{"id":578,"date":"2013-01-24T23:57:59","date_gmt":"2013-01-24T23:57:59","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/?p=578"},"modified":"2017-09-11T10:48:48","modified_gmt":"2017-09-11T10:48:48","slug":"thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/","title":{"rendered":"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-580\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg\" alt=\"15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300\" width=\"300\" height=\"300\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg 300w, https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300-150x150.jpg 150w\" sizes=\"auto, (max-width: 300px) 100vw, 300px\" \/><\/a>Af hverju \u00fearf a\u00f0 jafna kynjahlutf\u00f6llin \u00ed spurningakeppni framhaldssk\u00f3lanna?<\/p>\n<p>A\u00f0 s\u00f6gn Stef\u00e1ns P\u00e1lssonar \u00fearf kynjakv\u00f3ta af \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0<em>Gettu betu<\/em>r er ekki n\u00f3gu gott sj\u00f3nvarpsefni eins og er. Af\u00a0<a href=\"http:\/\/knuz.is\/2013\/01\/23\/231-hvernig-gettu-betur-eydilagdi-daginn\/\" target=\"_blank\">pistli hans<\/a>\u00a0\u00e1 Kn\u00fazinu \u00ed g\u00e6r m\u00e1 einnig r\u00e1\u00f0a a\u00f0 hann \u00fej\u00e1ist af samviskubiti yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa skapa\u00f0 str\u00e1kamenningu. Eins og hann or\u00f0ar \u00fea\u00f0; \u201e\u00e9g skapa\u00f0i skr\u00edmsli\u201c. Str\u00e1kamenning er \u201eskr\u00edmsli\u201c.<!--more--><\/p>\n<p>Stef\u00e1ni gengur gott eitt til en \u00feessar forsendur hans eru ekki tr\u00faver\u00f0ugar. Keppnin hefur fr\u00e1 upphafi noti\u00f0 mikilla vins\u00e6lda og \u00fea\u00f0 getur varla talist a\u00f0kallandi a\u00f0 auka \u00e1horfi\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1ttinn. \u00dear fyrir utan eru jafnari kynjahlutf\u00f6ll engin trygging fyrir auknum g\u00e6\u00f0um. \u00dea\u00f0 er l\u00edka m\u00f3tsagnakennt a\u00f0 Stef\u00e1n vilji endilega innv\u00edgja st\u00falkur \u00ed menningu sem hann sj\u00e1lfur kallar \u201eskr\u00edmsli\u201c. \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9u ekki, \u00feegar upp er sta\u00f0i\u00f0, fyrst og fremst jafnr\u00e9ttissj\u00f3narmi\u00f0, sem vaka fyrir Stef\u00e1ni? Honum fannst gaman a\u00f0 vera me\u00f0 \u00ed \u00feessari keppni og vill ekki a\u00f0 stelpur fari \u00feess \u00e1 mis.<\/p>\n<p>Jafnr\u00e9tti er gott og fagurt en \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir kynjahallanum er bara ekkert s\u00fa a\u00f0 stelpum s\u00e9 meina\u00f0ur a\u00f0gangur a\u00f0 keppninni, heldur s\u00fa a\u00f0 f\u00e1ar stelpur s\u00fdna \u00e1huga \u00e1 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku. \u00dea\u00f0 \u00feykir miki\u00f0 vandam\u00e1l og kynjakv\u00f3taumr\u00e6\u00f0a s\u00ed\u00f0ustu daga endur\u00f3mar sj\u00f3narmi\u00f0 \u00feeirrar hreyfingar sem stal kvenfrelsishugtakinu. Feminismi merkir ekki lengur j\u00f6fn t\u00e6kif\u00e6ri fyrir b\u00e6\u00f0i kynin heldur a\u00f0 karla- og kvennamenningu skuli \u00fatr\u00fdmt.