{"id":2988,"date":"2012-09-19T12:23:28","date_gmt":"2012-09-19T12:23:28","guid":{"rendered":"http:\/\/www.pistillinn.is\/?p=2988"},"modified":"2017-09-08T14:42:56","modified_gmt":"2017-09-08T14:42:56","slug":"af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/","title":{"rendered":"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar"},"content":{"rendered":"<p>\u00c9g er ekki b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 svar vi\u00f0 <a href=\"http:\/\/www.pistillinn.is\/?p=2914\">br\u00e9fi m\u00ednu til Fangelsism\u00e1lastofnunar<\/a> sem \u00e9g birti s\u00ed\u00f0asta \u00a0m\u00e1nudagskv\u00f6ld. \u00c9g held \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9, me\u00f0 hj\u00e1lp athugulla manna, b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 botn \u00ed \u00fea\u00f0 hversvegna Baldur Gu\u00f0laugsson er kominn \u00ed endurh\u00e6fingu \u00e1 l\u00f6gmannsstofu eftir a\u00f0eins h\u00e1lft \u00e1r \u00ed fangelsi, \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 tveggja \u00e1ra \u00f3skilor\u00f0sbundinn fangelsisd\u00f3m. Vandinn liggur \u00ed hugtakanotkun Fangelsism\u00e1lastofnunar en hugtaki\u00f0 &#8222;afpl\u00e1nunart\u00edmi&#8220; vir\u00f0ist hafa a.m.k. tv\u00e6r \u00f3l\u00edkar merkingar.<!--more--><\/p>\n<p><strong>Afpl\u00e1nunart\u00edmi er allt anna\u00f0 en d\u00f3mst\u00edminn<\/strong><\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt <a href=\"http:\/\/www.fangelsi.is\/media\/fullnusta\/Reglur_um_afplanun_a_Afangaheimili_Verndar_Gildistaka_11._september_2009.pdf\">almennum reglum<\/a>\u00a0\u00fearf ma\u00f0ur a\u00f0 hafa seti\u00f0 \u00ed fangelsi \u00feri\u00f0ja hluta\u00a0afpl\u00e1nunart\u00edmans\u00a0til a\u00f0 f\u00e1 inni \u00e1 \u00e1fangaheimilinu Vernd. Ma\u00f0ur nokkur sem hefur legi\u00f0 yfir reglunum benti m\u00e9r \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed g\u00e6rkv\u00f6ld a\u00f0\u00a0<strong>afpl\u00e1nunart\u00edmi<\/strong>\u00a0er alls ekki \u00fea\u00f0 sama og s\u00e1 t\u00edmi sem d\u00f3murinn hlj\u00f3\u00f0ar upp \u00e1. \u00dear liggur hundurinn grafinn. Svo vir\u00f0ist sem &#8222;afpl\u00e1nunart\u00edminn&#8220;\u00a0s\u00e9 s\u00e1 t\u00edmi sem eftir er, \u00feegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 draga fr\u00e1 d\u00f3mnum \u00feann hluta sem fanginn afpl\u00e1nar \u00e1 Vernd og undir rafr\u00e6nu eftirliti.<\/p>\n<p>\u00cd Baldurs tilviki er &#8222;afpl\u00e1nunart\u00edminn&#8220; \u00e1tj\u00e1n m\u00e1nu\u00f0ir. (24 m\u00ednus 6, \u00fear af 4 \u00e1 Vernd og 2 me\u00f0 eftirlitsb\u00fana\u00f0.) Samt sem \u00e1\u00f0ur er tala\u00f0 um vist \u00e1 Vernd og undir rafr\u00e6nu eftirliti sem &#8222;<a href=\"http:\/\/www.fangelsi.is\/fullnusta-refsidoma\/oskilordsbundid\/afplanun-utan-fangelsa\/vernd\/\">afpl\u00e1nun utan fangelsis<\/a>&#8222;. \u00a0Fanginn er \u00feannig \u00ed afpl\u00e1nun \u00e1 Vernd og afpl\u00e1nun undir rafr\u00e6nu eftirliti, eftir a\u00f0 afpl\u00e1nunart\u00edma l\u00fdkur. Finnst einhverjum \u00feetta skr\u00fdti\u00f0?