X

Saurmenni Íslands

Eins fylgjandi og ég er tjáningarfrelsinu (ég álít að lýðræði sé best og mest þar sem ólík sjónarmið fá að takast á) þá dreg ég nú samt mörkin við persónuníð.

Auðvitað á að loka þessari ógeðslegu rasistasíðu sem var í fréttum í gær. Ekki þessari. Hana á að nota sem kennslugagn til að sýna fram á hverskonar viðbjóðsviðhorf, þekkingarskortur og hrein og klár heimska er á bak við fyrirbæri eins og Frjálslynda flokkinn. Sem gekk náttúrulega ekki svona langt en myndaði engu að síður stefnu í innflytjendamálum út frá kynþáttahyggju, hún var bara aðeins betur dulin. Það má nota hana sem kennslugagn til að sýna fram á þann hugsunarhátt sem er að baki stórum hluta af soranum á Útvarpi Sögu. Og sem forvörn gegn stjórnmálaflokkum sem halda uppi álíka ógeðfelldum áróðri og BNP í Bretlandi, því þessháttar flokkur mun áreiðanlega verða stofnaður á Íslandi á næstu árum.

Það er hinsvegar of langt gengið þegar einstaklingar, þ.m.t. lítil börn verða fórnarlömb kynþáttahaturs. Þessvegna á ekki bara að loka síðu Glúms af tillitssemi við þolendur, heldur líka að sækja aðstandendur hennar til saka.

Það er ekki oft sem ég óska fólki ills en umburðarlyndi mitt gagnvart þeim sora þjóðarinnar sem kallar sig þjóðernissinna er þrotið. Ég vona að þau verði öll sem eitt lögsótt og dæmd til þyngstu leyfilegrar refsingar. Ég vona að þau fái hvergi vinnu og að starfsfólk fjölskylduhjálparinnar sýni þeim ósvikna fyrirlitningu þegar þau koma þangað skríðandi. Ég vona að þau fái að finna það á eigin skinni hvernig það er að vera sviptur mannlegri reisn. Ekki af því að ég haldi að þau læri neitt af því, þetta pakk er of heimskt til þess, heldur bara af því að það væri gott á þau.

Sennilega er einfalt mál að rekja ip tölur og finna önnur tæk sönnunargögn. Það þarf að koma lögum yfir fólk eins og þennan mannsora sem kallar sig Glúm Jökulsson. Einnig séra Skúla Jakobsson, æðsta prest og eina meðlim Sköpunarhreyfingarinnar. Hann var vinur Donalds Pauley sem hýsir bardagasíðuna þar til fjölmiðlar sögðu skamm en hefur nú sennilega séð ástæðu til að skríða undir rúm. Já og ýmsir fleiri sem breiða út hatursboðskap og hvetja til ofbeldis gagnvart fólki sem hefur ekkert unnið sér til sakar, þurfa að fá skýr skilaboð um að þessi viðbjóður verði ekki umborinn.

Auðvitað er hugsanlegt að ekki takist að koma þessum aumingjum í grjótið. Þessvegna er um að gera að nýta tímann á meðan ógeðssíðurnar eru ennþá uppi og afrita þær. Bæði til að gera þeim sem sýna þjóðernishyggju umburðarlyndi grein fyrir því hvað við er að etja og einnig vegna þess að ritstíll og önnur einkenni gætu hugsanlega vísað okkur á einhverja sem eru ekki jafn vitlausir og þeir sem hafa þegar dreift mykjunni úr sér undir nafni.

Hér eru nöfn nokkurra nýnazista sem hafa ekki haft vit á því að vera nógu falskir til að eiga greiða leið inn í stjórnmálin.

Skúli Jakobsson
Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir sem einnig kallar sig Védísi ótugt.
Jóhann Guðni Ragnarsson 
Jón Kristinn Jóhannesson

Takið svo eftir því næst þegar „þjóðernissinnaður“ flokkur býður sig fram til Alþingiskosninga, hvað er ólíkt með meðlimum hans og þessu pakki. Líkur eru á að það fólk verði alveg jafn illa innrætt, hafi bara vit á að tjá sig ekki á jafn öfgafullan hátt.

Já takið eftir því, því þar liggur hættan. Það er nefnilega ekki hægt að taka „hófsama“ kynþáttahatara út umferð.

——————————–

Bætt við 30.01. kl 22:35

Ég sé á fb að ég hef ekki orðað reiði mína nógu skýrt og að einhverjir telja að ég sé að mælast til þess að fjölskylduhjálpin neiti rasistum um matarúthlutun. Því fer fjarri. Ég vil ekki láta svelta neinn. Hinsvegar vona ég að sem flestir beiti þessi skítmenni andlegu ofbeldi, í formi ósvikinnar fyrirlitningar. Ástæðan fyrir því að ég nefni starfsfólk fjölskylduhjálparinnar sérstaklega er sú að það er ennþá sárara að verða fyrir fyrirlitningu af hálfu þeirra sem maður er háður um nauðsynjar. Slíka fyrirlitningu mega flóttamenn gjarnan þola. Ég óska rasistum þó enganveginn þeirrar grimmdar  sem þeir sýna innflytjendum. Ekki einu sinni drulluhalar eins og Glúmur Jöklusson eiga að þurfa að þola slíkt, þótt þeir verðskuldi það svo sannarlega. Það er þar sem miskunnsemi er þörf.

