Bræður
Ég tók það skýrt fram í viðtali við 365 í dag að ég hefði trú á því að utanríkisráðuneytið væri að leggja sig fram um að hjálpa okkur þótt það hefði byrjað slælega, og mér finnst að það hefði mátt koma fram. Það hefur sýnt sig að í borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisis er „allt sem hægt er“ nokkuð teygjanlegt hugtak sem víkkar verulega þegar aðstandendur verða brjálaðir. Ég trúi því þó að ráðuneytið sé nú komið á rétta braut. Ég hélt í gær að það væru bara allir að fara í helgarfrí en hún Lára hjá Borgaraþjónustunni er búin að vera í stöðugu sambandi við mig í dag og hún er virkilega elskuleg. Ég bind vonir við að fá fullvissu fljótlega.
Því miður vitum við sáralítið enn og reyndar öllu minna en við töldum okkur vita fyrir einni viku. Skiljanlega eru mjög margir að spyrja hvort eitthvað sé að frétta. Því miður er ekkert að frétta en mér finnst rétt að skýra stöðuna í stuttu máli.
Það sem við teljum hafið yfir vafa:
Helstu vafamál:
Þeim sem telja að maður sem stofnar lífi sínu í hættu eigi engan rétt á því að ríkið láti sig hann nokkru varða er bent á að éta það sem úti frýs. Það er einfaldlega skylda ríkisins samkvæmt alþjóðalögum að rannsaka mannshvörf og vofveifleg mannslát. Mér finnst samt rétt að komi fram að það vorum við foreldrar hans Hauks og unnusta sem óskuðum eftir aðstoð Borgaraþjónustunnar við upplýsingaöflun. Haukur yrði áreiðanlega ekkert hrifinn ef hann vissi að íslensk stjórnvöld væru að spyrjast fyrir um hann í Tyrklandi. En jafnvel þótt ég gæti spurt hann álits, myndi ég ekki gera það í þetta sinn.
Benjamin Julian tók myndina Sennilega hefur mér aldrei orðið minna úr verki en árið 2018.…
Mér finnst þessi mynd svo táknræn. Katrín Jakobsdóttir í snertifæri við bæði Theresu May og Erdoğan.…
Í dag er ársfjórðungur síðan fréttist að bandamenn okkar í Nató hefðu drepið Hauk í…
Dear Erdoğan worshippers who have been sending me hate mail Do you really think that…
Originally published in English Kæru Erdoğandýrkendur sem hafið sent mér haturspósta Haldið þið virkilega að…
Kallað hefur verið eftir skýringum á því tiltæki að brenna tyrkneska fánann framan við Utanríkisráðuneytið…