{"id":13386,"date":"2011-12-18T23:04:03","date_gmt":"2011-12-18T23:04:03","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/?p=13386"},"modified":"2017-09-22T23:26:20","modified_gmt":"2017-09-22T23:26:20","slug":"saga-strokuthraels-4-hluti","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/","title":{"rendered":"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti"},"content":{"rendered":"<p><strong>Fl\u00f3ttinn<\/strong><br \/>\n<a href=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2011\/12\/leysingar-2.jpeg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignright\" title=\"leysingjar 2\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2011\/12\/leysingar-2.jpeg\" alt=\"\" width=\"259\" height=\"195\" \/><\/a>Meirihluti svartra manna \u00ed M\u00e1ritan\u00edu eru \u00fer\u00e6lar. A\u00f0 v\u00edsu hefur \u00fer\u00e6lasala veri\u00f0 \u00f6l\u00f6gleg \u00fear fr\u00e1 \u00e1rinu 1981 en \u00fe\u00f3tt opnir \u00fer\u00e6lamarka\u00f0ir t\u00ed\u00f0kist ekki er hef\u00f0in fyrir erf\u00f0a\u00fer\u00e6lum mj\u00f6g sterk og tilraunir mannr\u00e9ttindasamtaka til a\u00f0 sporna gegn \u00fer\u00e6lahaldi hafa litlu skila\u00f0. \u00der\u00e6lahald var ekki gert refsivert fyrr en 2007 en enn\u00fe\u00e1 hefur enginn d\u00f3mur falli\u00f0 vegna \u00fer\u00e6lahalds.<!--more--><\/p>\n<p>\u00cd borgunum eru \u00fer\u00e6lar kalla\u00f0ir vinnuf\u00f3lk en \u00feeir f\u00e1 ekki \u00f6nnur laun en f\u00e6\u00f0i, h\u00fasn\u00e6\u00f0i og \u00ed sk\u00e1rsta falli sm\u00e1narlega vasapeninga. Enda \u00fe\u00f3tt \u00feeim s\u00e9 a\u00f0 nafninu til frj\u00e1lst a\u00f0 fara burt, r\u00edkir samkomulag milli h\u00fasb\u00e6nda um a\u00f0 r\u00e1\u00f0a ekki \u00fer\u00e6la annarra \u00ed vinnu. \u00deeim er markvisst haldi\u00f0 \u00ed f\u00e1fr\u00e6\u00f0i, b\u00e6\u00f0i um r\u00e9ttindi s\u00edn og allt anna\u00f0 sem g\u00e6ti gagnast \u00feeim og \u00feeir sem velja frelsi\u00f0 b\u00faa oft vi\u00f0 algera \u00f6rbirg\u00f0, \u00ed raun l\u00edti\u00f0 sk\u00e1rri a\u00f0st\u00e6\u00f0ur en sem \u00fer\u00e6lar.<\/p>\n<div style=\"text-align: left;\">\n<p><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/leysingi.jpeg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter size-full wp-image-2208\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/leysingi.jpeg\" alt=\"\" width=\"475\" height=\"328\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/leysingi.jpeg 475w, https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/leysingi-300x207.jpeg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 475px) 100vw, 475px\" \/><\/a>Ey\u00f0imerkur\u00fer\u00e6lar eiga enn\u00fe\u00e1 minni m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 komast undan \u00fer\u00e6ld\u00f3mnum en borgar\u00fer\u00e6lar. \u00deeir eru enn verr uppl\u00fdstir, enn\u00fe\u00e1 ne\u00f0ar \u00ed vir\u00f0ingar-stiganum og li\u00f0smenn mannr\u00e9ttindasamtaka eiga mun erfi\u00f0ara me\u00f0 a\u00f0 a\u00f0sto\u00f0a \u00fe\u00e1. Myndirnar h\u00e9r a\u00f0 ofan\u00a0 s\u00fdna l\u00edf leysingja \u00ed Nouakchott, h\u00f6fu\u00f0borg M\u00e1ritan\u00edu<\/p>\n<p>\u00dear sem gr\u00f3\u00f0ur og vatnslindir endurn\u00fdjast seint \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, \u00feurfa hir\u00f0ingjasamf\u00e9l\u00f6g a\u00f0 flytja sig \u00far sta\u00f0 \u00e1 nokkurra m\u00e1na\u00f0a fresti. Mouhamed f\u00e6ddist \u00ed \u00feeim hluta M\u00e1ritan\u00edu sem liggur a\u00f0 Senegal en \u00e1 \u00feeim tveimur \u00e1ratugum sem hann haf\u00f0i lifa\u00f0, haf\u00f0i samf\u00e9lagi\u00f0 fer\u00f0ast langa lei\u00f0 og n\u00fa var hann staddur n\u00e6r\u00a0 Nouadhibou, mun nor\u00f0ar \u00ed landinu. Foreldrar hans voru l\u00e1tnir, vinnuharkan enn\u00fe\u00e1 verri en \u00e1\u00f0ur og ofbeldi\u00f0 af h\u00e1lfu h\u00fasb\u00f3ndans j\u00f3kst \u00feegar systkinin \u00f6nnu\u00f0u ekki vinnunni \u00e1 eigin sp\u00fdtur.