Um allan heim eru starfandi samtök fólks í kynlífsiðnaði. Um allan heim mótmæla slík samtök því að kynlífsþjónusta sé lögð að jöfnu við mansal. Um allan heim biðja gleðikonur, nektardansmeyjar og aðrar konur í klám- og kynlífsiðnaði um frið fyrir sjálfskipuðum bjargvættum sínum. Í mörgum Evrópulöndum hafa kynlífsþjónar lýst harðri andstöðu við þá stefnu að refsa viðskiptavinum þeirra. Þetta fólk er afgreitt sem fórnarlömb, geðsjúklingar og fíklar, sem hafi ekkert vit á því hvað sé því fyrir bestu.