Getur einhver sagt mér af hverju má ekki geyma ávaxtasafa í opinni fernu í kæli lengur en 3 daga? Kemur eitrun í safann og ef svo er, finnst það þá ekki á bragði og lykt? Sjálf hef ég oft drukkið háaldraðan ávaxtasafa og aldrei orðið meint af. Ég er reyndar með óvenju sterkan maga svo kannski er það ekki alveg að marka.
-
Eva Hauksdóttir in örblogg
View Comments (1)
-----------------------------------------
er þetta ekki trix til að þú hendir þeim sem þú nærð ekki að drekka hratt og kaupir nýjan?
Posted by: inga hanna | 8.03.2007 | 8:30:59
-----------------------------------------
held það hljóti að vera. Ég drekk alveg upp undir vikugamlan safa (frá opnun)
Reyndar endast safafernurnar yfirleitt ekki svo lengi hér á bæ (fimm safaþambarar)
Posted by: hildigunnur | 8.03.2007 | 10:02:49
-----------------------------------------
Fer soldið eftir safanum en ef þú geymir hann MJÖG lengi fer hann að skemmast. Og jú, það á að finnast á bragði og lykt. Og tekur yfirleitt MUN lengri tíma en 3 daga ef hann er hafður í kæli.
Eins og með yfirleitt allt annað, þá er yfirleitt best að taka sem minnst mark á því sem framleiðendur halda fram... Eða allavega taka því með fyrirvara.
Posted by: Gerður | 8.03.2007 | 11:33:48
-----------------------------------------
Ég þynnti eitt sinn útrunninn safa. Það voru nú ljótu vonbrigðin!
Posted by: Haukur | 9.03.2007 | 8:30:36