Frá því er sagt í Eglu að þegar Egill var 12 vetra hafi hann eitt sinn verið að leika ísknattleik ásamt Þórði vini sínum á Granastöðum og föður sínum Skalla-Grími. Egill og Þórður spiluðu saman gegn Skalla-Grími. Þeir höfðu betur og rann þá æði á Grím. Hann gekk svo hart að Þórði að það endaði með því að hann gekk að honum dauðum og greip næst til Eglis.
Eitthvað var Egill litli ósáttur við þessar aðgerðir föður síns og þegar heim var komið og menn sestir að borðum, stendur hann skyndilega upp, gengur fram í eldhús og heggur uppáhalds þræl Skalla-Gríms banahöggi. Sest svo aftur í sætið sitt eins og ekkert hafi í skorist. Sagt er að þeir feðgar hafi ekki talað meira saman þann veturinn en vorið eftir.
Myndin er af kennsluvef Hörpu Hreinsdóttur sem sjá má með því að smella á myndina.
Eins og sjá má er Hulla svo bjartsýn að hún notar sólgleraugu jafnvel þegar sér ekki til sólar. Hér er hún að reyna að velta verkinu því hún hafði frétt að skýringin á því hvað pabbi er rosalega sterkur sé sú að við eigum ættir að rekja til Egils Skallagrímssonar og hún ætlaði bara að gá hvort hún hefði erft kraftana frá honum líka. Henni tókst að losa hrútshornið en við nenntum ekki að eyða fríinu á löggustöðinni svo áður en henni tókst að velta því, límdum við Borghildur það með íslenskum sveppaosti sem ég hafði tekið með til öryggis ef eitthvað þessu líkt kæmi upp.