{"id":926,"date":"2012-04-18T22:44:33","date_gmt":"2012-04-18T22:44:33","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/?p=926"},"modified":"2017-09-11T11:28:50","modified_gmt":"2017-09-11T11:28:50","slug":"i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/","title":{"rendered":"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar"},"content":{"rendered":"<p><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-1327\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png\" alt=\"uppl\u00fdsingar\" width=\"691\" height=\"459\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png 691w, https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605-300x199.png 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 691px) 100vw, 691px\" \/><br \/>\n\u00dev\u00ed er enn\u00fe\u00e1 haldi\u00f0 fram sem sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00e1nast \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 kynfer\u00f0isbrota- menn sakfellda. A\u00f0 allt a\u00f0\u00a0<a href=\"http:\/\/smugan.is\/2012\/02\/samfelagid-er-fullt-af-naudgurum-ekki-lygasjukum-konum\/\">80% m\u00e1la s\u00e9 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1<\/a>, og enda \u00fe\u00f3tt m\u00e1l fari fyrir d\u00f3m s\u00e9u\u00a0<a href=\"http:\/\/smugan.is\/2011\/12\/karlaegt-rettarkerfi-besti-vinur-naudgarans\/\">f\u00e1ir sakfelldir<\/a>, a\u00f0 l\u00edti\u00f0 tillit s\u00e9 teki\u00f0 til andlegra \u00e1verka brota\u00feola og margar konur veigri s\u00e9r vi\u00f0 a\u00f0 k\u00e6ra \u00fear sem \u00fe\u00e6r gangi \u00ed gegnum a\u00f0ra nau\u00f0gun af h\u00e1lfu r\u00e9ttarkerfisins.<!--more--><\/p>\n<p>Lengst af tr\u00fa\u00f0i \u00e9g \u00feessu gagnr\u00fdnislaust. \u00dea\u00f0 var ekki fyrr en \u00e9g s\u00e1\u00a0<a href=\"http:\/\/www.rikissaksoknari.is\/media\/frettir\/skyrsla-kynferdisbrot-2007.pdf\">\u00feessa \u00fattekt<\/a>\u00a0sem mig f\u00f3r a\u00f0 gruna a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0ur \u00feess a\u00f0 svo m\u00f6rg m\u00e1l falla ni\u00f0ur s\u00e9u t\u00f6luvert fl\u00f3knari en svo a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 skella skuldinni \u00e1 &#8222;karll\u00e6gt r\u00e9ttarkerfi&#8220;.\u00a0 \u00dea\u00f0 er nefnilega ekki r\u00e9tt t\u00falkun a\u00f0 svo m\u00f6rgum m\u00e1lum s\u00e9 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1 hj\u00e1 l\u00f6greglu, \u00fev\u00ed samkv\u00e6mt \u00feessu eiga 40% ni\u00f0urfellinga s\u00e9r \u00fe\u00e1 sk\u00fdringu a\u00f0 konur fylgja m\u00e1lum ekki eftir. \u00deegar \u00e9g f\u00f3r svo a\u00f0 sko\u00f0a <a href=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/hvar-eru-oll-thessi-daemigerdu-syknumal\/\">d\u00f3ma \u00ed kynfer\u00f0isbrotam\u00e1lum<\/a>\u00a0sannf\u00e6r\u00f0ist \u00e9g um a\u00f0 sk\u00fdringin \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1ar konur k\u00e6ra kynfer\u00f0isbrot s\u00e9 ekki s\u00fa a\u00f0 d\u00f3mskerfi\u00f0 haldi hl\u00edfiskildi yfir nau\u00f0gurum.<\/p>\n<p>\u00c9g hef velt \u00fev\u00ed miki\u00f0 fyrir m\u00e9r hversvegna svo margar konur sem hafa samband vi\u00f0 l\u00f6gregluna vegna kynfer\u00f0isbrota fylgi m\u00e1lum ekki eftir. Helstu sk\u00fdringar sem m\u00e9r hafa komi\u00f0 til hugar eru eftirfarandi:<\/p>\n<p>-Konurnar sem tilkynna kynfer\u00f0isofbeldi f\u00e1 ekki uppl\u00fdsingar um n\u00e6sta skref.<br \/>\n-\u00deolendur eru hugsanlega oft veikir fyrir og f\u00e1 ekki a\u00f0sto\u00f0 til a\u00f0 fylgja m\u00e1lum eftir.<br \/>\n-Hluti \u00feolenda \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed eftir \u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00f3tt upplifun \u00feeirra hafi veri\u00f0 sl\u00e6m s\u00e9 m\u00e1li\u00f0 ekki k\u00e6ruh\u00e6ft og \u00fe\u00e6r konur sj\u00e1 ekki tilgang \u00ed a\u00f0 k\u00e6ra.<br \/>\n-Ekki ger\u00f0ar n\u00f3gu miklar kr\u00f6fur til fagmennsku hj\u00e1 kynfer\u00f0isbrotadeild.<br \/>\n-\u00deolendur m\u00e6ta fjandsamlegu vi\u00f0m\u00f3ti e\u00f0a \u00e1hugaleysi hj\u00e1 l\u00f6ggunni.<br \/>\n-L\u00f6ggan spyr \u00f3\u00fearfa spurninga e\u00f0a gefur \u00e1 einhvern h\u00e1tt \u00ed skyn a\u00f0 brota\u00feoli beri sj\u00e1lfur \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 gl\u00e6pnum.<br \/>\n-L\u00f6ggan \u00e1sakar brota\u00feola um a\u00f0 fara me\u00f0 rangt m\u00e1l e\u00f0a s\u00fdnir \u00fea\u00f0 me\u00f0 framkomu sinni a\u00f0 h\u00fan dragi fr\u00e1s\u00f6gnina \u00ed efa.<br \/>\n-M\u00e1lum stungi\u00f0 undir st\u00f3l e\u00f0a \u00feau dagar uppi \u00ed kerfinu.<\/p>\n<p>\u00deetta eru \u00fe\u00f3 a\u00f0eins m\u00ednar eigin vangaveltur og \u00e9g hef ekki gert tilraun til a\u00f0 f\u00e1 \u00fe\u00e6r sta\u00f0festar fyrr en n\u00fa \u00ed apr\u00edl.