Þessi dræsulega háskólastúdína var klárlega klámmyndafyrirsæta ársins 2011. Myndin var notuð á auglýsingu fyrir sloppasölu lyfjafræðinema. Ég skrifaði stutta hugleiðingu um þessa mynd á sínum tíma.
Þessi klámmynd kom í óvæntar þarfir feminista, því þegar mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar gekkst fyrir ritun sérstaks klámbæklings til þess að sporna gegn kláminu á vinnustöðum borgarinnar, kom í ljós að þar var eiginlega ekkert klám að finna. Til þess að bæklingurinn yrði ekki bara auðar blaðsíður var því brugðið á það ráð að gera þessa klámvæðingu lyfjafræðinnar að vinnustaðavandamáli í Reykjavíkurborg þannig að hneykslunin á henni entist vel fram á árið 2012.
Ég varð ekki vör við klámvæðingu í tengslum við sloppasölu lyfjafræðinema þetta árið svo líklega hafa þeir látið sér segjast. Ekki var þó neinn skortur á safaríku klámi í menningu okkar og verður ekki betur séð en að siðnum í landinu hnigni ár frá ári. Nú þegar árið er á enda vil ég benda á nokkur dæmi um þá klámvæðingu sem gegnsýrir menningu okkar.
Klámvædd leikföng
Í myndinni endurspeglast allur sá sjúkleiki sem kynjakerfið hefur í för með sér; hlutgerving kvenverunnar, bleikar slaufur, stutt pils, sítt hár og telpan er auk þess sýnd í umönnunarhlutverki þar sem hún er að fóðra hund. Samtímis er umönnunarhlutverkið klámvætt þar sem beinið er augljóslega fallosartákn.
Klámvædd barnaföt
Myndin sýnir annarsvegar það sem feministar telja hefðbundinn klæðnað gleðikonu og hinsvegar eftirlíkingu í barnastærð. Ég skrifaði nokkra pistla í tilefni af umræðunni um öskudagsbúninga, hér er einn stuttur.
Klámvædd menntun
Málinu var gæfusamlega vísað til klámvarnamiðstöðvar internetsins og Hildur Lilliendahl, brást við og fékk klámið bannfært. Hefur sú framganga eflt til muna kvenfrelsi í landinu.
Klámvæddar unglingaskemmtanir
Auglýsingin var nefnd sem sönnun þess að samfélagið þurfi á feminisma að halda enda mun ungæðisháttur og vanhugsuð sniðugheit alls ekki þrífast í því dýrðarríki kvenhyggjunnar sem sér klámdjöfulinn í hverju horni.
Klámvædd jól
Á knúzinu má annars sjá mikið og fjölbreytt úrval klámmynda sem eru altsvo ekki ímyndun og mæli ég með þeim vef fyrir hvern þann sem vill kynna sér þau brengluð viðhorf til kvenna og kynlífs sem vaða uppi í samfélagi voru. Ég læt nægja að benda á þessa mynd sem birtist með grein núna á aðventunni undir fyrirsögninni; Klámvæðing jólanna. Myndin sýnir dýrakynlíf í hátíðasamhengi en ekki hefur fengist staðfest hvort hundurinn er gerandi eða þolandi.
Hvar endar þetta?
Klámvæðingin er allsstaðar og alltumlykjandi. Hún hvíslar í brjóstum mannanna og teygir sig inn í innstu afkima samfélagsins. Dæmi eru um að konur komnar yfir fimmtugt reyni að vera kynþokkafullar og með sama áframhaldi má reikna með að klámvæðingin yfirtaki elliheimilin með tilheyrandi saurlifnaði.
Eini kimi samfélagsins sem ennþá er ósnortinn af þessum ógnvaldi er feministahreyfingin en ef ekkert verður að gert hlýtur hún að fara sömu leið. Erlendis eru dæmi þess að sjálf druslugangan sé klámvædd og að meintar druslur sprangi þar léttklæddar um götur í netsokkum og stuttum pilsum. Slík ósköp hafa enn ekki gerst á Íslandi en komi skjaldborgin ekki til varnar gæti farið svo að á næstu árum þurfum við að horfa upp á klámvædda druslugöngu.