Ég hef verið spurð hvort sé ekki ódýrara að kaupa bókina beint af mér. Svo er alls ekki. Ég ætla að gefa samtals 2 eintök af þessari bók, Grími Bjarnasyni fyrir að taka myndir sem láta mig virðast miklu fallegri en ég er og Þórgunni, af því bara. Aðrir verða vesgú að kaupa bókina á fullu verði. Ef vinir mínir og ættingjar eru ekki nógu spenntir fyrir orðsnilli minni til að splæsa 2000 kalli í bók eftir mig, get ég varla vænst þess að aðrir geri það frekar. Hins vegar fæ ég meira í minn hlut ef þið kaupið hana beint af mér í stað þess að kaupa í gegnum forlagið.
Ég er líka ljóðskáld liggaliggalá, meira að segja útgefið nanananana, upprennandi þjóðskáld í þokkabót.
Kápumyndin er af sálinni í mér, Darri teiknaði hana og titillinn er fenginn úr ljóði sem Haukur orti þegar hann var 5 ára.