Við rétt náðum að skála á pallinum áður en sólin hvarf á bak við Grímsstaðamúla. Borghildur sést þarna fyrir innan, áreiðanlega að fara út með dykkina.
Af pallinum horfum við yfir Grenjadal en að Grenjum bjó galdramaðurinn Grenjadals-Tobbi sem líflátinn var á Þingvöllum 1677. Hann hafði unnið sér það til saka að eiga þrjár galdraskræður og skinnbleðil með galdrastöfum. Allt reyndust þetta vera verndargaldrar og á skinnbleðlilinn hafði hann párað stafi sem áttu að gera búfénað gæfari og þjófastaf, sem var ætlaður til að varna þjófnaði og koma upp um þjófa. Engu að síður var ofstækið á þessum tíma svo svaðalegt að menn voru hættir að gera greinarmun á fjölkynngi (hvíta galdri) og fordæðuskap (svarta galdri). Mig minnti að Tobbi hefði verið sá síðasti sem brenndur var en það var ekki rétt munað, nokkrir voru brenndir eftir hans dag.
Hinum megin við fjallið er svo Hítardalur en þar bjó tröllskessan Hít. Björn Hítdælakappi, einn af afkomendum Egils Skallagírmssonar settist að í Hítardal.