<\/p>\n<p><strong>Um kynfer\u00f0isbrotadeild<\/strong><\/p>\n<p>Kynfer\u00f0isbrotadeild l\u00f6greglunnar t\u00f3k til starfa \u00e1ri\u00f0 2007. Ellefu manns starfa hj\u00e1 deildinni. \u00cd fyrstu einskor\u00f0a\u00f0ist starf hennar vi\u00f0 ranns\u00f3kn kynfer\u00f0isbrota gagnvart fullor\u00f0num en \u00ed dag sinnir h\u00fan einnig kynfer\u00f0isbrotum gagnvart b\u00f6rnum, heimilsofbeldi og \u00f6\u00f0rum brotum sem eiga s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed n\u00e1num samb\u00f6ndum. \u00cd \u00fev\u00ed skyni a\u00f0 leita sk\u00fdringa \u00e1 \u00fev\u00ed hversvegna svo m\u00f6rg kynfer\u00f0isbrotam\u00e1l eru felld ni\u00f0ur og til a\u00f0 grennslast fyrir um hvort einhverjar af m\u00ednum tilg\u00e1tum \u00e6ttu vi\u00f0, heims\u00f3tti \u00e9g kynfer\u00f0isbrotadeild l\u00f6greglunnar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu \u00feann 3ja apr\u00edl sl. M\u00e9r var fyrst s\u00fdnt m\u00f3tt\u00f6kuherbergi sem \u00f6llum sem tilkynna kynfer\u00f0isbrot er bo\u00f0i\u00f0 inn \u00ed.\u00a0 \u00deetta er notaleg stofa me\u00f0 s\u00f3fum, pl\u00f6ntu og veggteppi, l\u00edti\u00f0 \u00e1berandi myndav\u00e9l og uppt\u00f6kut\u00e6ki. Gert er r\u00e1\u00f0 fyrir s\u00e6ti fyrir brota\u00feola, r\u00e9ttarg\u00e6slumann, fulltr\u00faa barnaverndar ef \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 og svo s\u00e6ti fyrir l\u00f6greglumann sem tekur sk\u00fdrsluna. S\u00e9rb\u00fain a\u00f0sta\u00f0a er \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki til sta\u00f0ar hj\u00e1 \u00f6llum l\u00f6gregluemb\u00e6ttum en kynfer\u00f0isbrotadeild l\u00f6greglunnar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0borgarsv\u00e6\u00f0inu sinnir meirihluta nau\u00f0gunarm\u00e1la.\u00a0 \u00c9g f\u00e9kk einnig t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a vi\u00f0 \u00ferj\u00e1 starfsmenn deildarinnar. H\u00e9r \u00e1 eftir fara samr\u00e6\u00f0ur okkar.<\/p>\n<p><strong>Vi\u00f0tal vi\u00f0 \u00ferj\u00e1 fulltr\u00faa deildarinnar<\/strong><\/p>\n<p><strong>N\u00fa eru\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 sinna mj\u00f6g vi\u00f0kv\u00e6mum m\u00e1laflokki. Eru einhverjar kr\u00f6fur ger\u00f0ar til starfsmanna kynfer\u00f0isbrotadeildar umfram t.d. umfer\u00f0arl\u00f6ggunnar?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru mj\u00f6g miklar kr\u00f6fur ger\u00f0ar til starfsmanna kynfer\u00f0isbrotadeildar. \u00dea\u00f0 er enginn r\u00e1\u00f0inn hinga\u00f0 inn nema hafa langa og v\u00ed\u00f0t\u00e6ka reynslu. Reynsla af ranns\u00f3kn ofbeldisbrota er skilyr\u00f0i og allir starfsmenn eru s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar, \u00fer\u00edr hafa fari\u00f0 \u00e1 s\u00e9rst\u00f6k n\u00e1mskei\u00f0 \u00e1 Englandi til a\u00f0 taka sk\u00fdrslur af b\u00f6rnum og \u00feolendum ofbeldisbrota, \u00fer\u00edr hafa s\u00e9rh\u00e6ft sig \u00ed a\u00f0 greina og meta barnan\u00ed\u00f0 \u00e1 netinu og vi\u00f0 a\u00f0 greina kynfer\u00f0islegt ofbeldi \u00ed gegnum samskiptas\u00ed\u00f0ur netsins, a\u00f0rir eru reyndir rannsakendur me\u00f0 \u00e1ralanga reynslu \u00ed ranns\u00f3knum ofbeldisbrota.<\/p>\n<p><strong>Samkv\u00e6mt yfirliti um afdrif kynfer\u00f0isbrotam\u00e1la fr\u00e1 \u00e1rinu 2008, eiga um 40% ni\u00f0urfellinga s\u00e9r \u00fe\u00e1 sk\u00fdringu a\u00f0 brota\u00feolar fylgja m\u00e1lum ekki eftir. Hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 einhverjar t\u00f6lur um \u00fea\u00f0 hversu margar \u00feessara kvenna draga k\u00e6runa til baka og hversu margar hafna samstarfi vi\u00f0 ykkur?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er mj\u00f6g sjaldg\u00e6ft a\u00f0 konur dragi k\u00e6rur til baka e\u00f0a sl\u00edti samstarfi. St\u00f3r meirihluti \u00feessara m\u00e1la sk\u00fdrist af \u00fev\u00ed a\u00f0 kynfer\u00f0isbrot er tilkynnt en svo er ekki l\u00f6g\u00f0 fram k\u00e6ra. Vi\u00f0 fylgjum tilkynningunum eftir me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tala vi\u00f0 brota\u00feola, vi\u00f0 spyrjum alltaf hvort \u00feeir \u00e6tli a\u00f0 k\u00e6ra enda er \u00fea\u00f0 meginreglan a\u00f0 brota\u00feoli hafi um \u00fea\u00f0 a\u00f0 segja hvort hann vilji halda m\u00e1linu \u00e1fram. Oftar en ekki er \u00f6lvun og \u00fereyta sem valda \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 leggja fram formlega k\u00e6ru strax e\u00f0a eftir sko\u00f0un \u00e1 ney\u00f0arm\u00f3tt\u00f6ku og sumar konur vilja hugsa sig um \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00e6r \u00e1kve\u00f0a hvort \u00fe\u00e6r leggi fram k\u00e6ru en \u00fe\u00e1 er \u00e1kv\u00f6r\u00f0unin oft tekin \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 r\u00e9ttarg\u00e6slumanninn.<\/p>\n<p><strong>Getur veri\u00f0 a\u00f0 brota\u00feolar f\u00e1i ekki fulln\u00e6gjandi uppl\u00fdsingar og \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00f6rf fyrir meiri stu\u00f0ning?