<\/p>\n<h4><\/h4>\n<h4><strong>Str\u00e1kamenning er merkilegri en stelpnamenning<\/strong><\/h4>\n<p>Helsta \u00e1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 kvenhyggjuf\u00f3lki finnst nau\u00f0synlegt a\u00f0 fleiri stelpur taki \u00fe\u00e1tt \u00ed\u00a0<em>Gettu betur<\/em>\u00a0er s\u00fa a\u00f0 str\u00e1kamenning er \u00ed e\u00f0li s\u00ednu svo miklu eftirs\u00f3knarver\u00f0ari en hug\u00f0arefni st\u00falkna.\u00a0\u00c9g ver\u00f0 allavega ekki v\u00f6r vi\u00f0 neinar \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e1ir str\u00e1kar taki \u00fe\u00e1tt \u00ed s\u00f6ngkeppni framhaldssk\u00f3lanna e\u00f0a Skrekk.<\/p>\n<p>\u00deetta vi\u00f0horf er l\u00edka \u00e1berandi \u00ed umr\u00e6\u00f0um um vinnumarka\u00f0inn. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 hefja kvennast\u00f6rf til vegs og vir\u00f0ingar, er stefnt a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 auka hlut kvenna \u00ed hef\u00f0bundnum karlagreinum og efla \u00a0\u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00feeirra \u00ed valdakerfinu. Valdakerfi sem vi\u00f0heldur misr\u00e9tti. Mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 stelpur tileinki s\u00e9r str\u00e1kamenningu er angi af \u00feessu vi\u00f0horfi og athyglisvert er a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur ekki gert keppnina neitt kvenv\u00e6nni \u00fe\u00f3tt konur hafi sami\u00f0 spurningarnar og veri\u00f0 d\u00f3marar og spyrlar. Konur hafa \u00feannig gengi\u00f0 inn \u00ed skr\u00edmslamenningu Stef\u00e1ns en ekki breytt henni.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h4><strong>Ef stelpur taka ekki \u00fe\u00e1tt \u00ed str\u00e1kamenningu \u00fe\u00e1 er eitthva\u00f0 a\u00f0 \u00feeim<\/strong><\/h4>\n<p>Sk\u00fdringin \u00e1 \u00e1hugaleysi stelpna er ekki s\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00e6r hafi eitthva\u00f0 \u00fearfara vi\u00f0 t\u00edma sinn a\u00f0 gera. Stelpurnar hlj\u00f3ta a\u00f0 vera svona k\u00faga\u00f0ar. \u00de\u00e6r skortir sj\u00e1lfstraust og hugrekki til a\u00f0 l\u00e1ta lj\u00f3s sitt sk\u00edna.<\/p>\n<p>Spyrja m\u00e1 hvort unglingur sem \u00feorir ekki a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed keppni, af \u00f3tta vi\u00f0 kynjaford\u00f3ma, hefur bur\u00f0i til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00f3sigur en auk \u00feess er \u00feessi hugmynd ni\u00f0randi fyrir st\u00falkur.\u00a0Ekki er a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 \u00f3framf\u00e6rni og ragmennska h\u00e1i \u00feeim stelpum sem taka \u00fe\u00e1tt \u00ed Skrekk, s\u00f6ngkeppni framhaldssk\u00f3lanna, fimleikam\u00f3tum e\u00f0a free style danskeppnum.<\/p>\n<p>L\u00e1gt sj\u00e1lfsmat kvenna er einnig vins\u00e6l sk\u00fdring \u00e1 slakri \u00fe\u00e1tt\u00f6ku kvenna \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum, raunv\u00edsindum o.fl. M\u00e9r finnst \u00feessi hugmynd kvenfjandsamleg.\u00a0\u00dea\u00f0 er ekki galli \u00e1 tegundinni a\u00f0 hafa minna keppnisskap e\u00f0a \u00f6nnur \u00e1hugasvi\u00f0 en karlar og m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 ekki bo\u00f0leg umr\u00e6\u00f0a a\u00f0 stelpur s\u00e9u svo litlar \u00ed s\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00e6r \u00feori ekki inn \u00ed \u00feessa keppni.