{"id":8271,"date":"2013-07-08T22:36:16","date_gmt":"2013-07-08T22:36:16","guid":{"rendered":"http:\/\/www.pistillinn.is\/?p=8271"},"modified":"2017-08-15T17:51:24","modified_gmt":"2017-08-15T17:51:24","slug":"skiljanleg-vidbrogd-loggunnar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/","title":{"rendered":"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar"},"content":{"rendered":"<p>Fyrstu vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6greglunnar vi\u00f0 hinu <a href=\"http:\/\/blog.pressan.is\/evahauks\/2013\/07\/08\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\">umtala\u00f0a myndbandi<\/a> voru umm\u00e6li \u00e1 <a href=\"https:\/\/www.facebook.com\/logreglan?fref=ts\">\u00edmyndarrunkss\u00ed\u00f0u L\u00f6greglunnar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu.<\/a>\u00a0 \u00dear er bent \u00e1 a\u00f0 f\u00f3lki s\u00e9 frj\u00e1lst a\u00f0 leita r\u00e9ttar s\u00edns og sta\u00f0fest a\u00f0 r\u00edkissaks\u00f3knaraemb\u00e6tti\u00f0 muni sko\u00f0a m\u00e1li\u00f0. Einnig segir:<!--more--><\/p>\n<blockquote><p>Af \u00feessu myndskei\u00f0i er ekki h\u00e6gt a\u00f0 segja til um hva\u00f0a samskipti \u00e1ttu s\u00e9r sta\u00f0 milli l\u00f6greglumannanna og \u00feessa einstaklings sem var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 h\u00fan var handtekin.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c9g hef nokkrar athugasemdir \u00ed tengslum vi\u00f0 \u00feetta svar.<\/p>\n<ul>\n<li>A\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u er f\u00f3lki frj\u00e1lst a\u00f0 leita r\u00e9ttar s\u00edns ef l\u00f6greglan fer offari en \u00fea\u00f0 ber sjaldan \u00e1rangur. \u00cd \u00feessu tilviki er til gott s\u00f6nnunargagn en venjulega er ekki h\u00e6gt a\u00f0 sanna a\u00f0 har\u00f0r\u00e6\u00f0i hafi veri\u00f0 beitt e\u00f0a a\u00f0 \u00e1verkar s\u00e9u tilkomnir vegna \u00f3\u00fearfa valdbeitingar.<\/li>\n<li>R\u00edkissaks\u00f3knari getur aldrei talist hlutlaus en \u00fev\u00ed mi\u00f0ur hafa \u00e1bendingar til innanr\u00edkisr\u00e1\u00f0herra, um nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 koma \u00e1 ytra eftirliti me\u00f0 l\u00f6greglunni, engan \u00e1rangur bori\u00f0.<\/li>\n<li>\u00dea\u00f0 er r\u00e9tt a\u00f0 ekki er h\u00e6gt a\u00f0 segja til um \u00fea\u00f0 hva\u00f0 haf\u00f0i gengi\u00f0 \u00e1 \u00e1\u00f0ur en konan var handtekin en m\u00e1li\u00f0 sn\u00fdst ekki um \u00fea\u00f0 heldur um \u00fea\u00f0 hvort handtakan var a) l\u00f6gleg og b) r\u00e9tt a\u00f0 henni sta\u00f0i\u00f0.<\/li>\n<\/ul>\n<h4><strong>F\u00f3r l\u00f6greglan offari?<\/strong><\/h4>\n<p>\u00dea\u00f0 er tilgangsl\u00edti\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a l\u00f6gm\u00e6ti handt\u00f6kunnar. L\u00f6greglan vir\u00f0ist hafa n\u00e6r \u00f3takmarka\u00f0 vald til a\u00f0 segja almennum borgurum fyrir verkum og \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00f3hl\u00fd\u00f0nast fyrirm\u00e6lum l\u00f6greglu telst brot gegn valdstj\u00f3rninni (sem reyndar er ekki skilgreind \u00ed l\u00f6gum.) Strangt tilteki\u00f0 m\u00e6tti l\u00f6greglan handtaka mann sem \u00f3hl\u00fd\u00f0na\u00f0ist fyrirm\u00e6lum hennar um a\u00f0 hoppa upp \u00ed rassgati\u00f0 \u00e1 s\u00e9r. Vi\u00f0 skulum samt gefa okkur a\u00f0 l\u00f6greglan hafi haft betri \u00e1st\u00e6\u00f0ur fyrir \u00feessari handt\u00f6ku. Sumir telja v\u00edst a\u00f0 konan hafi hr\u00e6kt \u00e1 l\u00f6greglu\u00fej\u00f3ninn og a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0a handt\u00f6kunnar. \u00c9g s\u00e9 \u00fea\u00f0 reyndar ekki en vel m\u00e1 vera a\u00f0 \u00fea\u00f0 sj\u00e1ist \u00e1 st\u00f3rum skj\u00e1.