Categories: Allt efni Pistlar
Eva Hauksdóttir:

View Comments (51)

  • Eins mikið og allir nema suðurnesja menn (við þekktum þá) hötuðu US, NAVAL BASE, Keflaík, Iceland. Alveg voru með stæla við hermenn sem skruppu út fyrir girðinguna, alveg EINELTI og RASISMI gekk allann tíman sem Base-inn var hér. Ótrúlegt! Menn sem voru sendir hingað til að vinna, og TRÚIÐ mér þeim fannst Iceheads ekkert spes.Þarna vann maður með öllum hermönnunum/konunum af öllum kynþáttum. Man ekki eftir leiðindum. Að alast upp í næsta húsi við útlendinga, krakka og mömmur, kana-siði, var frábært! Filipseyingar-Hvitt fólk-svart fólk- allskonar fólk. Það sísaðist sem betur fer litblinda ínn í flesta krakka, Fólk er bara fólk, og á heimtingu á að fa sama díl og allir aðrir. Annað er grimmileg HEIMSKA og maður alveg skammast sín fyrir subbu ganginn í garð Fólks, Sé fyrir mér Girðingar.!!

  • Eva you are such a sweetheart. We got 84,034 hits Friday but only 9,000 yesterday because of server problems. In the last three days nearly 8,000 people have received Glum's message of free speech. Takk!

  • BTW, Bardaga will post an uncensored essay from you of equal length to "Tveir Litlir Negrastrakur". You can write to Bobo and he will post it for you.

  • Donald E. Pauly, I have notified your service provider of your site. As it is in breach of laws both in Iceland and the U.S. As clearly stated in your service provider TOS, your web site is illegal.

    If your web site is not taken down in good manner of time. I am going to forward your web site to your local laws police and possible the FBI.

    • Jón Frímann

      That is a most un-Christian way for you to talk. You Viking liberals are at least ten times crazier than ours, if you can imagine that. You are worse than the Communist thought police under Josef Stalin.

      • Actually, Christ was a Palestinian Jew and I don't recall anything about him preaching racism. Not that I'm Christian though...

      • Thankfully. I am not an Christian in any way. I left that crazy club long time ago. You know. Because of all the hatred and the violence it spreads.

        I can tell you, under Josef Stalin, you would have been sent to Siberia one way long, long time ago. I know my history. Clearly you do not.

  • Eva kærust. Er möguleiki á að þetta sé fíflagangur, að tilgangurinn sé að plata (æsa) fólk upp úr skónum, e.t.v. með dýpri tilgang í huga? Nafnið Glúmur Jökulsson finnst að minnsta kosti ekki á Íslendingabók og gúggl gefur engar frekari vísbendingar, einu niðurstöðurnar eru kringum þessa einu síðu. Heigull á uppdiktuðu nafni er að sjálfsögðu möguleiki en það er einhver hömlulausari stigsmunur á honum og þeim opinberu og yfirlýstu viðbjóðunum sem hafa gengið fram fyrir skjöldu. Þessi munur fær mig til að halda í vonina um að þetta sé feik - og þá vildi ég að minnsta kosti fá að heyra hinn æðri tilgang áður en dómar verða felldir.

    • Stigsmunurinn er að mínu mati ekki hömlulaus. Ég get ekki ímyndað mér að þessir örvitar hafi rænu á einhverjum dýpri tilgangi með þessum sóðaskrifum. Hefurðu lesið biblíu hvíta mannsins? http://www.creator-library.tk/ Samkvæmt henni er hinn æðsti tilgangur einfaldlega að útrýma öðrum kynþáttum en hinum hvíta.

      • Ég er ekki að verja nokkur einustu rasísk skrif. Bara að velta því fyrir mér hvort þessi eini tiltekni, Glúmur, sé alvöru. Og þar með að velta því fyrir mér hvort sá sé að plotta eitthvað sem enginn hefur komið auga á enn. Nafnið Glúmur Jökulsson finnst ekki í þjóðskrá og engar gúggl-vísbendingar eru um tilvist hans. Ég veit á hinn bóginn meira um hina rasistana og þeirra saurmennsku en ég kæri mig um, og efast ekkert um að þeim sé fjandans alvara.

