X

Tsssjúh!

Áður en ég fór í jólafrí sagði ég Búðarsveininum að ég ætlaði að nota tækifærið og taka út öll veikindi sem mætti búast við næsta árið fyrst ég væri heima í afslöppun hvort sem væri. Ég veiktist þó ekki fyrr en í gær og er búin að vera eins og draugur í dag. Hnerrandi draugur með hálsbólgu. Druslaðist ekki í vinnuna fyrr en um 11 leytið. Við Anna vorum búnar að plana skrabblkvöld en ég ákvað að fara frekar heim í bælið og ná þessu úr mér.

Fullt tungl í dag. Ég eyddi einu símanúmerinu enn úr gemsanum mínum. Það er ótrúlega árangursríkur smágaldur sem útheimtir hvorki þekkingu né viljastyrk.

 

Best er að deila með því að afrita slóðina

Eva Hauksdóttir:

View Comments (1)

  • -----------------------------------------------

    Þetta er það sem gerist þegar maður leyfir sér að slaka á..... passaðu bara að ná þessu alveg úr þér - áður en þú ferð af stað.

    Kona með reynslu talar.

    Posted by: lindablinda | 4.01.2007 | 10:20:46

Related Post