vangaveltur á ritstjórn…

55 ár ago

Eru álfar kannski menn?

Kórónan hefur svo sannarlega kippt stórum hluta allrar starfsemi samfélagsins úr sambandi. Ein afleiðingin er…

55 ár ago

Daily Mail fær gæðavottun frá íslenska ríkinu

Tjáningarfrelsið á undir högg að sækja, líka í Evrópu. Og nú höfum við fengið staðfestingu…

55 ár ago