Björgvin E. Vídalín, stjórnarformaður Dögunar í Reykjavík, hyggst á morgun leggja fram kæru til Sýslumannsins í Reykjavík vegna sveitarstjórnakosninga í Reykjavík. Þess er krafist að kosningin verði úrskurðuð ógild og að borgarstjórnarkosningar verði endurteknar.
Fern rök eru færð fyrir því að ógilda skuli kosninguna.
Í fyrsta lagi er krafist ógildingar á þeirri forsendu að oddviti eins framboðanna hafi ekki uppfyllt skilyrði um kjörgengi. Bent er á að málflutningur oddvitans hafi haft ótvíræð áhrif á úrslit kosninganna þar sem framboðið hafi samkvæmt skoðanakönnunum bætt við sig fylgi upp á 8-9 prósentustig eftir að hinn ókjörgengi oddviti fór að beita sér í kosningabaráttu.
Í öðru lagi er bent á að annmarkar á atkvæðatalningu í ráðhúsinu gefi tilefni til að efast um að talning hafi verið laus við mistök eða jafnvel misferli.
Í þriðja lagi dró borgarstjórn of lengi að kjósa yfirkjörstjórn og því telur kærandi ekki hægt að treysta óhlutdrægni hennar.
Í fjórða lagi segir að samkvæmt ákvörðun Hæstaréttar 25. janúar 2011 eigi jafnvel minni háttar gallar að hafa í för með sér ógildingu kosningar, þar með hafi Hæstiréttur sett bindandi fordæmi.
Til vara er þess krafist að kosningin verði ógild á þeirri forsendu að þar sem lögheimilsskráning oddvitans hafi verið ólögleg standist úrskurður yfirkjörstjórnar um kjörgengi hans ekki lög.
Í Frakklandi er komin upp sú undarlega staða að fólki er nú gert skylt að bera…
Það er áhugavert að dómari í fullu starfi skuli árum saman komast yfir aukavinnu sem krefst…
Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég pistil um hin undarlegu lög sem sett voru bótakrefjendum vegna sýknudóms…
Nýverið fjölluðu fjölmiðlar um bótagreiðslur ríkisins til brotaþola í Guðmundar- og Geirfinnsmálum og afkomenda þeirra.…
Sigrúnu er sagt upp störfum. Frekara vinnuframlag afþakkað en hún fær greidd laun meðan á…
Leikara eru dæmdar bætur vegna ólögmætrar uppsagnar og alda reiði og hneykslunar rís á samfélagsmiðlum.…