Mig hlýtur að hafa dreymt almannavarnahávaðann. Kannski hef ég heyrt í sjúkrabíl og skynjunin brenglast svona í svefnrofunum. Ég á mjög erfitt með að kyngja því að mér skjátlist svona hrapalega. Ég var svo viss um þetta að ég fór fram og kveikti á sjónvarpinu. Fannst ég heyra í flugvélum líka og datt helst í hug loftárás. Átti erfitt með að sofna aftur og rauk strax fram til að hlusta á útvarpið þegar ég vaknaði aftur. Það hlýtur að vera upplifun af þessu tagi sem fær fólk til að trúa því að það hafi séð drauga.
View Comments (1)
-----------------------------------
Undarlegt, þetta hlýtur að vera að ganga. Í síðustu viku hrökk ég upp tvisvar sömu nóttina. Í fyrra skiptið við það hávært íl í stillimynd sjónvarps var að æra mig. Þegar ég var almennilega vöknuð hljóp ég fram í stofu og ætlaði að slökkva á sjónvarpinu... en nei, það var ekki í gangi. Síðar um nóttina var það svo lúðrasveit sem vakti mig. Var ekki til staðar heldur.
Posted by: Sigga | 3.03.2007 | 12:46:20