Allt efni

Gvuð er annaðhvort feitur eða hrukkóttur

Þegar Gvuð skapaði manninn í sinni mynd hefur hann sennilega verið með atvinnusköpun í huga. “Vér viljum skapa mann eftir mynd vorri, svo heilsufrömuðir, snyrtifræðingar, tískuhönnuðir, hárfríðkur og ljósmyndarar, þurfi ekki að sækja um listamannalaun” hefur hann hugsað.  Gvuð er nefnilega annaðhvort feitur eða hrukkóttur, gott ef hann er ekki sköllóttur og með lítið typpi og sigin brjóst og bólur í þokkabót.

                        
Hrukkuleysi er blessun feita fólksins. Lífstykki og flíkur sem blekkja augað gera svo gæfumuninn og með hárgreiðslu og fagmannlegri förðun geta allir orðið ægifagrir.
Eða a.m.k. aðlaðandi.

Ekkert kemur þó í staðinn fyrir góða myndvinnslu.

Myndir sem líta út eins og fólki sé úr plasti, orka yfirleitt óþægilega á mig. En fokk í helvíti, ég verð að viðurkenna að þetta er bara bjútífúl.

Ég er hætt við að fara í megrun. Bæti frekar á mig spiki. Það er nefnilega hægt að klæða af sér verstu keppina en það er svo mikil vinna að spartsla í hrukkur að ég á aldrei eftir að nenna að gera það daglega.

Ég er á leiðinni í bæinn með yndislega, gáfaða, hrukkótta, skemmtilega, gráhærða, hugmyndaríka, hjartahlýja manninum mínum sem elskar lærapokana á mér og finnst ég falleg nývöknuð, krumpuð í framan og með hárið út í loftið en finnst samt gaman að sjá mig vel tilhafða. Hann ætlar að kaupa handa mér falleg föt og hlutgera mig í druslur.

Ég ætla að biðja hann að gefa mér fótósjopp í afmælisgjöf – og allt verður fullkomið.

Deila færslunni

Eva Hauksdóttir

Share
Published by
Eva Hauksdóttir
Tags: hvunndags

Recent Posts

320 dögum síðar

Benjamin Julian tók myndina Sennilega hefur mér aldrei orðið minna úr verki en árið 2018.…

54 ár ago

Góðra vina fundur

Mér finnst þessi mynd svo táknræn. Katrín Jakobsdóttir í snertifæri við bæði Theresu May og Erdoğan.…

54 ár ago

Fjórum mánuðum síðar

Í dag er ársfjórðungur síðan fréttist að bandamenn okkar í Nató hefðu drepið Hauk í…

54 ár ago

My Reply to Turks’ Hatemail

Dear Erdoğan worshippers who have been sending me hate mail Do you really think that…

54 ár ago

Svar mitt við haturspóstum Tyrkja

Originally published in English Kæru Erdoğandýrkendur sem hafið sent mér haturspósta Haldið þið virkilega að…

54 ár ago

Yfirlýsing vegna fánabrennu

Kallað hefur verið eftir skýringum á því tiltæki að brenna tyrkneska fánann framan við Utanríkisráðuneytið…

54 ár ago