<\/strong><\/p>\n<p>Vi\u00f0 teljum \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an s\u00e9 uppl\u00fdsingaskortur. \u00deegar brota\u00feoli kemur \u00e1<br \/>\nney\u00f0arm\u00f3tt\u00f6ku, f\u00e6r hann strax allar uppl\u00fdsingar um r\u00e9tt sinn og ney\u00f0arm\u00f3ttakan hefur samband vi\u00f0 r\u00e9ttarg\u00e6slumann en eitt meginstarf hans er a\u00f0 uppl\u00fdsa brota\u00feola um framgang m\u00e1lsins og hva\u00f0 hann eigi a\u00f0 gera n\u00e6st.<\/p>\n<p><strong>N\u00fa l\u00edtur m\u00f3tt\u00f6kuherbergi\u00f0 hj\u00e1 ykkur mj\u00f6g huggulega \u00fat og \u00fea\u00f0 hlj\u00f3mar traustvekjandi a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 \u00e1 a\u00f0 skipa vel menntu\u00f0u f\u00f3lki, en menntun \u00fat af fyrir sig hefur l\u00edti\u00f0 a\u00f0 segja ef f\u00f3lk hefur ekki tilfinningu fyrir \u00fev\u00ed sem \u00fea\u00f0 er a\u00f0 gera. Hvernig komi\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00ed veg fyrir slys eins og \u00fea\u00f0 a\u00f0 l\u00f6gregluma\u00f0ur sem tekur \u00e1 m\u00f3ti konu sem hefur or\u00f0i\u00f0 fyrir nau\u00f0gun s\u00fdni framkomu sem g\u00e6ti f\u00e6lt hana fr\u00e1?<\/strong><\/p>\n<p>Jafnvel \u00fe\u00f3tt hinga\u00f0 yr\u00f0i r\u00e1\u00f0inn einhver sem ekki er starfi s\u00ednu vaxinn er mj\u00f6g \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 \u00fea\u00f0 gerist. R\u00e9ttarg\u00e6sluma\u00f0urinn kemur \u00e1 sta\u00f0inn \u00e1 sama t\u00edma og brota\u00feoli og \u00fea\u00f0 fara engar yfirheyrslur fram \u00e1n \u00feess a\u00f0 r\u00e9ttarg\u00e6sluma\u00f0ur s\u00e9 vi\u00f0staddur svo hann myndi \u00fe\u00e1 strax gr\u00edpa inn \u00ed ef eitthva\u00f0 v\u00e6ri \u00f3e\u00f0lilegt vi\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0in.<\/p>\n<p><strong>Geti\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00fdst \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvernig sk\u00fdrslutaka fer fram, hva\u00f0a hlutverki gegnir t.d. myndav\u00e9lin?<\/strong><\/p>\n<p>Sk\u00fdrslutakan er tekin upp \u00e1 myndband me\u00f0 hlj\u00f3\u00f0r\u00e1s. Tilgangurinn er \u00ed senn s\u00e1 a\u00f0 a\u00f0 for\u00f0ast a\u00f0 trufla fr\u00e1s\u00f6gnina \u00e1 me\u00f0an veri\u00f0 er a\u00f0 skrifa ni\u00f0ur og einnig s\u00e1 a\u00f0 g\u00f3\u00f0 g\u00f6gn liggi fyrir um andlegt \u00e1stand brota\u00feola \u2013 og reyndar l\u00edka \u00feess sem gruna\u00f0ur er um broti\u00f0, en \u00fea\u00f0 er \u00f3metanlegt fyrir \u00e1k\u00e6ruvald a\u00f0 sj\u00e1 hvernig brota\u00feoli og einnig hinn k\u00e6r\u00f0i l\u00fdsa \u00feeirri atbur\u00f0ar\u00e1s sem er veri\u00f0 a\u00f0 spyrja um \u00feegar tekin er afsta\u00f0a til \u00feess hvort m\u00e1li\u00f0 hafi framgang e\u00f0ur ei.<\/p>\n<p><strong>\u00deannig a\u00f0 \u00fei\u00f0 taki\u00f0 ekki eing\u00f6ngu tillit til \u00e1verka og annarra \u00e1\u00fereifanlegra s\u00f6nnunargagna heldur sko\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0 einnig vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 sem benda til \u00e1falls?<\/strong><\/p>\n<p>J\u00e1, \u00fe.e.a.s. ekki vi\u00f0, heldur l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingarnir sem meta \u00fea\u00f0 hvort m\u00e1li\u00f0 er \u00e1k\u00e6ruh\u00e6ft. Okkar hlutverk er bara rannsaka m\u00e1li\u00f0, taka sk\u00fdrslur og safna \u00f6\u00f0rum g\u00f6gnum.<\/p>\n<p><strong>N\u00fa koma \u00feeir l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar v\u00e6ntanlega ekki a\u00f0 ranns\u00f3kninni sj\u00e1lfri en l\u00f6greglan getur samt sem \u00e1\u00f0ur haft sko\u00f0un \u00e1 m\u00e1linu. Er ekki h\u00e6tta \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 brota\u00feoli f\u00e1i strax \u00feau skilabo\u00f0 fr\u00e1 l\u00f6greglunni a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0i ekkert a\u00f0 vera a\u00f0 k\u00e6ra?<\/strong><\/p>\n<p>Nei, vi\u00f0 h\u00f6fum ekki \u00e1hrif \u00e1 \u00e1kv\u00f6r\u00f0un um \u00fea\u00f0 hvort m\u00e1li\u00f0 fer \u00e1fram og enda \u00fe\u00f3tt vi\u00f0\u00a0hef\u00f0um sko\u00f0un \u00e1 \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 ekkert \u00ed okkar verkahring a\u00f0 r\u00e6\u00f0a okkar pers\u00f3nulegu sko\u00f0anir. Auk \u00feess er r\u00e9ttarg\u00e6sluma\u00f0ur vi\u00f0staddur sk\u00fdrslut\u00f6ku og h\u00fan er tekin upp og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri algerlega \u00f3\u00e1s\u00e6ttanlegt ef starfsma\u00f0ur deildarinnar reyndi a\u00f0 hafa \u00e1hrif \u00e1 \u00fea\u00f0 hvort m\u00e1l er k\u00e6rt. Vi\u00f0 h\u00f6fum einnig \u00ed okkar verklagi a\u00f0 taka ekki afst\u00f6\u00f0u til \u00feess hvort m\u00e1li\u00f0 s\u00e9 fyrnt e\u00f0a ekki, s\u00fa \u00e1kv\u00f6r\u00f0un er tekin hj\u00e1 \u00e1k\u00e6ruvaldi e\u00f0a r\u00edkissaks\u00f3knara, vi\u00f0 t\u00f6kum ni\u00f0ur k\u00e6runa sem er s\u00ed\u00f0an send \u00e1k\u00e6ruvaldi til \u00e1kv\u00f6r\u00f0unar.<\/p>\n<p><strong>\u00c9g hef heyrt \u00fe\u00e1 sk\u00fdringu \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 konur fylgi m\u00e1lum ekki eftir, a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u spur\u00f0ar allskyns \u00f3vi\u00f0eigandi spurninga um drykkju s\u00edna, kl\u00e6\u00f0na\u00f0 og kynheg\u00f0un, sem ver\u00f0i til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r fyllist sj\u00e1lfs\u00e1s\u00f6kun e\u00f0a ver\u00f0i hr\u00e6ddar um a\u00f0 \u00fei\u00f0 tr\u00fai\u00f0 \u00feeim ekki. Eru einhver takm\u00f6rk fyrir \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00fei\u00f0 spyrji\u00f0 um?<\/strong><\/p>\n<p>Vi\u00f0 spyrjum aldrei pers\u00f3nulegra spurninga ef h\u00e6gt er a\u00f0 komast hj\u00e1 \u00fev\u00ed. Vi\u00f0 erum me\u00f0 sta\u00f0la\u00f0 handrit sem er nota\u00f0 \u00ed \u00f6llum sk\u00fdrslut\u00f6kum. Vi\u00f0 ver\u00f0um au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 spyrja \u00f3\u00fe\u00e6gilegra spurninga \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er ekkert h\u00e6gt a\u00f0 senda m\u00e1li\u00f0 \u00e1fram nema vi\u00f0 h\u00f6fum nokku\u00f0 sk\u00fdra mynd af \u00fev\u00ed hva\u00f0 ger\u00f0ist. Vi\u00f0 spyrjum um \u00f6lvun \u00feegar atbur\u00f0urinn \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 getur skipt t\u00f6luver\u00f0u m\u00e1li hvort konan var f\u00e6r um a\u00f0 sporna gegn verkna\u00f0inum e\u00f0a ekki. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 spyrja hvernig samskiptin voru, hva\u00f0 var sagt og gert og \u00e1 hva\u00f0a h\u00e1tt brota\u00feoli gaf til kynna a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri ekki viljug. Me\u00f0 \u00fev\u00ed erum vi\u00f0 au\u00f0vita\u00f0 ekki a\u00f0 draga fr\u00e1s\u00f6gnina \u00ed efa heldur a\u00f0 reyna a\u00f0 f\u00e1 mynd af atbur\u00f0inum. Vi\u00f0 spyrjum um kl\u00e6\u00f0na\u00f0 \u00fear sem \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 en eing\u00f6ngu til a\u00f0 gera okkur lj\u00f3sari mynd af \u00fev\u00ed hvernig nau\u00f0gunin f\u00f3r fram, t.d. me\u00f0 hva\u00f0a h\u00e6tti gerandinn gat kl\u00e6tt brota\u00feola \u00far f\u00f6tunum. Vi\u00f0 spyrjum um samband geranda og \u00feolanda og um a\u00f0dragandann a\u00f0 brotinu en vi\u00f0 spyrjum ekki um kynheg\u00f0un \u00feolanda vi\u00f0 \u00f6nnur t\u00e6kif\u00e6ri enda kemur h\u00fan m\u00e1linu ekkert vi\u00f0.<\/p>\n<p><strong>Geti\u00f0 \u00fei\u00f0 fullyrt a\u00f0 brota\u00feolar f\u00e1i ekki \u00feau skilabo\u00f0 a\u00f0 konur eigi ekki a\u00f0 gera m\u00e1l \u00far \u00fev\u00ed ef maki \u00feeirra nau\u00f0gar \u00feeim, e\u00f0a spurningar \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 &#8222;hversvegna varstu \u00ed svona stuttu pilsi?&#8220;<\/strong><\/p>\n<p>Vi\u00f0 spyrjum aldrei nokkurnt\u00edma sl\u00edkra spurninga e\u00f0a annarra sem \u00e6tla m\u00e1 a\u00f0 brota\u00feoli t\u00e6ki n\u00e6rri s\u00e9r, og \u00fea\u00f0 er banna\u00f0 samkv\u00e6mt okkar verklagsreglum enda kemur \u00fea\u00f0 m\u00e1linu ekkert vi\u00f0.<\/p>\n<p><strong>Ver\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0 v\u00f6r vi\u00f0 a\u00f0 konum l\u00ed\u00f0i illa undir sk\u00fdrslut\u00f6ku?<\/strong><\/p>\n<p>F\u00f3lk sem hefur or\u00f0i\u00f0 fyrir \u00feungb\u00e6rri reynslu \u00e1 oft erfitt me\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0 sem ger\u00f0ist og au\u00f0vita\u00f0 l\u00ed\u00f0ur m\u00f6rgum illa vegna \u00feess sem \u00fe\u00e6r hafa gengi\u00f0 \u00ed gegnum. En \u00e9g fullyr\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 l\u00ed\u00f0ur engum illa h\u00e9rna vegna framkomu l\u00f6greglunnar.<\/p>\n<p><strong>\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 ekki neinar sk\u00fdringar \u00e1 \u00fev\u00ed hversvegna f\u00f3lk k\u00e6rir ekki? Hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 t.d. haft samband vi\u00f0 konur sem hafa tilkynnt brot og hvatt \u00fe\u00e6r til a\u00f0 k\u00e6ra og fengi\u00f0 einhverjar sk\u00fdringar \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vegna \u00fe\u00e6r vilja \u00fea\u00f0 ekki?<\/strong><\/p>\n<p>J\u00e1, vi\u00f0 h\u00f6fum samband ef k\u00e6ra er ekki l\u00f6g\u00f0 fram og spyrjum hvort \u00fe\u00e6r \u00e6tli a\u00f0 leggja fram k\u00e6ru en \u00e1kv\u00f6r\u00f0unin er alfari\u00f0 hennar \u00ed samr\u00e1\u00f0i vi\u00f0 r\u00e9ttarg\u00e6slumanninn, enda er \u00fea\u00f0 ekki okkar hlutverk a\u00f0 hafa \u00e1hrif \u00e1 \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p><strong>F\u00e1i\u00f0 \u00fei\u00f0 kvartanir fr\u00e1 brota\u00feolum e\u00f0a r\u00e9ttarg\u00e6slum\u00f6nnum um a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 eitthva\u00f0 vi\u00f0 ykkar vinnubr\u00f6g\u00f0 sem valdi \u00fev\u00ed a\u00f0 konur vilji ekki vinna me\u00f0 ykkur?