X

Lífsstíllinn

Dálítið undarlegt að kalla gönguferð á fögrum stað í góðu veðri, með hressingu í lokin, píslargöngu. Maður fær svona á tilfinninguna að menn hafi ekki alveg áttað sig á merkingu orðsins.

Reyndar lýkur víst göngunni með því að þátttakendur þurfa að hlusta á lestur úr skáldskaparhroða þeim er kallast Passíusálmar. E.t.v. á það að réttlæta nafngiftina á þessum labbitúr.

Já og eitt enn varðandi þessa frétt af píslargöngunni; margir hafa gert hana að „lífsstíl“, segir í blaðinu.

Mér hefur nú þótt orðið lífsstíll full mikið notað að undanförnu en þó tekur nú steininn úr þegar árleg gönguferð er flokkuð sem lífsstíll. Sennilega „lífsstíll aðila af þessari stærðargráðu“.

Categories: Allt efni Örblogg
orblogg: