Auðvitað fer það ekki í taugarnar á nokkrum manni þótt fólk spili bingó á Austurvelli. Þeir eru heldur ekki margir sem taka það nærri sér þótt fólk beiti borgaralegri óhlýðni til að mótmæla jafn fáránlegum lögum og þeim að bingó skuli bannað á tilteknum degi. Það sem raunverulega fer fyrir brjóstið á ótrúlega mörgum er að þetta skuli gert í nafni félagsskapar sem vill að lög um trúfrelsi verði virt, að meðlimir Þjóðkirkjunnar greiði sjálfir fyrir sitt áhugamál og að fjölmiðlar hætti að halda úti ókeypis auglýsingarstarfsemi fyrir gervivísindamenn, gagnrýnislaust.
-
Eva Hauksdóttir in Andóf og yfirvaldörbloggTrúmál
View Comments (1)
--------------------------------
Hvað áttu við með auglýsingastarfsemi fyrir gervivísindamenn?
Posted by: Eyrún | 22.03.2008 | 15:04:23
--- --- ---
Ég held þetta sé rétt hjá þér.
Það er Vantrú sem pirrar suma óstjórnlega, ekki bingóið - enda erum við óskaplega pirrandi fólk :-)
Posted by: Matti | 22.03.2008 | 15:30:27
--- --- ---
Blaðamenn virðast mega vinna samkvæmt reglunni um að góð saga sé ekki verri, þó hún sé login...
Posted by: Kristín | 22.03.2008 | 17:00:45
--- --- ---
Þegar ég tala um gervivísindi á ég fyrst og fremst við hverskyns óvísindalegar lækningaaðferðir sem eru kynntar sem "fræði". Nokkur dæmi um gervivísindi eru dna-heilun, lithimnulestur, blómadropar og segularmbönd. Mér er sama þótt fólk trúi á þetta allt saman en þetta eru ekki vísindi.
Posted by: Eva | 22.03.2008 | 17:20:50
--- --- ---
Ég skil.
En ég held faktískt að það sé til fólk sem tekur borgaralega óhlýðni, í hvaða formi sem hún birtist og af hvaða ástæðum sem er, afskaplega nærri sér. Þó að Vantrú fari vissulega mjög fyrir brjóstið á sumum.
Posted by: Eyrún | 22.03.2008 | 23:55:42
--- --- ---
Gervivísindi = Nornabúðin?
Hefur þú ekki fengið athygli fjölmiðla Eva?
Posted by: Þorkell | 24.03.2008 | 2:04:55
--- --- ---
Nornabúðin hefur aldrei gefið sig út fyrir að vera vísindaleg eða auglýst nokkra vöru eða þjónustu í nafni vísinda. Reyndar ganga kynningarnar hjá mér að verulegu leyti út á að skýra muninn á vísindum og galdri.
Posted by: Eva | 24.03.2008 | 13:01:50