<\/p>\n<p>Eitt sinn var Mouhamed barinn svo illa \u00ed andliti\u00f0 a\u00f0 tv\u00e6r framtennur brotnu\u00f0u \u00far honum. Barsm\u00ed\u00f0ar voru svosem engin n\u00fdlunda en \u00e1standi\u00f0 haf\u00f0i versna\u00f0 og hann var hann or\u00f0inn hr\u00e6ddur um l\u00edf sitt og systur sinnar. Hann haf\u00f0i oft hugsa\u00f0 um \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0an fa\u00f0ir hans d\u00f3 en n\u00fa var hann \u00e1kve\u00f0inn. Hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 strj\u00faka. Hann hef\u00f0i ekki geta\u00f0 yfirgefi\u00f0 foreldra s\u00edna og \u00fea\u00f0 kom ekki til greina a\u00f0 fara og skilja systurina eftir eina en hann tr\u00fa\u00f0i \u00fev\u00ed hreinlega ekki upp \u00e1 Gu\u00f0 a\u00f0 hann myndi senda hann til Helv\u00edtis og hann vissi a\u00f0 til v\u00e6ri betra l\u00edf. \u00dea\u00f0 hlyti a\u00f0 vera einhver lei\u00f0 til a\u00f0 koma \u00feeim b\u00e1\u00f0um undan.<\/p>\n<p>Hann f\u00e9kk vin sinn til a\u00f0 g\u00e6ta hjar\u00f0arinnar \u00e1 me\u00f0an hann ger\u00f0i s\u00e9r fer\u00f0 til sm\u00e1b\u00e6jar \u00ed n\u00e1grenninu.\u00a0 \u00dear komst hann \u00ed samband vi\u00f0 frj\u00e1lsa svarta menn sem s\u00f6g\u00f0u honum a\u00f0 \u00ed borginni Nouadhibou v\u00e6ri f\u00f3lk sem hj\u00e1lpa\u00f0i storku\u00fer\u00e6lum. Hann skildi systur s\u00edna eftir me\u00f0 hj\u00f6r\u00f0ina, rei\u00f0 \u00falfalda langlei\u00f0ina til\u00a0Nouadhibou, batt hann og ba\u00f0 til Gu\u00f0s um a\u00f0 hann yr\u00f0i \u00fear enn \u00feegar hann k\u00e6mi til baka. \u00cd\u00a0Nouadhibou fann hann mann sem honum haf\u00f0i veri\u00f0 bent \u00e1 a\u00f0 leita til. Ni\u00f0ursta\u00f0a samtals \u00feeirra var s\u00fa a\u00f0 ef Mouhamed g\u00e6ti \u00fatvega\u00f0 einn \u00falfalda til a\u00f0 standa staum af fer\u00f0akostna\u00f0i, g\u00e6ti vi\u00f0m\u00e6landinn komi\u00f0 systur hans til kunningjaf\u00f3lks s\u00edns \u00ed Senegal og Mouhamed sj\u00e1lfum til Sp\u00e1nar. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri raunh\u00e6fasta lei\u00f0in til a\u00f0 koma \u00feeim b\u00e1\u00f0um \u00ed \u00f6rugga h\u00f6fn.<\/p>\n<p>\u00c9g veit ekki hvort velgj\u00f6r\u00f0arf\u00f3lk Mouhameds og systur hans, \u00ed Nouadhibou, tilheyrir bara einni fj\u00f6lskyldu e\u00f0a hvort um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a skipulag\u00f0a andspyrnuhreyfingu. \u00dea\u00f0 sem \u00e9g veit er a\u00f0 nokkrum d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar kvaddi Mouhamed systur s\u00edna og horf\u00f0i \u00e1 eftir henni \u00feegar h\u00fan rei\u00f0 einum af \u00falf\u00f6ldum h\u00fasb\u00f3ndans \u00ed \u00e1tt til Nouadhibou. Mouhamed var\u00f0 eftir, b\u00e6\u00f0i af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var ekki h\u00e6gt a\u00f0 \u00fatvega honum far til Sp\u00e1nar strax og \u00fea\u00f0 yr\u00f0i \u00e1h\u00e6ttusamara a\u00f0 leynast \u00ed borginni ef \u00feau v\u00e6ru saman. \u00deau vissu ekki hvort \u00feau fengju nokkurnt\u00edma a\u00f0 sj\u00e1st framar.