{"id":11417,"date":"2016-07-06T13:01:05","date_gmt":"2016-07-06T13:01:05","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/?p=11417"},"modified":"2017-09-22T12:54:18","modified_gmt":"2017-09-22T12:54:18","slug":"i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/","title":{"rendered":"&#8222;\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu&#8220; &#8211; Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-11424\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg\" alt=\"Maryam og Torpikey\" width=\"1200\" height=\"674\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg 1200w, https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey-300x169.jpg 300w, https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey-768x431.jpg 768w, https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey-1024x575.jpg 1024w, https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey-500x281.jpg 500w\" sizes=\"auto, (max-width: 1200px) 100vw, 1200px\" \/><\/a><\/p>\n<p>M\u00e6\u00f0gurnar Torpikey Farrash og Maryam Ras\u00ed eru fl\u00f3ttakonur fr\u00e1 Afghanistan. \u00de\u00e6r hafa dvali\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00ed 11 m\u00e1nu\u00f0i. \u00a0\u00de\u00e6r eru fyrstu konurnar fr\u00e1 Afghanistan sem s\u00e6kja um h\u00e6li \u00e1 \u00cdslandi en standa n\u00fa frammi fyrir brottv\u00edsun.\u00a0<!--more--><\/p>\n<p><strong>Hversu lengi hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 veri\u00f0 \u00e1 fl\u00f3tta?<br \/>\n<\/strong>Torpikey: Vi\u00f0 h\u00f6fum veri\u00f0 \u00e1 fl\u00f3tta, \u00fdmist \u00ed eigin landi e\u00f0a utan \u00feess fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Maryam var ungbarn. H\u00fan er 19 \u00e1ra og hefur aldrei kynnst \u00f6\u00f0ru.<\/p>\n<p><strong>Hvers vegna fl\u00fa\u00f0u\u00f0 \u00fei\u00f0?<br \/>\n<\/strong>\u00dea\u00f0 hefur lengi r\u00edkt mj\u00f6g erfitt \u00e1stand \u00ed Afghanistan og \u00e1t\u00f6k veri\u00f0 b\u00e6\u00f0i t\u00ed\u00f0 og mannsk\u00e6\u00f0, b\u00e6\u00f0i milli tr\u00faarh\u00f3pa og \u00e6ttb\u00e1lka. Fj\u00f6lskylda m\u00edn er Shia m\u00fasl\u00edmar og Shia f\u00f3lk hefur s\u00e6tt miklum ofs\u00f3knum af h\u00e1lfu tal\u00edbana. \u00c9g er auk \u00feess Hazari \u00ed m\u00f3\u00f0ur\u00e6tt og Hazarar eru og hafa alltaf veri\u00f0, ofs\u00f3ttur minnihlutah\u00f3pur. \u00dea\u00f0 er almennt liti\u00f0 ni\u00f0ur \u00e1 Hazara en \u00feykir \u00fe\u00f3 sk\u00e1rra a\u00f0 vera Hazari \u00ed m\u00f3\u00f0ur\u00e6tt en f\u00f6\u00f0ur\u00e6tt. Reyndin er hinsvegar s\u00fa a\u00f0 Sunni m\u00faslimar setja \u00ed raun alla Shia undir sama hatt, \u00ed \u00feeirra augum erum vi\u00f0 \u00f6ll Hazarar.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 neyddumst til a\u00f0 fl\u00fdja Kab\u00fal \u00feegar talibanasttj\u00f3rnin t\u00f3k yfir, 1996 e\u00f0a 1997 (vi\u00f0 fylgjum tungl\u00e1rinu og \u00e9g er ekki alveg viss um t\u00edmann). \u00de\u00e1 h\u00f6f\u00f0u mikil \u00e1t\u00f6k \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0, f\u00f6\u00f0uramma Maryam var drepin og afi hennar hvarf. Vi\u00f0 h\u00f6fum aldrei fr\u00e9tt neitt af honum en l\u00edklegast hefur hann veri\u00f0 drepinn l\u00edka. Vi\u00f0 fl\u00fa\u00f0um til Musakala sem er heimah\u00e9ra\u00f0 tengdaf\u00f6\u00f0ur m\u00edns en \u00e1standi\u00f0 \u00ed landinu versna\u00f0i og \u00fea\u00f0 enda\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 fl\u00fa\u00f0um til Iran.<\/p>\n<p>Manninum m\u00ednum var svo v\u00edsa\u00f0 \u00far landi og vi\u00f0 komuim aftur til\u00a0Afghanistan 2012. \u00dear vorum vi\u00f0 \u00ed 3 \u00e1r \u00e1 st\u00f6\u00f0ugum hrakningum milli h\u00e9ra\u00f0a. Fj\u00f6lskyldur okkar h\u00f6f\u00f0u tv\u00edstrast og flestir vinir og \u00e6ttingjar voru fl\u00fanir \u00far landi. \u00cd Afghanistan er ekki samskonar velfer\u00f0arkerfi og \u00ed Evr\u00f3pu, heldur er \u00fea\u00f0 fj\u00f6lskyldan sem stendur saman og s\u00e9r um \u00fe\u00e1 sem minna mega s\u00edn. S\u00e1 sem \u00e1 ekki fj\u00f6lskyldu hefur mj\u00f6g takm\u00f6rku\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri og er \u00fatsettur fyrir hverskyns ofbeldi, s\u00e9rstaklega konur. Svo ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 2012 a\u00f0 ma\u00f0urinn minn og sonur f\u00f3ru til Kab\u00fal til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed h\u00e1t\u00ed\u00f0ah\u00f6ldum Shia m\u00fasl\u00edma og vi\u00f0 heyr\u00f0um aldrei fr\u00e1 \u00feeim meir. Tal\u00edbanar r\u00e9\u00f0ust \u00e1 Kab\u00fal \u00e1 me\u00f0an \u00e1 \u00feessum h\u00e1t\u00ed\u00f0ah\u00f6ldum st\u00f3\u00f0 og\u00a0l\u00edklegast hafa \u00feeir l\u00e1tist.<\/p>\n<p>M\u00edn sta\u00f0a var \u00fear me\u00f0 or\u00f0in s\u00fa a\u00f0 \u00e9g var ekki bara ekkja, heldur ekkja \u00e1n fj\u00f6lskyldu og naut \u00feannig engrar verndar. \u00a0Sunn\u00edar r\u00e9\u00f0u yfir h\u00e9ra\u00f0inu og einn str\u00ed\u00f0sherranna var hrifinn af Maryam og vildi taka hana s\u00e9r sem\u00a0konu. \u00a0Maryam var \u00e1 16. \u00e1ri og vali\u00f0 st\u00f3\u00f0 um a\u00f0 l\u00e1ta hana \u00ed kl\u00e6rnar \u00e1 honum e\u00f0a fl\u00fdja.<\/p>\n<p><strong>Taldi \u00feessi ma\u00f0ur sig eiga eitthvert s\u00e9rstakt tilkall til Maryam? Voru\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00e1 hans framf\u00e6ri e\u00f0a eitthva\u00f0 s\u00edkt?<br \/>\n<\/strong>Nei, \u00e9g erf\u00f0i h\u00fas og gat \u00fev\u00ed framfleytt okkur. Hann var bara hrifinn af henni.\u00a0\u00deetta er ekkert einsd\u00e6mi.\u00a0Barnagiftingum fj\u00f6lga\u00f0i miki\u00f0 \u00ed Afghanistan eftir a\u00f0 tal\u00edbanar komust til valda.<\/p>\n<p><strong>Hva\u00f0 hef\u00f0i gerst ef \u00fe\u00fa hef\u00f0ir bara sagt nei?<br \/>\n<\/strong>\u00c9g hef\u00f0i ekkert fengi\u00f0 neinu um \u00fea\u00f0 r\u00e1\u00f0i\u00f0. \u00cd Afghanistan r\u00edkir fe\u00f0raveldi. Eldri karlar r\u00e1\u00f0a \u00f6llu sem \u00feeir vilja og \u00feeir komast upp me\u00f0 a\u00f0 drepa fj\u00f6lskyldume\u00f0limi sem brj\u00f3ta gegn bo\u00f0um \u00feeirra. Hef\u00f0irnar eru sterkari en l\u00f6gin og \u00fea\u00f0 er beinl\u00ednis liti\u00f0 \u00e1 konur sem eign karlanna. Konur sem setja sig gegn k\u00f6rlum, og s\u00e9rstaklega konur \u00ed okkar st\u00f6\u00f0u, ekkjur og ungar st\u00falkur, geta stofna\u00f0 s\u00e9r \u00ed st\u00f3rkostlega h\u00e6ttu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reyna \u00fea\u00f0. \u00a0M\u00e1l Farkhundu var nokku\u00f0 vel kynnt \u00e1 \u00cdslandi, h\u00fan var b\u00f3kstaflega barin til dau\u00f0a fyrir \u00fea\u00f0 eitt a\u00f0 standa uppi \u00ed h\u00e1rinu \u00e1 karlmanni og h\u00fan er ekkert s\u00fa eina. Konur ver\u00f0a mj\u00f6g oft fyrir ofbeldi og \u00fe\u00e6r sem nj\u00f3ta ekki verndar fj\u00f6lskyldu geta reikna\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeim ver\u00f0i nau\u00f0ga\u00f0, ekki einu sinni heldur oft. \u00dea\u00f0 er bara ekkert tala\u00f0 um \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p><strong><span style=\"line-height: 1.625;\">Hvernig komust \u00fei\u00f0 fr\u00e1 Afghanistan?<br \/>\n<\/span><\/strong><span style=\"line-height: 1.625;\">\u00c9g \u00e1tti fr\u00e6nda \u00ed n\u00e1grenninu sem hj\u00e1lpa\u00f0i okkur a\u00f0 komast fr\u00e1 sv\u00e6\u00f0inu \u00fear sem vi\u00f0 bjuggum. Vi\u00f0 vorum logandi hr\u00e6ddar, svo hr\u00e6ddar a\u00f0 vi\u00f0 l\u00e9tum Maryam \u00ed skotti\u00f0 \u00e1 b\u00edlnum. \u00a0<\/span>\u00c9g var\u00f0 svo a\u00f0 selja h\u00fasi\u00f0 mitt til a\u00f0 borga smyglurum til a\u00f0 koma okkur fr\u00e1 Afghanistan.