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 sem \u00e9g s\u00e9 hinsvegar mj\u00f6g greinilega \u00e1 myndabandinu er \u00feetta:<\/p>\n<ul>\n<li>L\u00f6greglub\u00edl er eki\u00f0 af sta\u00f0 \u00fe\u00f3tt manneskja sem er n\u00fdsta\u00f0in upp \u00far g\u00f6tunni og l\u00edtur \u00fat fyrir a\u00f0 vera \u00f6lvu\u00f0 gangi alveg upp a\u00f0 b\u00edlnum (0:21)<\/li>\n<li>B\u00edllinn ekur svo n\u00e1l\u00e6gt konunni a\u00f0 hli\u00f0arspegillinn fer utan \u00ed hana (0:24).<\/li>\n<li>L\u00f6greglu\u00fej\u00f3nn notar b\u00edlhur\u00f0ina til a\u00f0 stjaka vi\u00f0 konunni (0:28).<\/li>\n<li>Konan slagar a\u00f0 b\u00edlnum (0:33). Hur\u00f0inni er svipt upp og skellt utan \u00ed konuna. Um lei\u00f0 heyrist einhver sem fylgist me\u00f0 atvikinu segja &#8222;h\u00fan hr\u00e6kti \u00e1 hana-hann hr\u00e6ki \u00e1 hana&#8220; r\u00e9tt eins og hann s\u00e9 ekki alveg viss um hvort \u00feeirra hr\u00e6kti (0:35). \u00cd b\u00e1\u00f0um tilvikum segir hann &#8222;hr\u00e6kti \u00e1 <strong>hana<\/strong>&#8220; sem g\u00e6ti \u00e1tt anna\u00f0 hvort vi\u00f0 konuna e\u00f0a b\u00edlhur\u00f0ina.<\/li>\n<li>L\u00f6greglu\u00fej\u00f3nn snarast \u00fat \u00far b\u00edlnum en ekki til a\u00f0 athuga hvort hann hafi meitt konuna, heldur gr\u00edpur hann \u00f3\u00feyrmilega um handlegg hennar (0:36).<\/li>\n<li>Hann hendir konunni aftur \u00e1 bak, svo mj\u00f3baki\u00f0 \u00e1 henni skellur harkalega ni\u00f0ur \u00e1 st\u00e1lhandri\u00f0 \u00e1 gar\u00f0bekk (0:37).<\/li>\n<li>L\u00f6greglu\u00fej\u00f3nninn r\u00edfur konuna upp og skellir henni \u00e1 gr\u00fafu \u00ed g\u00f6tuna (0:38).<\/li>\n<li>Hann dregur hana eftir g\u00f6tunni (0:39).<\/li>\n<li>Hann \u00fer\u00edfur \u00ed handleggi hennar og \u00fevingar \u00fe\u00e1 aftur fyrir bak og um lei\u00f0 kemur annar l\u00f6greglu\u00fej\u00f3nn a\u00f0 (0:41).<\/li>\n<li>L\u00f6greglu\u00fej\u00f3nninn setur anna\u00f0 hn\u00e9\u00f0 \u00ed baki\u00f0 \u00e1 konunni og hitt hn\u00e9\u00f0 ofan \u00e1 hnakka hennar\u00a0 (0:43)<\/li>\n<li>\u00deeir f\u00e9lagar hj\u00e1lpast a\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 handj\u00e1rna konuna (0:46) og s\u00e1 sem r\u00e9\u00f0ist \u00e1 hana hv\u00edlir \u00feunga sinn \u00e1 hnj\u00e1num ofan \u00e1 henni.<\/li>\n<li>Konan er rifin \u00e1 f\u00e6tur um lei\u00f0 og j\u00e1rnin eru komin \u00e1 hana (0:52) ekkert er huga\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed hvort h\u00fan s\u00e9 meidd.<\/li>\n<li>H\u00fan er leidd a\u00f0 l\u00f6greglub\u00edlnum (0:55).<\/li>\n<li>Henni er ekki gefi\u00f0 neitt f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 st\u00edga upp \u00ed b\u00edlinn heldur er henni \u00fdtt inn \u00ed hann me\u00f0 andliti\u00f0 \u00e1 undan (0:57).<\/li>\n<\/ul>\n<p>\u00deetta atvik vekur nokkrar spurningar, m.a. \u00fe\u00e6r hvort \u00fea\u00f0 s\u00e9u venjuleg vinnubr\u00f6g\u00f0 l\u00f6greglu;<\/p>\n<ul>\n<li>a\u00f0 aka af sta\u00f0 \u00e1 me\u00f0an manneskja sem er v\u00f6lt \u00e1 f\u00f3tum og sennilega me\u00f0 skerta d\u00f3mgreind er \u00ed snertif\u00e6ri vi\u00f0 b\u00edlinn?<\/li>\n<li>a\u00f0 nota b\u00edl sem valdbeitingart\u00e6ki?<\/li>\n<li>a\u00f0 henda manneskju sem hefur fengi\u00f0 h\u00f6gg \u00e1 hrygginn \u00ed g\u00f6tuna og handj\u00e1rna hana \u00e1n \u00feess a\u00f0 huga a\u00f0 \u00e1standi hennar?<\/li>\n<li>a\u00f0 draga manneskju eftir g\u00f6tunni?<\/li>\n<li>l\u00edka manneskju sem hugsanlega er meidd?