Meira frá Reykholti

Höskuldargerði

Rétt hjá Snorrastofu er Höskuldargerði. Það er hrossarétt sem var reist til heiðurs einhverjum hestamanni sem hét Höskuldur frá Hofi og tengist Sturlungum varla neitt, a.m.k. ekki Sturlungasögu.
Sagt er að Höskuldur hafi haft allt á hornum sér – eða allavega má ljúga því að ferðamönnum ef maður veit ekkert um nefndan Höskuld.

 Hér mun hafa verið hásæti Höskuldar – eða ekki.

 

Gamla kirkjan

Við skoðuðum líka gömlu kirkjuna. Hulla kom ekki turninum fyrir á myndinni svo hún tók bara aðra af honum. Lesendur geta dundað sér við að fótósjoppa þær saman.

Hulla hefur greinilega haldið símanum í sömu stellingu á leið inn í kirkjuna því þessi mynd er nánst jafn skökk og myndin af turninum sem er aftur álíka skökk og myndin af kirkjunni. Mjög sérstakur og persónulegur ljósmyndastíll.

Þarna er pabbi að spila fyrir okkur á kirkjuorgelið og við Borghildur að syngja og leika með. Lagið er Ó, hókí, hókí-pókí og þarna er Borghildur að „setja tunguna út“ en ég ruglaðist í taktinum (eins og svo oft áður) og er því aðeins á eftir og ennþá að gera hókí-pókí.

Hulla var gripin trúarlegri innlifun. Hún ætlar að fara til Filipseyja og láta krossfesta sig um næstu páska.

Ég hélt langa og vel heppnaða hugvekju um mikilvægi ypsilonins áður en við kvöddum en það gleymdist að taka mynd af mér að predika.

Í Reykholti gengum við fram á þessa glæsilegu stóla og máttum til að máta þá. Eigandinn kom út og gaf góðfúslegt leyfi til að taka myndir. Ekki nóg með það heldur bauð hann okkur líka að koma inn fyrir og líta á borð sem fylgir þeim. Heimilið er fullt af listaverkum og upplifun út af fyrir sig að fá að sjá það. Þetta glæsilega sett er til sölu og fæst fyrir gott verð. Ekki man ég nöfn heimilisfólksins en áhugasamir geta eflaust grafið þau upp.

Við lukum svo heimsókninni í Reykholt á að fá okkur kaffi og borða meira nesti í brekku hjá Snorrastofu. Pabbi sagðist ekki geta drukkið bjór ofan í kaffi en við komum nú einum litlum ofan í hann samt með smá eftirgangsmunum. Borghildur fékk engan bjór, hún drekkur aldrei annað áfengi en landa undir stýri.

Deila

admin:
Related Post