Ég hef verið niðusokkin yndislegri lestur en ruglið í feministum undanfarið en fyrst Ögmundur biður um það þá er best að halda áfram. Hér er enn ein ástæðan fyrir því að við ættum að hafna feminisma:
Feministar eru með klám á heilanum. Þeir setja öskudagsbúninga, erótísk tónlistarmyndbönd og allt þar á milli í sama flokk og myndbönd með hrottalegum nauðgunum. Með því boða þeir þá hugmynd að kynhvötin og allt kynlíf sé sjúkt og rangt; að stigsmunur en ekki eðlismunur sé á kynlífi og nauðgun, kynhvöt og ofbeldishneigð.
Ef Ögmundur ætlar ekki að umbera neitt á internetinu sem ekki er umborið í skólastofunni eða úti á götu þá er rökrétt að banna einnig allt myndefni og lesefni þar sem kynlíf, ofbeldi og glæpir koma fyrir.