Einn daginn stóð þessi maður einn fyrir utan Landsbankann með skilti. Næsta dag fóru 70 manns með honum inn í bankann.
Einn daginn fór ég í Seðlabankann til að ná tali af Davíð og skora á hann að segja af sér. Um 20 manna hópur fór með mér. Seinna um daginn, þegar ég var löngu farin heim, bættust 200 manns í hópinn.
Sá sem stendur einn fær fleiri með sér. Sá sem bíður eftir að aðrir geri hlutina fyrir hann stendur áfram einn.
View Comments (1)
-----------------------------------------------------
OK
nákvæmlega munu verkin tala.
það má þekkja menn af verkum þeirra. en hver skilur svo verkin? fólk miskilur svo margt eða hreinlega tekur ekki eftir.
Einn einbeittur fókus-eraður maður getur gert meira en hundruð þúsund ding-dong ringlaðir einstaklingar.
Posted by: gard | 22.12.2008 | 15:13:59
--------------------------------------------------------------------
Tjásur af moggabloggi
Það var flott skiltið hans Hvítþvottarstöðin.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.12.2008 kl. 01:11
--------------------------------------------------------------------
Doris: Hvernig er ástandið í heiminum í dag? Er heimurinn betri eða verri eftir að Jesú og hans lærisveinar 12 fóru að boða hina kristnu trú?
Himmalingur, 23.12.2008 kl. 03:04
--------------------------------------------------------------------
Hilmar, ástandið í heiminum er alltaf bölvað. Enda sagði Jesús: "Í heiminum hafið þér þrenging." Heiminum stjórna nefnilega djöflarnir Mammon og Andskotinn (sem nú virðast eiga veraldleg stjórnvöld á Íslandi með húð og hári). En Jesús bætti við: "En verið hughraust: Ég hef sigrað heiminn." Við skulum verða þátttakendur í þeim sigri og berjast ótrauð gegn hvers kyns spillingu og kúgun - því sigurinn er þegar staðreynd. Við þurfum bara að bera okkur eftir honum - með þátttöku.Circus (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 04:22