Bláþræðir – dagbók vændiskonu

Þessi bók er tileinkuð Nínu. Þrátt fyrir prýðilega umsögn lesara bókaforlagsins Eddu var útgáfu hafnað á þeirri forsendu að yrkisefnið væri „ekki ljóðrænt“.

Ljóðunum er raðað „öfugt“, þ.e.a.s. fyrsta ljóðið í bókinni er efst (sú færsla sem síðast var sett inn). Hún er í fjórum köflum; 1 Inn fyrir leiktjöldin, 2 Bláþræðir fávísinnar, 3 Veruleikinn stendur á tröppunum, 4 Hugarró. Fyrir neðan hverja færslu er merki þar sem sjá má hvaða kafla ljóðið tilheyrir.

Landkynning

Utan við kaffi Austurstræti svipta vorvindar hraðir skjóllitlum flíkum ljóshærðar stúlku sem brosir til ferðamanna, berrössuð eins og hálendið sjálft…

54 ár ago

Pósa

Fangaðu sál mína, klámfengna blygðun, eitt stafrænt augnablik. Fíkjublaði skreyti ég nekt mína Brosi til linsunnar, bak við hárið veðböndum…

54 ár ago

Dorg

Í innflutningsdeildinni liggja dorggjörn tækifæri á glámbekk. Gríp þau í gæsavís og renni út gullfiska húkkar gæsin mín á augnkrók.

54 ár ago

Eftir lokun

Herbergi starfsfólksins verst. Þefur af kampavínsælu, svitastokknu næloni og reykmettuðu sæði. Borðtusku rennt framhjá notuðum fimmþúsundkalli sem gleymdist á borðinu,…

54 ár ago

Bergmál úr helli Ísdrottningar

Úr staðleysu hafa nöfn okkar kallast á, bergmálað í draumum sem báru hold mitt til dyflissu þinnardyflissu þína til veruleika…

54 ár ago

Kastali Drottningarinnar

Kastali minn stendur á hæðinni. Ljós í efsta turnglugga og úlfar varna óboðnum inngöngu. Gerði þyrnirósa umkringir. Flýgur hrafn yfir.…

54 ár ago

Ljóð handa útgerðarmanni

Samstarf, segirðu; LOL! Ég þekki kóna af þínu tagi, dóna sem ekkert kunna og vilja nema nota, pota, ota sínum…

54 ár ago

Bakþankar

Bláþráðum sleginn er örlagavefur minn þessi árin. Skarpir hafa skorið fingur nornanna þræðirnir þeir.

54 ár ago

Línur

Var það lífsins lind sem spratt fram undir vísifingri þínum, kvíslaðist við uppsprettuna, greindist í ám og lækjum um lófa…

54 ár ago

Sjálfsköðun

Hver velur slíkt hlutskipti? Setja sig í lífshættu til að handleika blóðkaldar hræætur. Koma heim með slímkennda ólykt loðandi við…

54 ár ago