<\/strong><\/p>\n<p>Nei, vi\u00f0 ver\u00f0um miklu frekar v\u00f6r vi\u00f0 \u00feakkl\u00e6ti eftir a\u00f0 kynfer\u00f0isbrotadeildin t\u00f3k til starfa \u00e1ri\u00f0 2007. Vi\u00f0 f\u00e1um hinsvegar oft gagnr\u00fdni fr\u00e1 \u00feeim sem liggja undir grun. Stundum gerist \u00fea\u00f0 t.d. a\u00f0 kona tilkynnir kynfer\u00f0isbrot, meintur gerandi er handtekinn, yfirheyr\u00f0ur, settur \u00ed klefa og l\u00e1tinn gangast undir r\u00e9ttarl\u00e6knisfr\u00e6\u00f0ilega ranns\u00f3kn en svo er engin k\u00e6ra l\u00f6g\u00f0 fram. \u00c1s\u00f6kunin vir\u00f0ist oft koma manninum mj\u00f6g \u00e1 \u00f3vart, hann sta\u00f0h\u00e6fir a\u00f0 engin \u00fevingun af neinu tagi hafi \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0 og er mj\u00f6g \u00f3s\u00e1ttur vi\u00f0 okkur. Vi\u00f0 h\u00f6fum fengi\u00f0 \u00e1 okkur k\u00e6rur vegna svona m\u00e1la og menn fengi\u00f0 b\u00e6tur en \u00fea\u00f0 er ekki oft.<\/p>\n<p><strong>Setjum sem svo a\u00f0 kona sem k\u00e6rir kynfer\u00f0isofbeldi s\u00e9 \u00f3s\u00e1tt vi\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0 l\u00f6greglunnar. G\u00e6ti h\u00fan \u00fe\u00e1 sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r eitthvert anna\u00f0 til a\u00f0 leita r\u00e9ttar s\u00edns?<\/strong><\/p>\n<p>J\u00e1 h\u00fan g\u00e6ti k\u00e6rt okkur til yfirl\u00f6greglu\u00fej\u00f3ns og jafnvel beint k\u00e6ru sinni til r\u00edkissaks\u00f3knara. En \u00fear sem sk\u00fdrslutaka er tekin upp \u00e1 myndband og r\u00e9ttarg\u00e6sluma\u00f0ur vi\u00f0staddur, yr\u00f0i au\u00f0velt a\u00f0 f\u00e6ra s\u00f6nnur \u00e1 \u00fea\u00f0 ef starfsma\u00f0ur kynfer\u00f0isbrotadeildar ger\u00f0i sig sekan um a\u00f0 fara ekki eftir reglum \u00ed samskiptum vi\u00f0 brota\u00feola.<\/p>\n<p><strong>M\u00e9r finnst d\u00e1l\u00edti\u00f0 merkilegt a\u00f0 samkv\u00e6mt yfirlitinu fr\u00e1 2008, er mj\u00f6g h\u00e1tt hlutfall m\u00e1la \u00fear sem gerandinn finnst ekki. \u00deetta \u00e1tti vi\u00f0 \u00ed 30% \u00feeirra m\u00e1la sem voru ni\u00f0urfelld \u00feetta \u00e1r. Hversvegna gengur svona illa a\u00f0 finna \u00feessa menn?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er ekki viljaleysi til a\u00f0 rannsaka m\u00e1lin. Sk\u00fdringin er yfirleitt s\u00fa a\u00f0 konan getur ekki gefi\u00f0 uppl\u00fdsingar sem h\u00e6gt er a\u00f0 vinna \u00fat fr\u00e1. Konur hafa t.d. or\u00f0i\u00f0 fyrir nau\u00f0gunum inni \u00e1 yfirfullum skemmtist\u00f6\u00f0um, hafa engar pers\u00f3nuuppl\u00fdsingar um manninn og hann bara finnst ekki. Vi\u00f0 f\u00e1um l\u00edka d\u00e6mi \u00fear sem konan hefur bara mj\u00f6g \u00f3lj\u00f3sa hugmynd um \u00fea\u00f0 hvar gl\u00e6purinn f\u00f3r fram. Veit kannski bara a\u00f0 \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist \u00ed blokk \u00ed tilteknu hverfi. Vi\u00f0 gerum \u00fea\u00f0 sem \u00ed okkar valdi stendur \u00ed sl\u00edkum m\u00e1lum. Vi\u00f0 h\u00f6fum eki\u00f0 um b\u00e6inn me\u00f0 konur t\u00edmunum saman \u00ed von um a\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00e1tti sig \u00e1 sta\u00f0num. Ef konan getur gefi\u00f0 einhverjar uppl\u00fdsingar, \u00fe\u00f3tt ekki s\u00e9 nema bl\u00f3mapottur e\u00f0a s\u00e9rstakt teppi \u00ed stigagangi \u00fe\u00e1 f\u00f6rum vi\u00f0 og leitum. En stundum ber \u00fea\u00f0 bara engan \u00e1rangur.<\/p>\n<p><strong>Er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 helst \u00ed m\u00e1lum \u00fear sem konan var dau\u00f0adrukkin sem gerandinn finnst ekki?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er mj\u00f6g algengt a\u00f0 mikil \u00e1fengis- og v\u00edmuefnaneysla s\u00e9 tengd kynfer\u00f0isbrotum en \u00fea\u00f0 gerist l\u00edka a\u00f0 bl\u00e1edr\u00fa konur geti ekki me\u00f0 nokkru m\u00f3ti rifja\u00f0 upp neitt sem gagnast okkur vi\u00f0 ranns\u00f3kn.<\/p>\n<p><strong>Fyrir nokkrum vikum birti DV fr\u00e1s\u00f6gn konu sem sag\u00f0ist hafa k\u00e6rt nau\u00f0gun og be\u00f0i\u00f0 eftir svari \u00ed heilt \u00e1r. Er algengt a\u00f0 m\u00e1l dagi uppi \u00ed kerfinu e\u00f0a s\u00e9 stungi\u00f0 undir st\u00f3l?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er mj\u00f6g \u00f3venjulegt a\u00f0 svona langur t\u00edmi l\u00ed\u00f0i \u00e1n \u00feess a\u00f0 m\u00e1l s\u00e9 afgreitt en ef \u00fea\u00f0 dregst lengi \u00fe\u00e1 er sk\u00fdringin \u00e1st\u00e6\u00f0ur sem vi\u00f0 r\u00e1\u00f0um ekki vi\u00f0. T.d. g\u00e6ti veri\u00f0 a\u00f0 gerandinn s\u00e9 staddur erlendis og ekki h\u00e6gt a\u00f0 n\u00e1 \u00ed hann til a\u00f0 yfirheyra hann. M\u00e1lum er aldrei stungi\u00f0 undir st\u00f3l. \u00dea\u00f0 er allt of miki\u00f0 eftirlit til a\u00f0 \u00fea\u00f0 eigi a\u00f0 geta gerst. \u00dea\u00f0 eru \u00f6ll m\u00e1l skr\u00e1\u00f0 hj\u00e1 okkur og vi\u00f0 f\u00f6rum yfir st\u00f6\u00f0una \u00ed hverri einustu viku. Okkar vinnuregla er s\u00fa a\u00f0 \u00fea\u00f0 l\u00ed\u00f0i ekki lengri t\u00edmi en 60 dagar fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 k\u00e6ra er l\u00f6g\u00f0 fram og \u00fear til brota\u00feoli f\u00e6r svar um hvort m\u00e1li\u00f0 s\u00e9 tali\u00f0 \u00e1k\u00e6ruh\u00e6ft. \u00dev\u00ed mi\u00f0ur hefur t\u00edminn sem ranns\u00f3kn tekur veri\u00f0 a\u00f0 lengjast \u00fev\u00ed verkefnum deildarinnar hefur fj\u00f6lga\u00f0 of miki\u00f0 mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 mannafla en vi\u00f0 reynum a\u00f0 b\u00e6ta \u00fea\u00f0 upp me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tryggja brota\u00feolum mj\u00f6g grei\u00f0an a\u00f0gang a\u00f0 l\u00f6greglunni. \u00deeir geta haft samband \u00ed okkar pers\u00f3nulegu s\u00edman\u00famer, jafnvel utan vinnut\u00edma og \u00feetta er betri \u00fej\u00f3nusta en hj\u00e1 flestum \u00f6\u00f0rum stofnunum. Auk \u00feess getur brota\u00feoli alltaf haft samband vi\u00f0 sinn r\u00e9ttarg\u00e6slumann sem \u00e1 a\u00f0 geta afla\u00f0 uppl\u00fdsinga um \u00fea\u00f0 hversvegna m\u00e1l hefur dregist.