En það eru ekki bara yfirvöld og andspyrnuhreyfingar sem meiða börn og drepa. Í Úganda eru trúarlegar mannfórnir enn stundaðar og einkum eru það börn sem þykja hentug til fórnargjafa. Þegar búfénaður dugar ekki til að tryggja velþóknun andanna. er börnum rænt og blóð þeirra og innyfli færð gvuðunum að gjöf. Því yngri því betra því sakleysi fórnarlambsins skiptir höfuðmáli. Það ku t.d. vera ávísun á góð viðskipti að grafa lifandi ungbarn í grunn eða vegg fyrirtækis. Samkvæmt þessari grein segist fyrrum töfralæknir hafa tekið við blóðfórnum að jafnaði þrisvar í viku. Vonandi eru það ýkjur en það er ekki umdeilt að slíkur viðbjóður á sér stað.
Helstu ráð foreldra til að verjast barnsránum er að umskera sveinbörn, gata eyru telpna eða merkja þau á annan hátt því fórnarbarn þarf að vera óskaddað til þess að andarnir hafi áhuga. Það dugar þó ekki alltaf til. Einnig kemur fyrir að hvítvoðungar hverfi af sjúkrahúsum. Hér er saga móður sem fékk þær upplýsingar á fæðingadeildinni að nýfætt barn hennar hefði látist og að búið væri að grafa það. Samkvæmt skjali sem hún fékk því til staðfetingar var barnið þó á lífi. Ekki hefur fengist neinn botn í það hvað varð um barnið og ekki að undra að sögur af þessu tagi veki grunsemdir um að börnum hafi verið rænt af sjúkrahúsum eða jafnvel að þau hafi verið seld. Lögreglan segist ætla að gera allt sem hægt er til að upplýsa málið og stundum nást ungbarnaræningjar en flest barnshvörf eru aldrei upplýst og fátæklingar eiga mjög erfitt með að sækja rétt sinn.
Barnsfórnum mun hafa fjölgað í Úganda á síðustu árum. Eldri börnum er einnig fórnað og í þessu myndbandi kemur fram að lítill vilji virðist vera hjá gerspilltum yfirvöldum til að taka á þessum málum. Hér má m.a. sjá viðtal við móður sem missti barnið sitt á þennan hátt, börn sem hafa lifað af fórnarathafnir og mann sem barn staðhæfir að hafi ráðist á sig en kemst upp með að kaupa sig undan ákæru.
Benjamin Julian tók myndina Sennilega hefur mér aldrei orðið minna úr verki en árið 2018.…
Mér finnst þessi mynd svo táknræn. Katrín Jakobsdóttir í snertifæri við bæði Theresu May og Erdoğan.…
Í dag er ársfjórðungur síðan fréttist að bandamenn okkar í Nató hefðu drepið Hauk í…
Dear Erdoğan worshippers who have been sending me hate mail Do you really think that…
Originally published in English Kæru Erdoğandýrkendur sem hafið sent mér haturspósta Haldið þið virkilega að…
Kallað hefur verið eftir skýringum á því tiltæki að brenna tyrkneska fánann framan við Utanríkisráðuneytið…