X

Annir hjá tmd

Ég er farin að finna til með Grími. Manngarmurinn virðist bara alltaf vera í vinnunni. Allavega var einhver hjá tmd (sama ip-tala og sú sem Grímur notaði til að tjá sig á kerfinu mínu) farinn að skoða sápuóperuna mína upp úr kl 9 í gærmorgun og fór inn á hana reglulega allan daginn, alltl til 9:32 um kvöldið. Var svo kominn inn aftur kl 6:01 í morgun. Þessi mikla viðvera vekur spurningar um hvort Grímur sé með svefnpoka á starfsstöðinni. Sama ip tala kemur nefnilega stundum inn af og til alla nóttina líka en Grímur hefur líklega fengið frí frá næturvaktinni í nótt og hangið í tölvunni heima hjá sér í staðinn.

Nema skýringin sé sú að Grímur og kolllegar hans séu á vöktum við að runka sér yfir blogginu mínu, því ? Nei, það getur nú ekki verið. Líklega þarf ég að fá lyf gegn þessari vænisýki.

Best er að deila með því að afrita slóðina

Eva Hauksdóttir:

View Comments (1)

  • -----------------------------
    "just because you're paranoid, it doesn't mean they're not out to get you"
    -philip k. dick

    Posted by: siggimus | 12.01.2009 | 9:46:08

     -----------------------------

    Væntanlega er ip-talan sem þú sérð s.k. gateway hjá Tölvumiðstöð dómsmálaráðuneytisins og þess vegna sjást allar tölvur sem tengjast netinu í gegnum tmd sem þessi tala. Þetta geta þess vegna verið starfsmenn hinna ýmsu lögregluembætta, ráðuneyta og fleiri stofnana, en alltaf sama talan...

    Posted by: HT | 12.01.2009 | 9:48:45

     -----------------------------

    Hey þetta er fyndið með ip dæmið... algjör snilld.......þú átt aðdáanda þar

    Posted by: Einar Bragi | 12.01.2009 | 13:25:05

     -----------------------------

    Djókið með þennan mann... þetta er örugglega Björn sjálfur... hver annar vinnur svona mikið í ráðuneytinu?

    Posted by: Siggadís | 12.01.2009 | 20:52:23

Related Post