<\/p>\n<p>Til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 fara \u00e1 Vernd, \u00feurfti\u00a0Baldur a\u00f0 sitja\u00a0\u00feri\u00f0jung \u00feessa \u00e1tj\u00e1n m\u00e1na\u00f0a afpl\u00e1nunart\u00edma (en ekki \u00feri\u00f0jung af tuttugu og fj\u00f3rum m\u00e1nu\u00f0um) \u00ed opna fangelsinu a\u00f0 Kv\u00edabryggju. \u00dea\u00f0 eru sex m\u00e1nu\u00f0ir. Hann f\u00e6r a\u00f0 afpl\u00e1na fj\u00f3ra m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 Vernd, sem\u00a0er \u00e1fangaheimili, \u00e6tla\u00f0 \u00feeim sem \u00feurfa \u00e1 h\u00e6gri a\u00f0l\u00f6gun a\u00f0 halda. A\u00f0rir starfsmenn l\u00f6gmannsstofunnar LEX virka \u00feannig sem nokkurskonar stu\u00f0ningsh\u00f3pur \u00e1 me\u00f0an hann er a\u00f0 f\u00f3ta sig \u00ed samf\u00e9lagi \u00e6rlegra borgara. \u00deess m\u00e1 v\u00e6nta a\u00f0 \u00feeir f\u00e9lagar s\u00e9u \u00a0Baldri hei\u00f0vir\u00f0 fyrirmynd og lei\u00f0beini honum um g\u00f3\u00f0a vi\u00f0skiptah\u00e6tti og \u00fe\u00e6r si\u00f0fer\u00f0isreglur sem hann \u00fearf a\u00f0 n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1, til \u00feess a\u00f0 s\u00fdna framvegis r\u00e1\u00f0vendni \u00ed hv\u00edvetna, a.m.k. \u00ed starfi s\u00ednu sem l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur.\u00a0Afpl\u00e1nun l\u00fdkur svo me\u00f0 rafr\u00e6nu eftirliti, sem fyrir \u00feann sem hefur fengi\u00f0 tveggja \u00e1ra d\u00f3m getur sta\u00f0i\u00f0 \u00ed allt a\u00f0 tvo m\u00e1nu\u00f0i. Skilyr\u00f0i \u00feess m\u00e1 sj\u00e1 \u00e1 \u00a0<a href=\"http:\/\/www.fangelsi.is\/rafraent-eftirlit\/\">vef Fangelsism\u00e1lastofnunar<\/a>.<\/p>\n<p><strong>Afpl\u00e1nunart\u00edmi er ekki s\u00e1 t\u00edmi sem fangi er \u00ed afpl\u00e1nun<\/strong><\/p>\n<p>Semsagt,\u00a0<strong>afpl\u00e1nunart\u00edmi<\/strong>\u00a0Baldurs er \u00e1tj\u00e1n m\u00e1nu\u00f0ir. Hann situr \u00ed fangelsi \u00ed sex m\u00e1nu\u00f0i, afpl\u00e1nar fj\u00f3ra m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 Vernd og tvo undir rafr\u00e6nu eftirliti. Og ka-tsja-b\u00famm- \u00fe\u00e1 er s\u00e1 t\u00edmi sem hann er \u00ed afpl\u00e1nun allt \u00ed einu or\u00f0inn t\u00f3lf m\u00e1nu\u00f0ir en ekki \u00e1tj\u00e1n.<\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt reglum Fangelsism\u00e1lastofnunar geta fangar s\u00f3tt um reynslulausn eftir a\u00f0 hafa seti\u00f0 af s\u00e9r tvo \u00feri\u00f0ju hluta d\u00f3ms en \u00ed \u00feeim tilvikum sem afturbatinn lukkast s\u00e9rlega vel (eins og hj\u00e1 Baldri) geta menn jafnvel fengi\u00f0 reynslulausn eftir a\u00f0 hafa afpl\u00e1na\u00f0 helming t\u00edmans. Ef afpl\u00e1nunart\u00edminn er a\u00f0eins t\u00f3lf m\u00e1nu\u00f0ir hl\u00fdtur \u00fea\u00f0 a\u00f0 teljast n\u00fdst\u00e1rleg a\u00f0fer\u00f0 a\u00f0 reikna\u00a0t\u00edmann sem Baldur \u00feurfti a\u00f0 vera \u00e1 Kv\u00edabryggju \u00e1\u00f0ur en hann komst \u00e1 Vernd \u00fat fr\u00e1 \u00e1tj\u00e1n m\u00e1nu\u00f0um. Ef reikna\u00f0 v\u00e6ri me\u00f0 a\u00f0 Baldur afpl\u00e1na\u00f0i t\u00f3lf m\u00e1nu\u00f0i fengi hann a\u00f0eins \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 Vernd, einn undir rafr\u00e6nu eftirliti og s\u00e6ti \u00e1tta m\u00e1nu\u00f0i \u00ed almennu fangelsi. Afpl\u00e1nunart\u00edmi merkir \u00feannig eitthva\u00f0 allt anna\u00f0 en s\u00e1 t\u00edmi sem fangi afpl\u00e1nar d\u00f3m.<\/p>\n<p>Ennfremur er athyglisvert a\u00f0 samkv\u00e6mt skilningi Fangelsism\u00e1lastofnunar eru \u00feessir fj\u00f3rir m\u00e1nu\u00f0ir Baldurs \u00e1 Vernd\u00a0<a href=\"http:\/\/www.fangelsi.is\/media\/fullnusta\/Reglur_um_afplanun_a_Afangaheimili_Verndar_Gildistaka_11._september_2009.pdf\">&#8222;s\u00ed\u00f0asti hluti&#8220;<\/a>\u00a0afpl\u00e1nunart\u00edmans en svo\u00a0<a href=\"http:\/\/www.fangelsi.is\/rafraent-eftirlit\/\">l\u00fdkur hann afpl\u00e1nun<\/a>\u00a0undir rafr\u00e6nu eftirliti, eftir a\u00f0 hann er b\u00fainn a\u00f0 sitja s\u00ed\u00f0asta t\u00edmann af s\u00e9r \u00e1 Vernd. Fyrst kemur \u00feannig almenn refsivist, svo s\u00ed\u00f0asti hluti afpl\u00e1nunar og eftir \u00fea\u00f0 afpl\u00e1nunarlok (sem er \u00fe\u00e1 l\u00edklega allras\u00ed\u00f0asti t\u00edminn?) og a\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu reynslulausn. \u00cd Baldurs tilviki er &#8222;s\u00ed\u00f0asti hluti afpl\u00e1nunar&#8220; sj\u00f6undi til t\u00edundi m\u00e1nu\u00f0ur af t\u00f3lf m\u00e1na\u00f0a afpl\u00e1nun. Er \u00e9g ein um a\u00f0 finnast eitthva\u00f0 undarlegt vi\u00f0 \u00feessa hugtakanotkun?