\u00a0Fyrst til \u00cdran og \u00fea\u00f0an til Tyrklands.<\/p>\n<p>\u00deetta var b\u00e6\u00f0i erfitt og h\u00e6ttulegt fer\u00f0alag. Vi\u00f0 ur\u00f0um a\u00f0 fer\u00f0ast langa lei\u00f0 f\u00f3tgangandi \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er of h\u00e6ttulegt a\u00f0 fara\u00a0yfir landam\u00e6ri \u00fear sem landam\u00e6rag\u00e6sla er. \u00cdranar \u00feurfa ekki vegabr\u00e9fs\u00e1ritun til a\u00f0 komast til Tyrklands en Afghanir eiga \u00e1 h\u00e6ttu a\u00f0 ver\u00f0a\u00a0skotnir \u00e1 sta\u00f0num.\u00a0Vi\u00f0 vorum l\u00e6star inni \u00e1 gistist\u00f6\u00f0um sem voru ekki manneskjum bj\u00f3\u00f0andi, stundum vorum vi\u00f0 h\u00e1lf sveltandi og allssta\u00f0ar vofir kynfer\u00f0isofbeldi yfir konunum. Smyglararnir eru \u00f3gnandi og ef manni l\u00edst s\u00e9rstaklega illa \u00e1 \u00feann sem \u00e1 a\u00f0 koma manni \u00e1 n\u00e6sta sta\u00f0 \u00fe\u00e1 er ekkert h\u00e6gt a\u00f0 velja s\u00e9r bara einhvern annan.\u00a0Fl\u00f3ttaf\u00f3lk er algerlega \u00e1 valdi smyglaranna sem sj\u00e1 hver um sitt sv\u00e6\u00f0i og skiptast \u00e1 fl\u00f3ttam\u00f6nnum eins og hverjum \u00f6\u00f0rum varningi.<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum komumst vi\u00f0 til Grikklands og \u00fea\u00f0an til \u00cdtal\u00edu me\u00f0 l\u00e9legum b\u00e1t. \u00dea\u00f0an f\u00f3rum vi\u00f0 me\u00f0 loku\u00f0um flutningab\u00edl\u00a0til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar. Hann var yfirfullur, okkur var sagt a\u00f0 standa en vi\u00f0 g\u00e6tum sest ni\u00f0ur \u00feegar allir v\u00e6ru komnir inn. \u00dea\u00f0 voru 40-50 manns sem tr\u00f3\u00f0ust \u00fearna inn og au\u00f0vita\u00f0 ekkert pl\u00e1ss til a\u00f0 sitja nema \u00f6rf\u00e1ir \u00ed einu. \u00dea\u00f0 var svo s\u00farefnislaust a\u00f0 \u00fea\u00f0 lei\u00f0 yfir suma.\u00a0<span style=\"line-height: 1.5;\">F\u00f3lk leggur ekkert \u00e1 sig svona fer\u00f0al\u00f6g nema af g\u00f3\u00f0ri \u00e1st\u00e6\u00f0u.<\/span><strong><span style=\"line-height: 1.625;\"><br \/>\n<\/span><\/strong><\/p>\n<p><strong>Hvernig vegna\u00f0i ykkur svo \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0?<br \/>\n<\/strong>Maryam: Vi\u00f0 komum til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar 4. okt\u00f3ber 2012 og vorum \u00fear \u00ed 3 \u00e1r en \u00fe\u00e1 var okkur v\u00edsa\u00f0 \u00far landi. \u00a0\u00c9g\u00a0var \u00ed sk\u00f3la \u00ed 6 m\u00e1nu\u00f0i en var\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 h\u00e6tta \u00fev\u00ed mamma var veik. H\u00fan var greind me\u00f0 Alzheimer sj\u00fakd\u00f3m og auk \u00feess svo sl\u00e6m \u00e1 taugum a\u00f0 h\u00fan var\u00a0\u00ed raun \u00f3f\u00e6r um a\u00f0 vera ein en \u00e1tti ekki r\u00e9tt \u00e1 \u00feeirri a\u00f0sto\u00f0 sem h\u00fan \u00feurfti.<\/p>\n<p>\u00deegar vi\u00f0 fengum tilkynningu um brottv\u00edsun var mamma n\u00fd\u00fatskrifu\u00f0 af sp\u00edtala og\u00a0ekki fer\u00f0af\u00e6r en h\u00fan \u00e1tti a\u00f0 l\u00e1ta l\u00f6gregluna vita af s\u00e9r \u00feegar h\u00fan v\u00e6ri or\u00f0in f\u00e6r um a\u00f0 fara. \u00de\u00e1 \u00e6tlu\u00f0u \u00feeir a\u00f0 flyta okkur \u00ed fl\u00f3ttamannab\u00fa\u00f0ir sem eru \u00ed raun bara geymsla fyrir f\u00f3lk sem \u00e1 a\u00f0 senda \u00ed landi. Vi\u00f0 ger\u00f0um \u00fea\u00f0 ekki en vorum \u00ed felum s\u00ed\u00f0ustu 3 m\u00e1nu\u00f0ina.<\/p>\n<p><strong>G\u00e1tu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki k\u00e6rt \u00e1kv\u00f6r\u00f0unina?<br \/>\n<\/strong>Maryam: Nei, vi\u00f0 vorum b\u00fanar a\u00f0 \u00fev\u00ed. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um l\u00edka reynt a\u00f0 s\u00e6kja um a\u00f0 \u00f6\u00f0rum forsendum \u00fe.e.a.s. vegna heilsufars m\u00f6mmu en Sv\u00edar neitu\u00f0u a\u00f0 taka m\u00e1li\u00f0 til efnisme\u00f0fer\u00f0ar aftur.<\/p>\n<p><strong>\u00c1 hva\u00f0a forsendu var ykkur synja\u00f0?<br \/>\n<\/strong>Vi\u00f0 g\u00e1tum ekki sanna\u00f0 s\u00f6gu okkar og \u00fea\u00f0 hefur \u00e1rei\u00f0anlega haft \u00e1hrif a\u00f0 starfsma\u00f0ur hj\u00e1 \u00datendingastofnunar Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar h\u00e9lt a\u00f0\u00a0v\u00e6rum fr\u00e1 \u00cdran af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 vottar fyrir \u00edr\u00f6nskum hreim \u00ed tali m\u00ednu. \u00c9g \u00f3lst a\u00f0 hluta til upp \u00ed \u00cdran og \u00fea\u00f0 eru mj\u00f6g margir Afghanir sem hafa fl\u00fai\u00f0 \u00feanga\u00f0 um lengri e\u00f0a skemmri t\u00edma svo \u00fea\u00f0 voru margir \u00ed m\u00ednu n\u00e6rumhverfi sem t\u00f6lu\u00f0u me\u00f0 hreim svo \u00fea\u00f0 er ekkert dularfullt vi\u00f0 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p><strong>Var ekki h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 sta\u00f0festingu \u00e1 \u00fev\u00ed fr\u00e1 yfirv\u00f6ldum \u00ed Afghanistan a\u00f0 \u00fei\u00f0 v\u00e6ru\u00f0 \u00fea\u00f0an?<br \/>\n<\/strong>Torpikey: Nei, \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt. \u00cd Afghanistan er ekki nein \u00fej\u00f3\u00f0skr\u00e1 og alls ekkert sj\u00e1lfgefi\u00f0 a\u00f0 f\u00f3lk eigi skilr\u00edki. \u00dea\u00f0 eru mun f\u00e6rri konur en karlar sem eiga skilr\u00edki og \u00fe\u00e6r \u00feurfa a\u00f0 f\u00e1 skilr\u00edki \u00ed gegnum fe\u00f0ur s\u00edna e\u00f0a a\u00f0ra karla \u00ed fj\u00f6lskyldunni. \u00c9g \u00e1tti reyndar papp\u00edra sem \u00e9g hef\u00f0i geta\u00f0 lagt fram en var ekki me\u00f0 \u00fe\u00e1 hj\u00e1 m\u00e9r, \u00fev\u00ed vi\u00f0 vorum b\u00fain a\u00f0 vera \u00e1 st\u00f6\u00f0ugum fl\u00f3tta og eigur okkar voru hist og her. \u00c1standi\u00f0 var svo bara \u00feannig a\u00f0 mitt f\u00f3lk haf\u00f0i tv\u00edstrast og flestir voru og eru \u00e1 f\u00f3tta og \u00fea\u00f0 t\u00f3k svo langan t\u00edma a\u00f0 finna \u00fat hvar \u00feessi g\u00f6gn voru ni\u00f0urkomin og koma \u00feeim til m\u00edn a\u00f0 \u00e9g f\u00e9kk \u00feau ekki fyrr en eftir a\u00f0 vi\u00f0 fengum synjun \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0.<\/p>\n<p><strong>Hvernig hefur l\u00edf ykkar veri\u00f0 \u00feessa 11 m\u00e1nu\u00f0i sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 dvali\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi?<br \/>\n<\/strong>Maryam: \u00dea\u00f0 er \u00e1rei\u00f0anlega gott a\u00f0 vera \u00e1 \u00cdslandi ef ma\u00f0ur n\u00fdtur fullra r\u00e9ttinda en fl\u00f3ttaf\u00f3lk b\u00fdr vi\u00f0 algera \u00f3vissu um framt\u00ed\u00f0ina og vi\u00f0 h\u00f6fum svo takm\u00f6rku\u00f0 r\u00e9ttindi a\u00f0 ma\u00f0ur er \u00ed rauninni bara \u00ed bi\u00f0st\u00f6\u00f0u. \u00c9g hef ekki geta\u00f0 fari\u00f0 \u00ed sk\u00f3la, streitan og \u00f3vissan hefur mj\u00f6g sl\u00e6m \u00e1hrif \u00e1 heilsufar m\u00f6mmu og \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 f\u00e1 vinnu nema hafa atvinnuleyfi.<\/p>\n<p>Torpikey: \u00dev\u00ed er heldur enginn skilningur s\u00fdndur a\u00f0 vi\u00f0 komum \u00far \u00f6\u00f0ru menningarumhverfi. Okkur var komi\u00f0 fyrir \u00ed h\u00fasi me\u00f0 tveimur karlm\u00f6nnum og \u00ed okkar menningu er \u00fea\u00f0 bara alls ekki s\u00e6mandi. Fyrir mig er \u00fea\u00f0 ni\u00f0url\u00e6ging a\u00f0 deila ba\u00f0herbergi me\u00f0 \u00f3kunnugum karlm\u00f6nnum, \u00fea\u00f0 s\u00e6rir blyg\u00f0unarkennd m\u00edna, en \u00feetta er eitthva\u00f0 sem \u00e9g \u00e1tti bara a\u00f0 a\u00f0lagast \u00ed hvelli. Ma\u00f0ur er b\u00fainn a\u00f0 lenda \u00ed hverju \u00e1fallinu \u00e1 f\u00e6tur \u00f6\u00f0ru og svo er okkur gert erfi\u00f0ara a\u00f0 vinna \u00far \u00feeim me\u00f0 \u00fevi a\u00f0 setja okkur \u00ed a\u00f0st\u00e6\u00f0ur sem valda enn meira \u00e1lagi.