<\/li>\n<li>Eru \u00fea\u00f0 venjuleg vinnubr\u00f6g\u00f0 a\u00f0 beita l\u00edkams\u00feunga \u00e1 hrygg og hnakka til a\u00f0 halda ni\u00f0ri manneskju sem e.t.v. er me\u00f0 bakmei\u00f0sli?<\/li>\n<li>og a\u00f0 flytja burt \u00ed j\u00e1rnum manneskju sem\u00a0 hefur litla l\u00edkamsbur\u00f0i og hefur fengi\u00f0 \u00e1 sig \u00feungt h\u00f6gg sem e.t.v. hefur valdi\u00f0 ska\u00f0a?<\/li>\n<\/ul>\n<p>\u00c9g get ekki svara\u00f0 \u00fev\u00ed hvort \u00feessi vinnubr\u00f6g\u00f0 eru venjuleg en \u00e9g fullyr\u00f0i a\u00f0 l\u00f6gregluofbeldi er ekkert einsd\u00e6mi. \u00c9g \u00feekki m\u00f6rg d\u00e6mi \u00feess a\u00f0 f\u00f3lk beri \u00e1verka eftir handt\u00f6kur. \u00c9g hef or\u00f0i\u00f0 vitni a\u00f0 algj\u00f6rlega tilefnislausri handt\u00f6ku, \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 l\u00f6gregluna draga mann \u00e1 h\u00e1rinu og \u00e9g hef sj\u00e1lf or\u00f0i\u00f0 fyrir gj\u00f6rsamlega \u00f3\u00fearfri valdbeitingu af h\u00e1lfu l\u00f6greglu. L\u00f6gregluofbeldi \u00e1 s\u00e9r ekki bara sta\u00f0 \u00ed undantekningatilvikum einmitt \u00feegar myndat\u00f6kuv\u00e9l er n\u00e1l\u00e6gt, heldur oft og i\u00f0ulega og \u00feegar \u00fea\u00f0 fer fram \u00ed l\u00f6greglub\u00edl e\u00f0a fangaklefa eru engin vitni a\u00f0 \u00fev\u00ed.<\/p>\n<h4><strong>E\u00f0lileg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0<\/strong><\/h4>\n<p>Hver sem forsagan a\u00f0 \u00feessu atviki kann a\u00f0 vera, er auglj\u00f3st a\u00f0 h\u00e9r missir l\u00f6greglu\u00fej\u00f3nn stj\u00f3rn \u00e1 skapi s\u00ednu. \u00c9g hef s\u00e9\u00f0 \u00fev\u00ed fleygt a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 e\u00f0lilegt a\u00f0 ma\u00f0ur missi stj\u00f3rn \u00e1 s\u00e9r \u00feegar einhver hr\u00e6kir \u00e1 hann. \u00c9g tek undir \u00fea\u00f0 sj\u00f3narmi\u00f0, \u00fea\u00f0 er \u00e1kaflega mannlegt a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 vanvir\u00f0ingu me\u00f0 rei\u00f0i (og hugsanlega var konan einnig a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 sl\u00e6mri framkomu). \u00dea\u00f0 eru jafnvel e\u00f0lileg en engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur \u00f3vi\u00f0unandi vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 a\u00f0 gr\u00edpa til ofbeldis.<\/p>\n<p>Hversvegna heg\u00f0a menn s\u00e9r svona? Er \u00fea\u00f0 a\u00f0 einhverju leyti af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir vita a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 \u00feeir \u00feurfi a\u00f0 svara fyrir \u00fea\u00f0? Getur veri\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk sem f\u00e6r miki\u00f0 kikk \u00fat \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00fdna vald sitt s\u00e9 \u00f6\u00f0ru l\u00edklegra til a\u00f0 vilja vinna vi\u00f0 l\u00f6gg\u00e6slu? Elur l\u00f6ggan hrottaskap upp \u00ed starfsf\u00f3lki s\u00ednu? Kannski eitthva\u00f0 af \u00feessu, en \u00e9g held l\u00edka a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 bara frekar e\u00f0lilegt a\u00f0 menn sem alla daga standa \u00ed erfi\u00f0um samskiptum vi\u00f0 f\u00f3lk \u00ed misannarlegu \u00e1standi, oft f\u00f3lk sem ber enga vir\u00f0ingu fyrir \u00feeim og \u00fev\u00ed valdi sem \u00feeim er gefi\u00f0, missi stj\u00f3rn \u00e1 s\u00e9r.<\/p>\n<p>Og nei, \u00e9g er ekki a\u00f0 segja a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00ed lagi, s\u00ed\u00f0ur en svo. L\u00f6greglan hefur einkaleyfi \u00e1 ofbeldi og \u00fea\u00f0 einkaleyfi setur henni mj\u00f6g \u00feunga \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 her\u00f0ar. L\u00f6greglan hefur sk\u00fdr fyrirm\u00e6li um a\u00f0 beita aldrei meira valdi en nau\u00f0synlegt er og flestir eru samm\u00e1la um a\u00f0 misbeiting l\u00f6gregluvalds s\u00e9 me\u00f0 \u00f6llu \u00f3l\u00ed\u00f0andi. Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur er l\u00f6gregluofbeldi nokku\u00f0 sem b\u00faast m\u00e1 vi\u00f0, vegna \u00feess a\u00f0 hva\u00f0 sem \u00f6llum reglum l\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e1 eru l\u00f6greglu\u00fej\u00f3nar ekkert si\u00f0fer\u00f0ilega yfir anna\u00f0 f\u00f3lk hafnir. L\u00f6greglu\u00fej\u00f3nar s\u00fdna af s\u00e9r hroka, missa stj\u00f3rn \u00e1 skapi s\u00ednu, misbeita valdi s\u00ednu og reyna a\u00f0 lj\u00faga sig \u00fat \u00far vandr\u00e6\u00f0um r\u00e9tt eins og anna\u00f0 f\u00f3lk. Og einmitt vegna \u00feess a\u00f0 l\u00f6ggur eru mannlegar eru valdbeitingarheimildir l\u00f6greglu vafasamar og \u00fatheimta st\u00f6\u00f0ugt eftirlit og st\u00f6\u00f0uga gagnr\u00fdni. Og einmitt vegna \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 er manninum e\u00f0lilegt a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 rei\u00f0i og \u00f3tta me\u00f0 \u00f3skynsamlegum a\u00f0fer\u00f0um, \u00e6tti aldrei, aldrei. aldrei a\u00f0 koma til \u00e1lita a\u00f0 leyfa l\u00f6greglunni a\u00f0 bera rafbyssur e\u00f0a \u00f6nnur h\u00e6ttulegri vopn.<\/p>\n<p><iframe loading=\"lazy\" width=\"533\" height=\"400\" src=\"https:\/\/www.youtube.com\/embed\/mvGtvnudSQ8?feature=oembed\" frameborder=\"0\" allowfullscreen><\/iframe><\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/blog.pressan.is\/evahauks\/2013\/07\/08\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\">Einnig birt h\u00e9r<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrstu vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6greglunnar vi\u00f0 hinu umtala\u00f0a myndbandi voru umm\u00e6li \u00e1 \u00edmyndarrunkss\u00ed\u00f0u L\u00f6greglunnar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu.\u00a0 \u00dear er bent \u00e1 a\u00f0 f\u00f3lki s\u00e9 frj\u00e1lst a\u00f0 leita r\u00e9ttar s\u00edns og sta\u00f0fest a\u00f0 r\u00edkissaks\u00f3knaraemb\u00e6tti\u00f0 muni sko\u00f0a m\u00e1li\u00f0. Einnig segir:<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":"","_links_to":"","_links_to_target":""},"categories":[1],"tags":[309],"class_list":["post-8271","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-pistlar","tag-logregluofbeldi"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.3 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar - Pistlar Evu<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar - Pistlar Evu\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Fyrstu vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6greglunnar vi\u00f0 hinu umtala\u00f0a myndbandi voru umm\u00e6li \u00e1 \u00edmyndarrunkss\u00ed\u00f0u L\u00f6greglunnar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu.\u00a0 \u00dear er bent \u00e1 a\u00f0 f\u00f3lki s\u00e9 frj\u00e1lst a\u00f0 leita r\u00e9ttar s\u00edns og sta\u00f0fest a\u00f0 r\u00edkissaks\u00f3knaraemb\u00e6tti\u00f0 muni sko\u00f0a m\u00e1li\u00f0. Einnig segir:\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Pistlar Evu\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2013-07-08T22:36:16+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-08-15T17:51:24+00:00\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"admin\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"7 