<\/p>\n<p><strong>Hversu langur er &#8222;s\u00ed\u00f0asti hluti&#8220; afpl\u00e1nunar?<\/strong><\/p>\n<p>\u00cd r\u00e9ttarr\u00edki er tali\u00f0 mikilv\u00e6gt a\u00f0 menn s\u00e9u jafnir fyrir l\u00f6gum og a\u00f0 me\u00f0fer\u00f0 \u00e1 f\u00f6ngum litist ekki af f\u00e9lagslegum a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00feeirra, tengslum e\u00f0a \u00f6\u00f0rum \u00fe\u00e1ttum sem eru heg\u00f0un \u00feeirra \u00f3vi\u00f0komandi. \u00deessvegna m\u00e1 ganga \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi hugvitssamlega reikningsa\u00f0fer\u00f0\u00a0s\u00e9 almennt vi\u00f0h\u00f6f\u00f0 \u00ed fangelsiskerfinu. \u00deetta st\u00f3rmerkilega upp\u00e1t\u00e6ki Fangelsism\u00e1lastofnunar, a\u00f0 reikna afpl\u00e1nunart\u00edma \u00feegar b\u00fai\u00f0 er a\u00f0 draga fr\u00e1 \u00feann t\u00edma sem afpl\u00e1na\u00f0ur er \u00e1 \u00e1fangaheimili og undir rafr\u00e6nu eftirliti, b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1 t\u00f6luver\u00f0a mildi. Ma\u00f0ur sem f\u00e6r \u00e1rs d\u00f3m fengi samkv\u00e6mt reglunum \u00ferj\u00e1 m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 Vernd og einn undir rafr\u00e6nu eftirliti. \u00de\u00e1 eru eftir \u00e1tta m\u00e1nu\u00f0ir og af \u00feeim er \u00feri\u00f0jungurinn sem hann \u00fearf til a\u00f0 komast inn \u00e1 Vernd 80 dagar. Samkv\u00e6mt \u00feeirrri reikingsreglu sem notu\u00f0 er \u00ed tilviki Baldurs, situr s\u00e1 sem f\u00e6r eins \u00e1rs d\u00f3m \u00feannig \u00ed almennu fangelsi skemur en \u00feann t\u00edma sem hann er \u00e1 \u00e1fangaheimili. \u00c6tli s\u00fa s\u00e9 raunin?<\/p>\n<p>Hversu langur getur &#8222;s\u00ed\u00f0asti hluti&#8220; afpl\u00e1nunar annars or\u00f0i\u00f0? Samkv\u00e6mt reglum Verndar en l\u00e1gmarkst\u00edminn \u00e1 Vernd \u00ferj\u00e1r vikur. Ef ma\u00f0ur f\u00e6r t.d. \u00ferj\u00e1t\u00edu daga d\u00f3m, situr hann \u00fe\u00e1 \u00ed almennu fangelsi \u00ed t\u00edu daga og fer svo \u00e1 Vernd til h\u00e6grar a\u00f0l\u00f6gunar \u00ed \u00ferj\u00e1r vikur? M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 eitthva\u00f0 svo \u00f3tr\u00falegt en er nokku\u00f0 \u00ed l\u00f6gum sem m\u00e6lir \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed? \u00dea\u00f0 v\u00e6ri n\u00fa gott ef einhver sn\u00f6furmannlegur bla\u00f0ama\u00f0ur t\u00e6ki a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 leita svara vi\u00f0 \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p><strong>Hversu oft m\u00e1 endurreikna afpl\u00e1nunart\u00edmann?<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g \u00e1 ekki von \u00e1 a\u00f0 Fangelsism\u00e1lastofnun hafi n\u00fdtt m\u00f6guleikana \u00e1 endur\u00fareikningi a\u00f0 meira marki en \u00ed d\u00e6mi Baldurs en me\u00f0 \u00feeirri a\u00f0fer\u00f0 a\u00f0 reikna t\u00edmann \u00e1 Vernd \u00fat fr\u00e1 \u00feri\u00f0jungi &#8222;afpl\u00e1nunart\u00edmans&#8220; enda \u00fe\u00f3tt raunverulegur t\u00edmi sem fangi er \u00ed afpl\u00e1nun s\u00e9 kominn langt fr\u00e1 upphaflegri forsendu (sem er d\u00f3murinn sj\u00e1lfur) v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 teygja sig ansi langt.