Oft hefur verið um það talað að rétt væri að þýða skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið á ensku, til að gera útlendingum kleift að kynna sér þá ítarlegu úttekt sem þar var gerð á orsökum og atburðarás.  Stjórnvöld hafa engan áhuga sýnt á því, og þess vegna hefur ekki verið hægt að benda útlendingum á neitt bitastætt um hrunið.

En, nýlega hélt Guðrún Johnsen fyrirlestur á ensku á vegum Google um bankahrunið og sá fyrirlestur er á netinu, hér.  Hér er því loksins komin svolítil lýsing á þeim hamförum af mannavöldum sem hrunið var, sem hægt er að vísa enskumælandi fólki á.
Guðrún var starfsmaður Rannsóknarnefndar Alþingis, en er nú lektor í fjármálum hjá Viðskiptadeild Háskóla Íslands, auk þess að vera stjórnarmaður í Arion banka.   Hún hefur líka skrifað bók á ensku um hrunið, Bringing Down the Banking System: Lessons from Iceland, sem hægt er að nálgast hér.
Úlfar Erlingsson sem kynnir Guðrúnu í upphafi myndbandsins starfar hjá Google, þar sem hann er yfirmaður tölvuöryggisrannsókna, en áður hafði hann stofnað sprotafyrirtækið GreenBorder, sem var keypt af Google og notað sem grundvöllur fyrir öryggið í Chrome-vafranum.  Úlfar starfaði áður hjá Microsoft Research, en í millitíðinni hjá Háskólanum í Reykjavík.  Þess má geta að Úlfar er einn af þeim fjórum bestu tölvunarfræðingum landsins sem tölvunarfræðiskor Háskóla Íslands hafnaði fyrir tæpum tíu árum, eins og minnst er á hér.  Skorin var þá í akademískum sjálfsmorðsleiðangri sem heppnaðist afar vel.
einar

Recent Posts

Veiran leggst á fréttafólk á furðulegan hátt

Veira gengur nú ljósum logum um heimsbyggðina og veldur ýmiss konar usla og hörmungum. Hún…

55 ár ago

Kóvitar, sérfræðingar og óvitar

Það er best að taka fyrst fram eftirfarandi: Ég hef enga sérfræðiþekkingu á faraldursfræði, veirufræði…

55 ár ago

Um breytingar á nálgunarbannslögunum – og skilvirka leið til að tryggja frið

Opið bréf til þingmanna Sæl, þið sem flytjið tillögu um breytingar á nálgunarbannslögunum (meira…)

55 ár ago

Eru Píratar kerfisflokkur?

Borgarfulltrúi Sósíalistflokksins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, lýsti því yfir í gær að hún hygðist ekki taka…

55 ár ago

Of margar konur í borgarstjórn?

Í borgarstjórnarkosningunum um helgina náðu fimmtán konur og átta karlar kjöri. Konurnar eru því 65%…

55 ár ago

Hvaða þingmaður fær þrjá nýja bíla?

Sá þingmaður sem mest fékk greitt fyrir aksturskostnað í fyrra fékk 4.621.144 krónur, fyrir að…

55 ár ago