<\/p>\n<p><strong>Af og til kemur upp umr\u00e6\u00f0a um \u00fea\u00f0 misr\u00e6mi sem er \u00e1 milli fj\u00f6lda \u00feeirra m\u00e1la sem eru k\u00e6r\u00f0 til l\u00f6greglu og tilkynnt til St\u00edgam\u00f3ta. \u00c1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri voru t.d. 18 h\u00f3pnau\u00f0ganir tilkynntar til St\u00edgam\u00f3ta en a\u00f0eins tv\u00e6r \u00feeirra k\u00e6r\u00f0ar til ykkar. Fengu\u00f0 \u00fei\u00f0 einhverjar \u00f3formlegar tilkynningar um fleiri h\u00f3pnauganir e\u00f0a einhverja vitneskju um \u00feau eftir \u00f6\u00f0rum lei\u00f0um?<\/strong><\/p>\n<p>Nei. Vi\u00f0 vitum ekki um \u00f6nnur m\u00e1l en \u00feessi tv\u00f6.<\/p>\n<p><strong>En hva\u00f0 me\u00f0 a\u00f0ra brotaflokka. Kannast l\u00f6greglan t.d. vi\u00f0 fimmt\u00e1n mansalsm\u00e1l sem St\u00edgam\u00f3takonur tala um?<\/strong><\/p>\n<p>Nei. Fr\u00e1 upphafi h\u00f6fum vi\u00f0 fengi\u00f0 tv\u00f6 m\u00e1l \u00fear sem grunur l\u00e9k \u00e1 mansali. \u00deau f\u00f3ru b\u00e6\u00f0i fyrir d\u00f3m og \u00ed \u00f6\u00f0ru \u00feeirra var sakfellt.<\/p>\n<p><strong>Eru\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00ed einhverju samstarfi vi\u00f0 hreyfingar \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 St\u00edgam\u00f3t og Kvennaathvarfi\u00f0?<\/strong><\/p>\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6fum g\u00f3\u00f0 samskipti vi\u00f0 \u00feessar hreyfingar og einnig vi\u00f0 Bl\u00e1tt \u00e1fram og Drekasl\u00f3\u00f0 en \u00fea\u00f0 hefur ekki veri\u00f0 um formlegt samstarf a\u00f0 r\u00e6\u00f0a nema vi\u00f0 Kvennaathvarfi\u00f0. \u00deessar hreyfingar hafa veitt \u00feolendum mikinn stu\u00f0ning og einnig komi\u00f0 fr\u00e6\u00f0slu \u00e1 framf\u00e6ri vi\u00f0 almenning sem a\u00f0 okkar mati er mj\u00f6g mikilv\u00e6gt. \u00cd dag eru konur t.d. almennt me\u00f0vita\u00f0ar um a\u00f0 \u00fe\u00e6r eigi a\u00f0 leita strax \u00e1 ney\u00f0arm\u00f3tt\u00f6ku og \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00f3skynsamlegt a\u00f0 dr\u00edfa sig \u00ed sturtu og henda rifnum f\u00f6tum e\u00f0a \u00f6\u00f0rum s\u00f6nnunarg\u00f6gnum \u00fear \u00e1 me\u00f0al n\u00e6rfatna\u00f0i.<\/p>\n<p><strong>\u00c9g hef \u00e1hyggjur af hugmyndum um \u00f6fuga s\u00f6nnunarbyr\u00f0i \u00ed \u00feessum m\u00e1laflokki. \u00deessi umr\u00e6\u00f0a kemur upp af og til og \u00e9g hef \u00e1hyggjur af \u00f6llum tilraunum til a\u00f0 endurskilgreina kynfer\u00f0isofbeldi. Hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 or\u00f0i\u00f0 meira v\u00f6r vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00e1rum a\u00f0 m\u00e1l sem eru \u00e1 gr\u00e1u sv\u00e6\u00f0i s\u00e9u k\u00e6r\u00f0?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 kemur fyrir a\u00f0 m\u00e1l eru k\u00e6r\u00f0 sem leikur vafi \u00e1 a\u00f0 falli undir skilgreiningu laganna \u00e1 kynfer\u00f0isofbeldi en engin greinileg aukning \u00e1 sl\u00edkum m\u00e1lum.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p><strong>Ni\u00f0ursta\u00f0a<\/strong><\/p>\n<p>Ni\u00f0ursta\u00f0a m\u00edn eftir \u00feessa heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar er s\u00fa a\u00f0 ef \u00feolendur kynfer\u00f0isbrota upplifa a\u00f0ra nau\u00f0gun af h\u00e1lfu r\u00e9ttarkerfisins, \u00fe\u00e1 s\u00e9 sk\u00fdringin allavega ekki karll\u00e6gt r\u00e9ttarkerfi \u00fev\u00ed verklagsreglur gera r\u00e1\u00f0 fyrir a\u00f0 fullt tillit s\u00e9 teki\u00f0 til \u00feess a\u00f0 um vi\u00f0kv\u00e6m m\u00e1l er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. Engar reglur koma \u00ed veg fyrir mannleg mist\u00f6k e\u00f0a hreinan og kl\u00e1ran afglapah\u00e1tt og reglur tryggja ekki a\u00f0 ekkert fari \u00farskei\u00f0is. \u00dea\u00f0 er vissulega m\u00f6gulegt a\u00f0 hluti af \u00feeim mikla fj\u00f6lda kvenna sem \u00e1kve\u00f0ur a\u00f0 k\u00e6ra ekki kynfer\u00f0isbrot hafi or\u00f0i\u00f0 fyrir einhverri \u00feeirri reynslu sem hrekur \u00fe\u00e6r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 k\u00e6ra en \u00fe\u00e6r \u00e6ttu \u00fe\u00e1 tv\u00edm\u00e6lalaust a\u00f0 leggja fram k\u00e6ru og segja fr\u00e1 reynslu sinni opinberlega. \u00c9g minnist \u00feess ekki a\u00f0 hafa heyrt eina einustu reynslus\u00f6gu af \u00fev\u00ed tagi \u00ed meira en 20 \u00e1r \u00fe\u00f3tt \u00fdmsir telji v\u00edst a\u00f0 konur s\u00e9u yfirheyr\u00f0ar um dr\u00e6suh\u00e1tt sinn og sagt a\u00f0 h\u00e6tta \u00feessu v\u00e6li \u00feegar \u00fe\u00e6r k\u00e6ra nau\u00f0gun.