\u00a0T\u00f6kum Baldur sem d\u00e6mi:<\/p>\n<p>Baldur er b\u00fainn a\u00f0 f\u00e1 fyrsta \u00fatreikning og afpl\u00e1nunart\u00edminn, sem byrja\u00f0i \u00ed \u00e1tj\u00e1n m\u00e1nu\u00f0um er \u00a0or\u00f0inn t\u00f3lf m\u00e1nu\u00f0ir. H\u00f6ldum \u00e1fram a\u00f0 reikna me\u00f0 a\u00f0fer\u00f0 Fangelsism\u00e1lastofnunar. Baldur \u00e6tti samkv\u00e6mt n\u00fdja afpl\u00e1nunart\u00edmanum a\u00f0 sitja \u00ed almennu fangelsi \u00feri\u00f0jung \u00feess t\u00edma e\u00f0a sem svarar fj\u00f3rum m\u00e1nu\u00f0um. Svo koma fj\u00f3rir \u00e1 Vernd og tveir undir rafr\u00e6nu eftirliti, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er enn\u00fe\u00e1 reikna\u00f0 \u00fat fr\u00e1 tuttugu og fj\u00f3rum m\u00e1nu\u00f0um. \u00dear me\u00f0 er hann kominn ni\u00f0ur \u00ed t\u00edu m\u00e1nu\u00f0i, sem vi\u00f0 g\u00e6tum svo endurreikna\u00f0 og endurreikna\u00f0 aftur.<\/p>\n<p>Miki\u00f0 er r\u00e6tt um \u00fe\u00f6rfina \u00e1 fleiri fangelsisbyggingum \u00e1 \u00cdslandi. \u00dea\u00f0 er d\u00fdrt a\u00f0 byggja fangelsi og \u00fea\u00f0 er d\u00fdrt a\u00f0 reka \u00feau. En \u00e9g er b\u00fain a\u00f0 finna lausnina. \u00dea\u00f0 \u00fearf ekkert a\u00f0 byggja fleiri fangelsi, \u00fea\u00f0 \u00fearf bara a\u00f0 n\u00fdta reikingsreglur Fangelsism\u00e1lastofnunar betur.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g er ekki b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 svar vi\u00f0 br\u00e9fi m\u00ednu til Fangelsism\u00e1lastofnunar sem \u00e9g birti s\u00ed\u00f0asta \u00a0m\u00e1nudagskv\u00f6ld. \u00c9g held \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9, me\u00f0 hj\u00e1lp athugulla manna, b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 botn \u00ed \u00fea\u00f0 hversvegna Baldur Gu\u00f0laugsson er kominn \u00ed endurh\u00e6fingu &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":"","_links_to":"","_links_to_target":""},"categories":[15,1],"tags":[720],"class_list":["post-2988","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-andof-og-yfirvald","category-pistlar","tag-fangelsismal"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.5 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar - Pistlar Evu<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar - Pistlar Evu\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"\u00c9g er ekki b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 svar vi\u00f0 br\u00e9fi m\u00ednu til Fangelsism\u00e1lastofnunar sem \u00e9g birti s\u00ed\u00f0asta \u00a0m\u00e1nudagskv\u00f6ld. \u00c9g held \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9, me\u00f0 hj\u00e1lp athugulla manna, b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 botn \u00ed \u00fea\u00f0 hversvegna Baldur Gu\u00f0laugsson er kominn \u00ed endurh\u00e6fingu &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Pistlar Evu\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2012-09-19T12:23:28+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-09-08T14:42:56+00:00\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"admin\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"7 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"admin\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46\"},\"headline\":\"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar\",\"datePublished\":\"2012-09-19T12:23:28+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-08T14:42:56+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\\\/\"},\"wordCount\":1314,\"keywords\":[\"Fangelsism\u00e1l\"],\"articleSection\":[\"And\u00f3f