Hvaðan kemur sú hugmynd að skyr sé eina próteinuppsprettan sem líkamsræktarfólki stendur til boða? Ekki svo að skilja að ég hafi neitt á móti skyri, mér finnst það alveg ágætt, með sykri og rjóma að sjálfsögðu. Ég er bara svo hissa á þessari áherslu á einmitt skyr. Hvernig er það í öðrum löndum, þar sem skyr er ekki til? Setja útlenskir endorfínfíklar tófú eða fisk saman við ávaxtamaukið? Eða eru allir bara pervisnir í útlöndum?
View Comments (1)
------------------------------------
best finnst mér þegar þeir borða svo mikið af þessu að þeir kasta upp.
æla skyri.
mmm.
Posted by: Halli | 23.04.2007 | 20:03:14
------------------------------------
Æ sorrý Hildigunnur. Ég var að eyða "spami" og hef óvart tekið síðasta kommentið þitt út í leiðinni.
Posted by: Eva | 24.04.2007 | 6:44:26
-------------------------------------------------------
Hún seigir allir mjólkur drykkir súrmjólk allir skyr drykkir seu ekki gott fyrr heilsuna ég drekk samt mjög of mjólk og einnu sini í viku skyr ef það fer svona í þig gæti ekki verið þú sért með óþoll fyrir því
Posted by: hanna Lilja Bjarnadóttir | 29.04.2007 | 0:32:56