Ég hef ekki fengið neinn greiðsluseðil til að borga af kreditkortinu og netbankinn minn þvertekur fyrir það að nokkurt kreditkort sé skráð á mig. Samt er ég nú með kort og hef ekki lent í neinum vandræðum með að nota það. Eitthvað á ég erfitt með að trúa því að kortafyrirtækið hafi ákveðið að láta mig fá kort sem ekki þurfi að borga af.
Dund, hvað það væri samt næs.
View Comments (1)
--------------------------------
mig vantar svona kort...fást þau í galdrabúðinni?
Posted by: baun | 21.11.2006 | 16:13:23
--------------------------------
Iss, þessi kortafyrirtæki mega bara dunda sér.
Posted by: Gillimann | 21.11.2006 | 22:00:17