X

Gegndrepa

Mér skilst að lykillinn að hamingjunni felist í því að klára allt þetta sem maður byrjaði á endur fyrir löngu.

Þegar maður er búinn að smyrja á sig, fyrir utan venjulegt andlitskrem og húðmjólk, fótafrískandi, hárvaxtarheftandi, rassasléttandi, brjóstastinnandi, augnpokastrekkjandi, svitastoppandi, munnhrukkumildandi og naglbandamýkjandi kremum, þarf maður þá virkilega að klára handáburðinn líka til að ná blissinu?

sapuopera:

View Comments (1)

  • ---------------------------------------------

    og ekki gleyma að klára súkkulaðistykkin. Og ísboxin í frystinum. Og...

    Posted by: hildigunnur | 27.02.2007 | 12:54:59

    ---------------------------------------------

    Æjá, rósavínið frá því um áramót. Og viskýflaskan sem ég opnaði fyrir tveimur árum. Nóg að gera við að ljúka öllu þessu sem ég er byrjuð á á næstunni.

    Posted by: Eva | 27.02.2007 | 14:15:02

    ---------------------------------------------

    Vá! Þú hlýtur að vera yfirmáta lukkuleg af þessu öllu.

    Posted by: Harpa J | 27.02.2007 | 16:35:51