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"admin\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46\"},\"headline\":\"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar\",\"datePublished\":\"2013-07-08T22:36:16+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-15T17:51:24+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\\\/\"},\"wordCount\":1376,\"keywords\":[\"L\u00f6gregluofbeldi\"],\"articleSection\":[\"Pistlar um samf\u00e9lagsm\u00e1l\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\\\/\",\"name\":\"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar - Pistlar Evu\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#website\"},\"datePublished\":\"2013-07-08T22:36:16+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-15T17:51:24+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\\\/\"]}]},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/\",\"name\":\"Pistlar Evu\",\"description\":\"\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46\",\"name\":\"admin\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/author\\\/admin\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar - Pistlar Evu","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar - Pistlar Evu","og_description":"Fyrstu vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6greglunnar vi\u00f0 hinu umtala\u00f0a myndbandi voru umm\u00e6li \u00e1 \u00edmyndarrunkss\u00ed\u00f0u L\u00f6greglunnar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu.\u00a0 \u00dear er bent \u00e1 a\u00f0 f\u00f3lki s\u00e9 frj\u00e1lst a\u00f0 leita r\u00e9ttar s\u00edns og sta\u00f0fest a\u00f0 r\u00edkissaks\u00f3knaraemb\u00e6tti\u00f0 muni sko\u00f0a m\u00e1li\u00f0. Einnig segir:","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/","og_site_name":"Pistlar Evu","article_published_time":"2013-07-08T22:36:16+00:00","article_modified_time":"2017-08-15T17:51:24+00:00","author":"admin","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"7 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/"},"author":{"name":"admin","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46"},"headline":"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar","datePublished":"2013-07-08T22:36:16+00:00","dateModified":"2017-08-15T17:51:24+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/"},"wordCount":1376,"keywords":["L\u00f6gregluofbeldi"],"articleSection":["Pistlar um samf\u00e9lagsm\u00e1l"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/","name":"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar - Pistlar Evu","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#website"},"datePublished":"2013-07-08T22:36:16+00:00","dateModified":"2017-08-15T17:51:24+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/"]}]},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/skiljanleg-vidbrogd-loggunnar\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Skiljanleg vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 l\u00f6ggunnar"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/","name":"Pistlar Evu","description":"","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46","name":"admin","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/author\/admin\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8271","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8271"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8271\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":11150,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8271\/revisions\/11150"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8271"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8271"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8271"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}