Flestir þeirra áhugapenna sem birta skrif sín á netinu hafa síðustu árin helst skrifað pistla um samfélagsmál, mat eða annað þema og flestir nota bloggsvæði netmiðlanna. Ævisögulegu bloggin og leikirnir fluttust yfir á fésið. Mér finnst missir að persónulegu bloggsvæðunum, bæði vegna þess að þar voru oft birtar áhugaverðar, samfelldar frásagnir en á FB er skeytastíllinn áberandi en einnig vegna þess að öll FB-svæði eru nokkurnveginn eins í útliti. Maður heimsótti bloggsvæðin en FB er líkari kaffihúsi.
Ég lokaði persónulegu dagbókarsvæðunum mínum fyrir almenningi fyrir nokkrum árum. Var þá hvort sem er farin að skrifa svo stopullega á persónulegum nótum að ég sá ekki tilgang í því að sigta frá það sem ég kærði mig um að deila með alheiminum og því sem aðeins á erindi við vini og ættingja.
Ég er nú búin að fela eldri færslur á liljunum og er að hugsa um að prófa að hafa þetta svæði opið í nokkra mánuði. Ég loka þá bara aftur ef ég hef ekkert gaman af því.