<\/p>\n<p>\u00c9g h\u00e9lt \u00feegar \u00e9g f\u00f3r fr\u00e1 Afghanistan a\u00f0 mannr\u00e9ttindi v\u00e6ru h\u00e1tt skrifu\u00f0 \u00ed Evr\u00f3pu og a\u00f0 kvenr\u00e9ttindi nytu svo mikillar vir\u00f0ingar \u00ed l\u00f6ndum eins og Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og \u00cdslandi en \u00e9g hef ekkert or\u00f0i\u00f0 v\u00f6r vi\u00f0 alla \u00feessa mann\u00fa\u00f0 og mannr\u00e9ttindi. Ekki kvenr\u00e9ttindi heldur, \u00fea\u00f0 vita allir a\u00f0 konur \u00ed Afghanistan b\u00faa vi\u00f0 ofbeldi og k\u00fagun\u00a0en vi\u00f0 nj\u00f3tum samt engar s\u00e9rstakrar verndar sem konur.<\/p>\n<p><strong>Hefur m\u00e1li\u00f0 ekki veri\u00f0 teki\u00f0 til efnisme\u00f0fer\u00f0ar \u00e1 \u00cdslandi?<br \/>\n<\/strong>Maryam: Nei, okkur var synja\u00f0 um h\u00e6li eftir 3 m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 \u00cdslandi vi\u00f0 k\u00e6r\u00f0um \u00fe\u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un til k\u00e6runefndar \u00fatlendingam\u00e1la. Okkur hefur ekki veri\u00f0 kynnt ni\u00f0ursta\u00f0a nefndarinnar formlega en l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingurinn okkar hefur fengi\u00f0 \u00fe\u00e6r uppl\u00fdsingar a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 hafi veri\u00f0 sent\u00a0til l\u00f6greglu og reynslan s\u00fdnir a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0\u00a0\u00fea\u00f0 er n\u00e1nast \u00f6ruggt a\u00f0 \u00feau \u00e6tla a\u00f0 senda okkur til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar.<\/p>\n<p><strong>En fyrst \u00fei\u00f0 geti\u00f0 sanna\u00f0 uppruna ykkar n\u00fana, eru \u00fe\u00e1 ekki allar l\u00edkur \u00e1 a\u00f0 \u00fei\u00f0 f\u00e1i\u00f0 h\u00e6li \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0?<br \/>\n<\/strong>Maryam: \u00c9g v\u00e6ri bjarts\u00fdn ef \u00e6tti eftir a\u00f0 taka m\u00e1li\u00f0 fyrir en \u00fea\u00f0 er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 kve\u00f0a upp \u00farskur\u00f0 um brottv\u00edsun og r\u00e9ttar\u00e1hrifum er mj\u00f6g sjaldan fresta\u00f0.\u00a0N\u00fa erum vi\u00f0 ekki b\u00fanar a\u00f0 f\u00e1 \u00farskur\u00f0 fr\u00e1 k\u00e6runefnd \u00datlendingam\u00e1la \u00ed hendur svo \u00e9g veit ekki \u00e1 hva\u00f0a forsendu \u00cdslendingar telja sig geta hafna\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka m\u00e1li\u00f0 fyrir. L\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingurinn sag\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ekki h\u00e6gt a\u00f0 v\u00edsa okkur til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar \u00e1 grundvelli Dyflinnarregluger\u00f0arinnar \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 v\u00e6ri banna\u00f0 a\u00f0 v\u00edsa okkur brott \u00feegar h\u00e6tta v\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 vi\u00f0 yr\u00f0um sendar \u00e1 \u00f3\u00f6ruggt sv\u00e6\u00f0i. Vi\u00f0 erum l\u00edka b\u00fanar a\u00f0 vera h\u00e9r svo lengi a\u00f0 \u00cdslendingar \u00e6ttu a\u00f0 taka m\u00e1li\u00f0 til efnisme\u00f0fer\u00f0ar. \u00deau \u00e6tla kannski a\u00f0 hengja\u00a0sig \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 komum me\u00f0 f\u00f6lsu\u00f0 skilr\u00edki og leyndum \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um s\u00f3tt um h\u00e6li \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 en \u00fea\u00f0 hlj\u00f3ta allir sem reyna a\u00f0 setja sig \u00ed okkar spor a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 var \u00fea\u00f0 eina sem vi\u00f0 g\u00e1tum gert.