<\/p>\n<p>\u00deegar h\u00fasb\u00f3ndinn kom, nokkrum d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar og uppg\u00f6tva\u00f0i a\u00f0 b\u00e6\u00f0i d\u00fdri\u00f0 og st\u00falkan voru horfin, var\u00f0 hann \u00e6fur. Mouhamed sag\u00f0ist ekkert vita hva\u00f0 hef\u00f0i or\u00f0i\u00f0 af systur sinni, h\u00fan v\u00e6ri l\u00edklega a\u00f0 leita a\u00f0 \u00falfaldanum sag\u00f0i hann en h\u00fasb\u00f3ndinn tr\u00fa\u00f0i \u00fev\u00ed ekki a\u00f0 Mouhamed hef\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 systur s\u00edna leita a\u00f0 t\u00fdndum \u00falfalda frekar en a\u00f0 bi\u00f0ja einhvern karlmannanna um hj\u00e1lp. Hann taldi v\u00edst a\u00f0 h\u00fan hef\u00f0i stroki\u00f0 og \u00feegar h\u00fan haf\u00f0i enn ekki l\u00e1ti\u00f0 sj\u00e1 sig nokkrum klukkustundum s\u00ed\u00f0ar, taldi hann \u00f3\u00fearft a\u00f0 leita annarra sk\u00fdringa. Mouhamed var bundinn vi\u00f0 staur og h\u00fdddur me\u00f0 greinum og \u00e1\u00f0ur en h\u00fasb\u00f3ndinn kvaddi sag\u00f0i hann honum a\u00f0 ef systir hans og \u00falfaldinn yr\u00f0u ekki komin aftur n\u00e6st \u00feegar hann k\u00e6mi, \u00fe\u00e1 myndi hann h\u00f6ggva af honum h\u00f6ndina og drepa hann svo. Kannski var \u00fea\u00f0 bara h\u00f3tun, en Mouhamed s\u00e1 enga \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 reikna me\u00f0 \u00fev\u00ed. \u00dej\u00f3far eru handh\u00f6ggnir \u00ed Vestur Afr\u00edku, ekki fyrir sm\u00e1\u00fej\u00f3fna\u00f0 a\u00f0 v\u00edsu en \u00falfaldi er \u00fea\u00f0 ver\u00f0m\u00e6tasta sem ey\u00f0imerkur\u00fer\u00e6ll er f\u00e6r um stela og \u00fea\u00f0 er engin s\u00e9rst\u00f6k stemning fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta \u00fer\u00e6l nj\u00f3ta vafans.<\/p>\n<p>Hann bara f\u00f3r. Hann var \u00ed uppn\u00e1mi eftir barsm\u00ed\u00f0arnar og h\u00f3tanirnar og vissi heldur ekki hvort eigandinn k\u00e6mi aftur a\u00f0 viku li\u00f0inni eins og venjulega e\u00f0a hvort hann bryti venjuna og k\u00e6mi fyrr \u00fear sem hann haf\u00f0i \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 vantreysta \u00fer\u00e6lnum. &#8222;\u00c9g \u00f3\u00f0 bara af sta\u00f0, hugsa\u00f0i ekki miki\u00f0 \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0, vildi bara komast burt sem fyrst&#8220; segir hann. Hann hef\u00f0i geta\u00f0 teki\u00f0 annan \u00falfalda en hann \u00feor\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki. \u00dear sem hann haf\u00f0i ekki kaupanda var \u00f3v\u00edst a\u00f0 hann g\u00e6ti selt d\u00fdri\u00f0 og \u00fea\u00f0 hef\u00f0i vaki\u00f0 \u00f3\u00fe\u00e6gilega athygli ef \u00feeld\u00f6kkur ma\u00f0ur hef\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 \u00falfalda til s\u00f6lu \u00e1n \u00feess a\u00f0 gera grein fyrir \u00fev\u00ed hver sendi hann \u00feeirra erinda. L\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ar hugsa\u00f0i hann sem svo a\u00f0 hann hef\u00f0i allavega geta\u00f0 teki\u00f0 \u00falfalda til a\u00f0 stytta s\u00e9r lei\u00f0ina og skili\u00f0 hann eftir \u00e1\u00f0ur en hann k\u00e6mi \u00ed n\u00e1grenni borgarinnar, r\u00e9tt eins og hann haf\u00f0i gert \u00feegar hann f\u00f3r \u00feanga\u00f0 \u00ed fyrra skipti\u00f0 en \u00e1 \u00fev\u00ed augnabliki hvarfla\u00f0i s\u00e1 m\u00f6guleiki ekki a\u00f0 honum, hann bara lag\u00f0i af sta\u00f0 f\u00f3tgangandi, me\u00f0 \u00fea\u00f0 litla sem hann gat bori\u00f0 af vatni og vistum.<\/p>\n<p>Hann var \u00ferj\u00e1 daga \u00e1 lei\u00f0inni til Nouadhibou, kom \u00feanga\u00f0 svo \u00fejaka\u00f0ur af \u00fereytu og hungri a\u00f0 hann st\u00f3\u00f0 varla undir s\u00e9r. Systir hans \u00feegar l\u00f6g\u00f0 af sta\u00f0 til Senegal.