<\/p>\n<p>\u00c9g velti \u00fev\u00ed fyrir m\u00e9r hvort sk\u00fdringin \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 svo margar konur sem upplifa nau\u00f0gun k\u00e6ra hana ekki, s\u00e9 allsekki karll\u00e6gt r\u00e9ttarkerfi, heldur s\u00fa a\u00f0 konur s\u00e9u \u00ed r\u00edkari m\u00e6li farnar a\u00f0 t\u00falka \u00f6mulega kynl\u00edfsreynslu sem nau\u00f0gun, \u00fe\u00f3tt engin nau\u00f0ung hafi \u00e1tt s\u00e9r sta\u00f0. Getur veri\u00f0 a\u00f0 \u00e1kve\u00f0inn l\u00edfsst\u00edll sem er or\u00f0inn almennari og vi\u00f0urkenndari en \u00e1\u00f0ur, auki \u00e1h\u00e6ttuna \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk ver\u00f0i fyrir sl\u00e6mri kynl\u00edfsreynslu? Getur veri\u00f0 a\u00f0 \u00feegar f\u00f3lk, stundum kornungt, stofnar til kynna vi\u00f0 \u00f3kunnuga, jafnvel til h\u00f3pkynl\u00edfs undir miklum \u00e1fengis\u00e1hrifum, aukist h\u00e6ttan \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i fyrir kynfer\u00f0islegum \u00e1f\u00f6llum? Og getur veri\u00f0 a\u00f0 forvarnir \u00e6ttu kannski a\u00f0 beinast gegn heg\u00f0un sem eykur l\u00edkurnar \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00f3lk af b\u00e1\u00f0um kynjum lendi \u00ed a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem \u00fea\u00f0 r\u00e6\u00f0ur ekki vi\u00f0, fremur en \u00fev\u00ed a\u00f0 dreifa hugmyndum um a\u00f0 nau\u00f0ganir s\u00e9u vi\u00f0urkennd heg\u00f0un, b\u00e6\u00f0i me\u00f0al almennings og innan r\u00e9ttarkerfsins?<\/p>\n<p><strong>Vi\u00f0b\u00f3t, daginn eftir birtingu<\/strong><\/p>\n<p>Nokkrir hafa l\u00fdst \u00fev\u00ed vi\u00f0horfi s\u00ednu a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 rangt af m\u00e9r a\u00f0 veita kynfer\u00f0isbrotadeild l\u00f6grelunnar &#8222;drottningarvi\u00f0tal&#8220;.<\/p>\n<p>\u00c1rum saman hafa talsmenn \u00feolenda \u00ed nau\u00f0gununarm\u00e1lum fengi\u00f0 a\u00f0 halda \u00fev\u00ed fram algerlega gagnr\u00fdnislaust a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 svo f\u00e1 m\u00e1l eru k\u00e6r\u00f0 s\u00e9 s\u00fa a\u00f0 \u00feolendur gangi \u00ed gegnum a\u00f0ra nau\u00f0gun af h\u00e1lfu r\u00e9ttarkerfisins. Einu tilraunirnar sem \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 til a\u00f0 skapa einhverskonar m\u00f3tv\u00e6gi eru opinberar sk\u00fdrslur um afdrif nau\u00f0gunarm\u00e1la og stutt grein \u00e1 vef d\u00f3mst\u00f3lanna \u00fear sem \u00fatsk\u00fdrt er a\u00f0 d\u00f3mar byggist \u00e1 t\u00falkun laganna en ekki ge\u00f0\u00fe\u00f3tta\u00e1kv\u00f6r\u00f0un d\u00f3mara.\u00a0 \u00c9g spyr \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 sem ofb\u00fd\u00f0ur \u00feessi freklega \u00e1r\u00e1s m\u00edn \u00e1 \u00fe\u00e1 almennu sko\u00f0un a\u00f0 l\u00f6greglan leiki s\u00e9r a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 p\u00edna f\u00f3rnarl\u00f6mb nau\u00f0gana:<\/p>\n<p>&#8211; Er einhver spurning \u00ed \u00feessu vi\u00f0tali sem \u00fe\u00e9r finnst ekki \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 almenningur f\u00e1i svar vi\u00f0?<\/p>\n<p>&#8211; Er eitthvert svar fr\u00e1 l\u00f6greglunni sem \u00fe\u00fa telur a\u00f0 s\u00e9 rangt?<\/p>\n<p>&#8211; Hvern finnst \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00e9g hef\u00f0i \u00e1tt a\u00f0 spyrja um verklag kynfer\u00f0isbrotadeildar ef ekki l\u00f6gguna sj\u00e1lfa?<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dev\u00ed er enn\u00fe\u00e1 haldi\u00f0 fram sem sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00e1nast \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 kynfer\u00f0isbrota- menn sakfellda. A\u00f0 allt a\u00f0\u00a080% m\u00e1la s\u00e9 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1, og enda \u00fe\u00f3tt m\u00e1l fari fyrir d\u00f3m s\u00e9u\u00a0f\u00e1ir sakfelldir, a\u00f0 l\u00edti\u00f0 tillit s\u00e9 teki\u00f0 til andlegra &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":1327,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[13,1,62],"tags":[328,302],"class_list":["post-926","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kyn-ofbeldi-og-rettarkerfid","category-kyndillinn","category-vidtol","tag-logreglan","tag-rettarkerfid"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.4 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar - Kyndillinn<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar - Kyndillinn\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"\u00dev\u00ed er enn\u00fe\u00e1 haldi\u00f0 fram sem sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00e1nast \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 kynfer\u00f0isbrota- menn sakfellda. A\u00f0 allt a\u00f0\u00a080% m\u00e1la s\u00e9 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1, og enda \u00fe\u00f3tt m\u00e1l fari fyrir d\u00f3m s\u00e9u\u00a0f\u00e1ir sakfelldir, a\u00f0 l\u00edti\u00f0 tillit s\u00e9 teki\u00f0 til andlegra &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Kyndillinn\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2012-04-18T22:44:33+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-09-11T11:28:50+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"691\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"459\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/png\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"19 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar\",\"datePublished\":\"2012-04-18T22:44:33+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-11T11:28:50+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/\"},\"wordCount\":3814,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2012\\\/04\\\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png\",\"keywords\":[\"L\u00f6greglan\",\"R\u00e9ttarkerfi\u00f0\"],\"articleSection\":[\"Kyn, ofbeldi og r\u00e9ttarkerfi\u00f0\",\"Kyndillinn\",\"Vi\u00f0t\u00f6l og gestapistlar\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/\",\"name\":\"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar - Kyndillinn\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2012\\\/04\\\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png\",\"datePublished\":\"2012-04-18T22:44:33+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-11T11:28:50+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2012\\\/04\\\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2012\\\/04\\\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png\",\"width\":691,\"height\":459},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/\",\"name\":\"Kyndillinn\",\"description\":\"Eva um kyn og kl\u00e1m\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar - Kyndillinn","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar - Kyndillinn","og_description":"\u00dev\u00ed er enn\u00fe\u00e1 haldi\u00f0 fram sem sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 n\u00e1nast \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 kynfer\u00f0isbrota- menn sakfellda. A\u00f0 allt a\u00f0\u00a080% m\u00e1la s\u00e9 v\u00edsa\u00f0 fr\u00e1, og enda \u00fe\u00f3tt m\u00e1l fari fyrir d\u00f3m s\u00e9u\u00a0f\u00e1ir sakfelldir, a\u00f0 l\u00edti\u00f0 tillit s\u00e9 teki\u00f0 til andlegra &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/","og_site_name":"Kyndillinn","article_published_time":"2012-04-18T22:44:33+00:00","article_modified_time":"2017-09-11T11:28:50+00:00","og_image":[{"width":691,"height":459,"url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png","type":"image\/png"}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"19 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar","datePublished":"2012-04-18T22:44:33+00:00","dateModified":"2017-09-11T11:28:50+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/"},"wordCount":3814,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png","keywords":["L\u00f6greglan","R\u00e9ttarkerfi\u00f0"],"articleSection":["Kyn, ofbeldi og r\u00e9ttarkerfi\u00f0","Kyndillinn","Vi\u00f0t\u00f6l og gestapistlar"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/","name":"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar - Kyndillinn","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png","datePublished":"2012-04-18T22:44:33+00:00","dateModified":"2017-09-11T11:28:50+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/#primaryimage","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png","contentUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2012\/04\/Screenshot-from-2014-08-26-123605.png","width":691,"height":459},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/i-framhaldi-af-heimsokn-minni-til-kynferdisbrotadeildar\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Heims\u00f3kn til kynfer\u00f0isbrotadeildar l\u00f6greglunnar"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/","name":"Kyndillinn","description":"Eva um kyn og kl\u00e1m","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/926","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=926"}],"version-history":[{"count":7,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/926\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2105,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/926\/revisions\/2105"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/media\/1327"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=926"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=926"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=926"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}