<\/p>\n<p><strong>Ef \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 sendar aftur til Afghanistan, hvers konar l\u00edf b\u00ed\u00f0ur ykkar \u00fear?<br \/>\n<\/strong>Torpikey: \u00cd raun ekkert l\u00edf, ekki heldur \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 yr\u00f0um \u00e1 &#8222;\u00f6ruggu sv\u00e6\u00f0i&#8220;. Ekkja er sj\u00e1fkrafa sett undir vald \u00e6ttingja mannsins s\u00edns og minn ma\u00f0ur \u00e1 ekki neina \u00e6ttingja \u00ed Kab\u00fal. S\u00e1 eini sem \u00e9g g\u00e6ti hugsanlega leita\u00f0 til \u00ed Afghanistan er stj\u00fapbr\u00f3\u00f0ir mannsins m\u00edns og ef hann k\u00e6mist a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum b\u00fai\u00f0 me\u00f0 karlm\u00f6nnum \u00e1 \u00cdslandi \u00a0\u00fe\u00e1 myndi hann hafna okkur og \u00fea\u00f0 g\u00e6ti \u00f3gna\u00f0 l\u00edfi okkar. \u00dea\u00f0 skiptir ekki m\u00e1li \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 hafi veri\u00f0 gegn vilja okkar. Vi\u00f0 h\u00f6fum l\u00edka\u00a0gengi\u00f0 um \u00e1 almannaf\u00e6ri \u00e1n \u00feess a\u00f0 bera h\u00f6fu\u00f0kl\u00fat og bara \u00feessvegna myndi enginn taka vi\u00f0 okkur.<\/p>\n<p>Maryam: \u00dea\u00f0 er eiginlega \u00ferennt sem kemur til greina; f\u00e9lagsleg \u00fatsk\u00fafun, nau\u00f0ungarhj\u00f3naband e\u00f0a dau\u00f0i. \u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu. Vi\u00f0 fengjum t.d. ekki leigt h\u00fasn\u00e6\u00f0i og \u00fea\u00f0 er enga vinnu a\u00f0 hafa, s\u00edst fyrir konur \u00ed okkar st\u00f6\u00f0u, m\u00f3\u00f0ir m\u00edn er or\u00f0in sextug og h\u00fan er sj\u00faklingur og \u00e9g er \u00f3menntu\u00f0. Ef einhver vildi taka mig s\u00e9r sem konu \u00fe\u00e1 v\u00e6ri \u00fea\u00f0 eina lei\u00f0in til a\u00f0 komast af og ef \u00e9g giftist ekki \u00fe\u00e1 myndu a\u00f0rir karlar telja s\u00e9r frj\u00e1lst a\u00f0 sv\u00edvir\u00f0a mig. \u00dea\u00f0 er ekkert gert \u00ed \u00fev\u00ed og allra s\u00edst ef konan \u00e1 ekki fj\u00f6lskyldu, \u00fea\u00f0 er ekki einu sinni teki\u00f0 \u00e1 barnanau\u00f0gurum.<\/p>\n<p><strong>Ef \u00fei\u00f0 fengju\u00f0 h\u00e6li \u00e1 \u00cdslandi hverskonar l\u00edf sj\u00e1i\u00f0 \u00fei\u00f0 fyrir ykkur h\u00e9r?<br \/>\n<\/strong>Maryam: M\u00e9r myndi l\u00ed\u00f0a eins og fugli sem er sleppt \u00far b\u00fari. M\u00f6mmu myndi l\u00ed\u00f0a betur og h\u00fan fengi \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3nustu sem h\u00fan \u00fearf og \u00e9g g\u00e6ti fari\u00f0 \u00ed sk\u00f3la. En ef \u00e9g \u00e1 a\u00f0 segja alveg eins og er \u00fe\u00e1 \u00e1 \u00e9g ekki neina s\u00e9rstaka drauma eins og flest f\u00f3lk \u00e1 m\u00ednum aldri. \u00c9g hef aldrei b\u00fai\u00f0 vi\u00f0 n\u00f3gu miki\u00f0 \u00f6ryggi til \u00feess a\u00f0 gera neinar raunh\u00e6far \u00e1\u00e6tlanir.\u00a0<strong><br \/>\n<\/strong><\/p>\n<p>Torpikey: \u00c9g held enn \u00ed vonina um a\u00f0 \u00cdslendingar taki m\u00e1li\u00f0 fyrir. Eins og sta\u00f0an er \u00ed dag \u00fe\u00e1 er enginn hluti Afghanistan \u00f6ruggur. Isis r\u00e6\u00f0ur yfir austurhlutanum og tal\u00edbanar hafa nor\u00f0ur og su\u00f0urhlutann \u00e1 valdi s\u00ednu. S\u00ed\u00f0an okkur var v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 hafa\u00a0a\u00f0 minnsta kosti 7 Hazarar veri\u00f0 h\u00e1lsh\u00f6ggnir, l\u00edka konur og b\u00f6rn, og a\u00f0 minnsta kosti 20 manns hefur veri\u00f0 r\u00e6nt. \u00c1 \u00e9g a\u00f0 treysta \u00fev\u00ed