Eftir að við skriðum úr hreiðrinu hefur hann líka á allan hátt staðið með okkur. Ég hef tvisvar sinnum flutt inn á hann þegar ég var í húsnæðishraki og hversu oft höfum við ekki leitað til pabba þegar þurfti að gera við eitthvað, flytja eða redda einhverju? Ennþá býðst hann alltaf til að sækja mig út á flugvöll þegar ég kem til landsins.
Pabbi varð 75 ára núna í maí og í tilefni af því ákváðum við systur að fara með hann í óvissuferð. Hulla stakk upp á því að fara með hann til Afríku en þrátt fyrir gríðarleg auðæfi okkar töldum við Borghildur það kannski ekki alveg raunhæft. Lendingin varð sú að gera einmitt það sem hann sjálfur gerði þegar við vorum litlar; að fara í ferð innanlands, leggja áherslu á góða samveru en steypa okkur ekki í skuldir. Við fórum því í 3ja daga ferð um Suðvesturlandið sem pabbi þekkir reyndar inn og út eins og aðra landshluta en hefur samt alltaf ánægju af að sjá aftur.
Hér verða birtar myndir og frásagnir úr þeirri ferð næstu dagana. Hver færsla birtist kl 11 f. hádegi, sú fyrsta á morgun, 23. júní. Vonandi verður svo tilefni til að birta eitthvað meira síðar.
En áður en ferðasagan hefst skulum við skoða nokkrar myndir sem ég tók traustataki af netinu,