og yfirvald\",\"Pistlar um samf\u00e9lagsm\u00e1l\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\\\/\",\"name\":\"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar - Pistlar Evu\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#website\"},\"datePublished\":\"2012-09-19T12:23:28+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-08T14:42:56+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\\\/\"]}]},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/\",\"name\":\"Pistlar Evu\",\"description\":\"\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46\",\"name\":\"admin\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/author\\\/admin\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar - Pistlar Evu","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar - Pistlar Evu","og_description":"\u00c9g er ekki b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 svar vi\u00f0 br\u00e9fi m\u00ednu til Fangelsism\u00e1lastofnunar sem \u00e9g birti s\u00ed\u00f0asta \u00a0m\u00e1nudagskv\u00f6ld. \u00c9g held \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g s\u00e9, me\u00f0 hj\u00e1lp athugulla manna, b\u00fain a\u00f0 f\u00e1 botn \u00ed \u00fea\u00f0 hversvegna Baldur Gu\u00f0laugsson er kominn \u00ed endurh\u00e6fingu &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/","og_site_name":"Pistlar Evu","article_published_time":"2012-09-19T12:23:28+00:00","article_modified_time":"2017-09-08T14:42:56+00:00","author":"admin","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"7 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/"},"author":{"name":"admin","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46"},"headline":"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar","datePublished":"2012-09-19T12:23:28+00:00","dateModified":"2017-09-08T14:42:56+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/"},"wordCount":1314,"keywords":["Fangelsism\u00e1l"],"articleSection":["And\u00f3f og yfirvald","Pistlar um samf\u00e9lagsm\u00e1l"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/","name":"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar - Pistlar Evu","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#website"},"datePublished":"2012-09-19T12:23:28+00:00","dateModified":"2017-09-08T14:42:56+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/"]}]},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/af-hugvitssamlegum-reikningsadferdum-fangelsismalastofnunar\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Af hugvitssamlegum reikningsa\u00f0fer\u00f0um Fangelsism\u00e1lastofnunar"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/","name":"Pistlar Evu","description":"","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/1a27d7aee01469adf3180f8fd9e72c46","name":"admin","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/author\/admin\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2988","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2988"}],"version-history":[{"count":2,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2988\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":12765,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2988\/revisions\/12765"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2988"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2988"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2988"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}