a\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g ver\u00f0i l\u00e1tin \u00ed fri\u00f0i af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er bara Hazari \u00ed a\u00f0ra \u00e6ttina? \u00c9g s\u00e9 ekki fyrir m\u00e9r a\u00f0 konur \u00ed okkar st\u00f6\u00f0u geti veri\u00f0 \u00f6ruggar \u00ed Afghanistan nema \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ganga \u00ed \u00fej\u00f3nustu \u00feeirra, sem er au\u00f0vita\u00f0 ekki inni \u00ed myndinni. \u00dea\u00f0 eina sem vi\u00f0 getum gert n\u00fana er a\u00f0 vona a\u00f0 \u00cdslendingar horfist \u00ed augu vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 v\u00edsa okkur \u00far landi gengur dau\u00f0ad\u00f3mi n\u00e6st.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>M\u00e6\u00f0gurnar Torpikey Farrash og Maryam Ras\u00ed eru fl\u00f3ttakonur fr\u00e1 Afghanistan. \u00de\u00e6r hafa dvali\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00ed 11 m\u00e1nu\u00f0i. \u00a0\u00de\u00e6r eru fyrstu konurnar fr\u00e1 Afghanistan sem s\u00e6kja um h\u00e6li \u00e1 \u00cdslandi en standa n\u00fa frammi fyrir brottv\u00edsun.\u00a0<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":"","_links_to":"","_links_to_target":""},"categories":[1,684],"tags":[222,148,934],"class_list":["post-11417","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-pistlar","category-vidtol","tag-afghanistan","tag-flottafolk","tag-stofnanarasismi"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.4 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>&quot;\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu&quot; - Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi - Pistlar Evu<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"&quot;\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu&quot; - Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi - Pistlar Evu\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"M\u00e6\u00f0gurnar Torpikey Farrash og Maryam Ras\u00ed eru fl\u00f3ttakonur fr\u00e1 Afghanistan. \u00de\u00e6r hafa dvali\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00ed 11 m\u00e1nu\u00f0i. \u00a0\u00de\u00e6r eru fyrstu konurnar fr\u00e1 Afghanistan sem s\u00e6kja um h\u00e6li \u00e1 \u00cdslandi en standa n\u00fa frammi fyrir brottv\u00edsun.\u00a0\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Pistlar Evu\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2016-07-06T13:01:05+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-09-22T12:54:18+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"13 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"&#8222;\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu&#8220; &#8211; Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi\",\"datePublished\":\"2016-07-06T13:01:05+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-22T12:54:18+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/\"},\"wordCount\":2631,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/2\\\/2016\\\/07\\\/Maryam-og-Torpikey.jpg\",\"keywords\":[\"Afghanistan\",\"Fl\u00f3ttaf\u00f3lk\",\"Stofnanarasismi\"],\"articleSection\":[\"Pistlar um samf\u00e9lagsm\u00e1l\",\"Vi\u00f0t\u00f6l og gestapistlar\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/\",\"name\":\"\\\"\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu\\\" - Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi - Pistlar Evu\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"http:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/2\\\/2016\\\/07\\\/Maryam-og-Torpikey.jpg\",\"datePublished\":\"2016-07-06T13:01:05+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-22T12:54:18+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/2\\\/2016\\\/07\\\/Maryam-og-Torpikey.