<\/p>\n<p>Hann leyndist \u00ed borginni \u00ed nokkrar vikur en a\u00f0 lokum t\u00f3kst bjargv\u00e6tti hans a\u00f0 koma honum um bor\u00f0 \u00ed b\u00e1t sem var \u00e1 lei\u00f0 til Sp\u00e1nar. Fer\u00f0in t\u00f3k fimm s\u00f3larhringa \u00e1 opnum b\u00e1ti. Um bor\u00f0 voru auk Mouhameds 22 karlar og 2 konur. Hvergi h\u00e6gt a\u00f0 halla s\u00e9r svo far\u00feegar \u00e1ttu ekki annars kost en a\u00f0 dotta ni\u00f0ur \u00ed bringuna \u00e1 s\u00e9r. 5 manns d\u00f3u \u00e1 lei\u00f0inni. Ekki af \u00fev\u00ed a\u00f0 neitt v\u00e6ri a\u00f0 \u00feeim. \u00deeir k\u00f6stu\u00f0u bara upp \u00fear til v\u00f6kvatapi\u00f0 dr\u00f3 \u00fe\u00e1 til dau\u00f0a. Mouhamed valdi \u00feessa mynd af netinu til a\u00f0 s\u00fdna m\u00e9r hverskonar b\u00e1t hann hef\u00f0i fer\u00f0ast me\u00f0 til Sp\u00e1nar.<a href=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/b\u00e1tar.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter size-full wp-image-13367\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/b\u00e1tar.png\" alt=\"\" width=\"797\" height=\"369\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/b\u00e1tar.png 797w, https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/b\u00e1tar-300x139.png 300w, https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/b\u00e1tar-768x356.png 768w, https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2012\/01\/b\u00e1tar-500x231.png 500w\" sizes=\"auto, (max-width: 797px) 100vw, 797px\" \/><\/a><\/p>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fl\u00f3ttinn Meirihluti svartra manna \u00ed M\u00e1ritan\u00edu eru \u00fer\u00e6lar. A\u00f0 v\u00edsu hefur \u00fer\u00e6lasala veri\u00f0 \u00f6l\u00f6gleg \u00fear fr\u00e1 \u00e1rinu 1981 en \u00fe\u00f3tt opnir \u00fer\u00e6lamarka\u00f0ir t\u00ed\u00f0kist ekki er hef\u00f0in fyrir erf\u00f0a\u00fer\u00e6lum mj\u00f6g sterk og tilraunir mannr\u00e9ttindasamtaka til a\u00f0 sporna gegn \u00fer\u00e6lahaldi hafa litlu &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":"","_links_to":"","_links_to_target":""},"categories":[11,1],"tags":[653],"class_list":["post-13386","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-mannrettindi","category-pistlar","tag-mouhamed-lo"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.5 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti - Pistlar Evu<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti - Pistlar Evu\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Fl\u00f3ttinn Meirihluti svartra manna \u00ed M\u00e1ritan\u00edu eru \u00fer\u00e6lar. A\u00f0 v\u00edsu hefur \u00fer\u00e6lasala veri\u00f0 \u00f6l\u00f6gleg \u00fear fr\u00e1 \u00e1rinu 1981 en \u00fe\u00f3tt opnir \u00fer\u00e6lamarka\u00f0ir t\u00ed\u00f0kist ekki er hef\u00f0in fyrir erf\u00f0a\u00fer\u00e6lum mj\u00f6g sterk og tilraunir mannr\u00e9ttindasamtaka til a\u00f0 sporna gegn \u00fer\u00e6lahaldi hafa litlu &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Pistlar Evu\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2011-12-18T23:04:03+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-09-22T23:26:20+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2011\/12\/leysingar-2.jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"7 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti\",\"datePublished\":\"2011-12-18T23:04:03+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-22T23:26:20+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/\"},\"wordCount\":1340,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/2\\\/2011\\\/12\\\/leysingar-2.jpeg\",\"keywords\":[\"Mouhamed Lo\"],\"articleSection\":[\"Mannr\u00e9ttinda og