        • Það hvarflaði ekki að mér að þú værir að verja þetta en ég held því miður að þessi viðhorf sem birtast á bardagasíðunni séu raunverulegri en flestir vilja trúa. Glúmur er auðvitað dulnefni. Það er einhver snillingurinn sem stóð að fyrri netsíðu sköpunarhreyfingarinnar sem skrifar. Virðist vera betur skrifandi en Skúli. Kannski einhver eymingi sem hefur ekki efni á félagsgjöldunum.

  • Góð regla að láta blogg bíða í sólahring áður en það er birt. Ég er næstum viss um að þetta eru krakkagrei sem þurfa að komast í tæri við fullorðið fólk til vitiborinna umræðna, svona svipað og blessaðir anarkistarnir. Nálgumst þau með velvild og virðingu, það væri gott á þau. En Eva er alltaf góð þegar hún æsir sig, yndisleg.

    • Já heldurðu það? Heldurðu kannski líka að Breivik sé krakkagrey sem þarf bara að komast í tæri við vitiborið fólk?

      Mér finnst það satt að segja hálfgerð móðgun við börn og unglinga að láta að því liggja að það sé ungæðisháttur sem hrjáir þessi afstyrmi. Aldrei hef ég þekkt barn eða ungling sem er nógu illa innrætt til að ráðast að munaðarlausum börnum af álíka grimmd og skíthælshætti og umrædd síða ber vitni um.

      Þetta komment þitt um anarkista er ekki svaravert.

      • Ég hef kynnst mörgum þannig ungmennum. Stælar sem líða hjá, en það er rétt, ekki hjá öllum. Hugmyndin um ritskoðun hittir anarkistanan sérstaklega fyrir, hún er ekki góð eða amk vanhugsuð eins og svo margt hjá þér

        • Í hvaða landi kynntist þú ungmennum sem láta svona viðbjóð frá sér fara? Ég hef aldrei hitt þessháttar manneskju nema í netheimum og þeir örfáu sem ég hef orðið vör við að tali á þennan hátt eiga það sameiginlegt að vera nýnazistar.

          Segðu mér annars eitt, nei tvennt. A) Hefurðu skoðað umrædda síðu? B) Finnst þér ritfrelsi mega ganga svo langt að birtar séu myndir af litlum börnum, þau kölluð upprennandi glæpamenn vegna litarháttar síns og látnir foreldrar þeirra svívirtir? Ef þú heldur í alvöru að hömlulaust persónuníð eigi eitthvað skylt við anarkisma, þá þarftu að kynna þér hugmyndafræði anarkisma öllu betur áður en þú verður fær um að tjá þig um hana.

          • A) Já, ég hef skoðað þær síður sem þú tilfærir og margar aðrar og get ekki séð annað en að þetta séu krakkagrei eða bjánar, svipað og hávaðin af öllu því rausi sem frá anarkistum fer.
            B) Nei, ég edr almennt ekkert sérstaklega frjálslyndur oh tel hugsanlegt að banna nafnlausa umfjöllun.

            En ég hlýt að mótmæla þegar öllu er dembt í einn pott og svo á að fara að banna, átti síst von á svona slíkur frá þér, þú fyrirgefur.

          • Jæja, hafir þú átt von á því að ég sýndi skrifum af þessu tagi umburðarlyndi, þá þekkirðu mig illa. Hvað áttu við með að öllu sé dembt í einn pott?

  • Even though we have a huge number of problems in the USA, we are blessed with our Bill of Rights which you Vikings do not have. Here is our First Amendment to our Constitution.

    [[AMENDMENT I

    Congress shall make no law respecting an establishment of religion, or prohibiting the free exercise thereof; or abridging the freedom of speech, or of the press; or the right of the people peaceably to assemble, and to petition the government for a redress of grievances.]]

    You Vikings have a State Church which is illegal in our country. We have a near absolute right of free speech as well. You should try it, you will like it. Liberals love free speech so long as they are the only ones who are talking. We do not fear our opponent's point of view. Eva has been challenged to write an article of the same length to be posted right beside Glum's "Tveir Litlir Negrastrakur". Glum will reply to her article with one half as long.

    • I think you are not getting it Donald. No one is asking for a debate with neo-nazi groups, we have already tried that and you shitholes are simlpy too stupid and ignorant to qualify for an open discussion.

      And don't get me wrong, I don't want to shut you up. I want as many people as possible to see what kind of a maggot you are, so that unless you make amends, you will be hated and despised wherever you go, live in misery and die alone. And when your wrecked life finally ends, people will spit on your grave and promise never to forgive, never forget. So go on please, reveal your sick views, too many people need this wakeup call, to let go of their tolerance for racism.

    • The Icelandic Penal Code provides protection from anyone who in a ridiculing, slanderous, insulting, threatening or any other manner publicly assaults (in writing) a person or a group of people on the basis of their nationality, skin colour, race, religion or sexual orientation. The penalty is a fine or jail for up to 2 years.

      If you ask me, this is a very healthy restriction of the freedom of speech.