Eyjan birtir á hverjum degi urmul frétta. Sumar þeirra, væntanlega þær sem þykja áhugaverðastar, lenda í „rúllunni“ efsti til vinstri, þar sem eru fjórar fréttir í einu, og svo flytjast þær yfirleitt aðeins neðar á síðuna vinstra megin, þar sem þeim er enn gert hátt undir höfði.
Um helgina voru meðal annars þessar fréttar álitnar markverðastar af ritstjórn Eyjunnar:
Kínverskum tölvuþrjótum tókst að stela 5 milljónum frá Þjóðleikhúsinu. Sendiráðið bjargaði málum
Ritdómur um Bernskubók Sigurðar Pálssonar
Og svo þessi:
Formaður LFK sagði sig úr Framsóknarflokknum og gagnrýndi forystuna á miðstjórnarfundi í dag
Þessi frétt sást hins vegar hvergi: Benedikt Sigurðar segir sig úr Samfylkingunni
Getur verið að það sé vegna þess að umrædd úrsögn er vandlega rökstudd, að forystu Samfylkingarinnar svíði undan þeim rökstuðningi og að ritstjórn Eyjunnar hafi pólitísk markmið en ekki góða blaðamennsku að leiðarljósi?