fri\u00f0arm\u00e1l\",\"Pistlar um samf\u00e9lagsm\u00e1l\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/\",\"name\":\"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti - Pistlar Evu\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/2\\\/2011\\\/12\\\/leysingar-2.jpeg\",\"datePublished\":\"2011-12-18T23:04:03+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-22T23:26:20+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/#primaryimage\",\"url\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/2\\\/2011\\\/12\\\/leysingar-2.jpeg\",\"contentUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/2\\\/2011\\\/12\\\/leysingar-2.jpeg\"},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/saga-strokuthraels-4-hluti\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/\",\"name\":\"Pistlar Evu\",\"description\":\"\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti - Pistlar Evu","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti - Pistlar Evu","og_description":"Fl\u00f3ttinn Meirihluti svartra manna \u00ed M\u00e1ritan\u00edu eru \u00fer\u00e6lar. A\u00f0 v\u00edsu hefur \u00fer\u00e6lasala veri\u00f0 \u00f6l\u00f6gleg \u00fear fr\u00e1 \u00e1rinu 1981 en \u00fe\u00f3tt opnir \u00fer\u00e6lamarka\u00f0ir t\u00ed\u00f0kist ekki er hef\u00f0in fyrir erf\u00f0a\u00fer\u00e6lum mj\u00f6g sterk og tilraunir mannr\u00e9ttindasamtaka til a\u00f0 sporna gegn \u00fer\u00e6lahaldi hafa litlu &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/","og_site_name":"Pistlar Evu","article_published_time":"2011-12-18T23:04:03+00:00","article_modified_time":"2017-09-22T23:26:20+00:00","og_image":[{"url":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2011\/12\/leysingar-2.jpeg","type":"","width":"","height":""}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"7 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti","datePublished":"2011-12-18T23:04:03+00:00","dateModified":"2017-09-22T23:26:20+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/"},"wordCount":1340,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2011\/12\/leysingar-2.jpeg","keywords":["Mouhamed Lo"],"articleSection":["Mannr\u00e9ttinda og fri\u00f0arm\u00e1l","Pistlar um samf\u00e9lagsm\u00e1l"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/","name":"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti - Pistlar Evu","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2011\/12\/leysingar-2.jpeg","datePublished":"2011-12-18T23:04:03+00:00","dateModified":"2017-09-22T23:26:20+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/#primaryimage","url":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2011\/12\/leysingar-2.jpeg","contentUrl":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2011\/12\/leysingar-2.jpeg"},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/saga-strokuthraels-4-hluti\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Saga stroku\u00fer\u00e6ls 4. hluti"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/","name":"Pistlar Evu","description":"","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13386","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=13386"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13386\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":13402,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/13386\/revisions\/13402"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=13386"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=13386"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=13386"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}