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/2\\\/2016\\\/07\\\/Maryam-og-Torpikey.jpg\",\"width\":1200,\"height\":674},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"&#8222;\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu&#8220; &#8211; Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/\",\"name\":\"Pistlar Evu\",\"description\":\"\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/pistlar\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"\"\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu\" - Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi - Pistlar Evu","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"\"\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu\" - Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi - Pistlar Evu","og_description":"M\u00e6\u00f0gurnar Torpikey Farrash og Maryam Ras\u00ed eru fl\u00f3ttakonur fr\u00e1 Afghanistan. \u00de\u00e6r hafa dvali\u00f0 \u00e1 \u00cdslandi \u00ed 11 m\u00e1nu\u00f0i. \u00a0\u00de\u00e6r eru fyrstu konurnar fr\u00e1 Afghanistan sem s\u00e6kja um h\u00e6li \u00e1 \u00cdslandi en standa n\u00fa frammi fyrir brottv\u00edsun.\u00a0","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/","og_site_name":"Pistlar Evu","article_published_time":"2016-07-06T13:01:05+00:00","article_modified_time":"2017-09-22T12:54:18+00:00","og_image":[{"url":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg","type":"","width":"","height":""}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"13 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"&#8222;\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu&#8220; &#8211; Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi","datePublished":"2016-07-06T13:01:05+00:00","dateModified":"2017-09-22T12:54:18+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/"},"wordCount":2631,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg","keywords":["Afghanistan","Fl\u00f3ttaf\u00f3lk","Stofnanarasismi"],"articleSection":["Pistlar um samf\u00e9lagsm\u00e1l","Vi\u00f0t\u00f6l og gestapistlar"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/","name":"\"\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu\" - Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi - Pistlar Evu","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg","datePublished":"2016-07-06T13:01:05+00:00","dateModified":"2017-09-22T12:54:18+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/#primaryimage","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg","contentUrl":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2016\/07\/Maryam-og-Torpikey.jpg","width":1200,"height":674},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/i-afghanistan-komast-konur-ekki-af-an-fjolskyldu-vidtal-vid-flottakonur-sem-a-ad-visa-ur-landi\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"&#8222;\u00cd Afghanistan komast konur ekki af \u00e1n fj\u00f6lskyldu&#8220; &#8211; Vi\u00f0tal vi\u00f0 fl\u00f3ttakonur sem \u00e1 a\u00f0 v\u00edsa \u00far landi"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/","name":"Pistlar Evu","description":"","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/11417","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=11417"}],"version-history":[{"count":9,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/11417\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":12885,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/11417\/revisions\/12885"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=11417"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=11417"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=11417"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}