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h4><strong>Stelpur eru vanh\u00e6far til a\u00f0 taka sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0ar \u00e1kvar\u00f0anir<\/strong><\/h4>\n<p>Stelpur vita ekki hva\u00f0 \u00fe\u00e6r vilja. \u00deessvegna \u00feurfa \u00fe\u00e6r s\u00e9rstaka hvatningu til a\u00f0 skr\u00e1 sig \u00ed \u00feessa keppni. J\u00e1, einmitt! Hversvegna \u00e6tti kl\u00e1r stelpa frekar a\u00f0 vilja m\u00e6ta \u00e1 k\u00f3r\u00e6fingar \u00e1 kv\u00f6ldin, verja helgunum me\u00f0 vinum s\u00ednum e\u00f0a lesa undir pr\u00f3f? Hver tr\u00fair \u00fev\u00ed \u00ed alv\u00f6ru a\u00f0 h\u00fan sj\u00e1i meiri tilgang \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 lesa eitthva\u00f0 \u00ed samhengi, sj\u00e1lfri s\u00e9r til \u00e1n\u00e6gju, en\u00a0a\u00f0 l\u00e6ra sm\u00e1smugulegar sta\u00f0reyndir utan a\u00f0 og \u00fej\u00e1lfa sig \u00ed a\u00f0 ry\u00f0ja \u00feeim \u00fat \u00far s\u00e9r \u00e1 \u00f3gnarhra\u00f0a?<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 vi\u00f0horf a\u00f0 gildismat kvenna s\u00e9 galla\u00f0, og \u00feessvegna \u00feurfi a\u00f0 st\u00fdra \u00feeim inn \u00e1 r\u00e9ttar brautir, er ekki bundi\u00f0 vi\u00f0 unglinga. \u00dea\u00f0 \u00feykir t.d. merki um kynjamisr\u00e9tti hve f\u00e1ar menntakonur s\u00e6kjast eftir frama innan v\u00edsindasamf\u00e9lagsins. \u00dea\u00f0 er ekki snj\u00f6ll \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 r\u00e1\u00f0a sig \u00ed vel launa\u00f0 starf \u00ed einkageiranum heldur hlj\u00f3ta konur a\u00f0 eiga erfitt uppdr\u00e1ttar \u00ed h\u00e1sk\u00f3lasamf\u00e9laginu. \u00dea\u00f0 hl\u00fdtur a\u00f0 vera svo \u00f3gurlega merkilegt a\u00f0 geta s\u00e9r nafn innan akadem\u00edunnar a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00fatiloka\u00f0 a\u00f0 mennta\u00f0ar konur sj\u00e1i hagsmunum s\u00ednum betur borgi\u00f0 annarssta\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00c9g s\u00e9 ekkert dapurlegt vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 vilja ekki f\u00f3rna \u00f6llum fr\u00edt\u00edma s\u00ednum \u00ed marga m\u00e1nu\u00f0i fyrir \u00a0fimmt\u00e1n m\u00edn\u00fatna fr\u00e6g\u00f0 og vert v\u00e6ri a\u00f0 spyrja hva\u00f0an s\u00fa hugmynd er sprottin a\u00f0 st\u00falkur s\u00e9u ekki einf\u00e6rar um a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a hva\u00f0 \u00feeim finnist eftirs\u00f3knarvert. Af hverju halda feministar sl\u00edkri trygg\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00feeir kalla [ranglega] \u201efe\u00f0raveldi\u201c. Af hverju vilja \u00feeir yfirtaka \u201efe\u00f0raveldi\u00f0\u201c; taka sj\u00e1lfir a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 stj\u00f3rna stelpum? Af hverju ekki bara l\u00e1ta stelpur \u00ed fri\u00f0i e\u00f0a jafnvel stu\u00f0la a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra eigin menning f\u00e1i meira v\u00e6gi \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum?<\/p>\n<h4><\/h4>\n<h4><strong>Str\u00e1kamenning og valdakerfi\u00f0<\/strong><\/h4>\n<p>Enn ein r\u00f6k\u00a0fyrir nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 taka upp kynjakv\u00f3ta \u00ed unglingakeppnum eru \u00feau a\u00f0\u00a0<em>Gettu betur\u00a0<\/em>og\u00a0<em>Morf\u00eds<\/em>, s\u00e9u \u00e1fangar \u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 p\u00f3lit\u00edskum frama.<\/p>\n<p>J\u00e1, st\u00falka sem stefnir \u00e1 valdabr\u00f6lt \u00a0\u00e6tti endilega a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed\u00a0<em>Gettu betur<\/em>. \u00de\u00e1 f\u00e6r h\u00fan v\u00f6ld. Kannski ver\u00f0ur h\u00fan jafn voldug og Stef\u00e1n P\u00e1lsson sem oft hefur, \u00ed krafti valdast\u00f6\u00f0u sinnar innan Samtaka herna\u00f0arandst\u00e6\u00f0inga, sent \u00fat fr\u00e9tttilkynningar og allt. Hugsi\u00f0 ykkur bara hver \u00f6rl\u00f6g Stef\u00e1ns hef\u00f0u or\u00f0i\u00f0 ef hann hef\u00f0i veri\u00f0 stelpa. \u00de\u00e1 hef\u00f0i hann sennilega aldrei teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed<em>\u00a0Gettu betur<\/em>\u00a0og hef\u00f0i aldrei \u00f6\u00f0last \u00feau v\u00f6ld sem hann \u00a0hefur \u00ed dag.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<h4><strong>En ska\u00f0ar \u00fea\u00f0 einhvern a\u00f0 taka upp kynjakv\u00f3ta?<\/strong><\/h4>\n<p>Nei, \u00e9g held ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00ed sj\u00e1lfu s\u00e9r sl\u00e6mt a\u00f0 taka upp kynjakv\u00f3ta \u00ed \u00feessum spurninga\u00fe\u00e6tti og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri m.a.s. \u00e1hugavert. Kannski myndi\u00a0<em>Gettu betur<\/em>\u00a0breytast \u00ed stelpnakeppni \u00e1 nokkrum \u00e1rum.\u00a0Str\u00e1kakl\u00edkur og stelpnakl\u00edkur hafa alltaf veri\u00f0 til og ekkert \u00f3l\u00edklegt a\u00f0 kl\u00e1rar stelpur hef\u00f0u meiri \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 rotta sig saman me\u00f0 stelpum en str\u00e1kum.<br \/>\n<a href=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/feminism1-300x181.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-579\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/feminism1-300x181.jpg\" alt=\"feminism1-300x181\" width=\"300\" height=\"181\" \/><\/a>Svo nei, kynjakv\u00f3tar \u00ed \u00f3merkilegum sj\u00f3nvarps\u00fe\u00e6tti eru ekki ska\u00f0legir (\u00fe\u00f3tt \u00feeir geti veri\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed \u00f6\u00f0ru samhengi) en vi\u00f0horfin sem b\u00faa a\u00f0 baki \u00feeirri hugmynd a\u00f0 \u00feeirra s\u00e9 \u00fe\u00f6rf; \u00feau vi\u00f0horf a\u00f0 stelpur eigi ekki a\u00f0 skilgreina hva\u00f0 s\u00e9 eftirs\u00f3knarvert, heldur hasla s\u00e9r v\u00f6ll \u00e1 svi\u00f0um \u00fear sem str\u00e1kar eru r\u00edkjandi; \u00feau eru ska\u00f0leg. \u00c9g hef vi\u00f0ra\u00f0 \u00fe\u00e1 hugmynd a\u00f0 kannski v\u00e6ri r\u00e1\u00f0 a\u00f0 spyrja stelpur \u00ed hverskonar sj\u00f3nvarpsefni \u00fe\u00e6r vildu vera \u00ed a\u00f0alhlutverki en s\u00fa hugmynd hefur ekki fengi\u00f0 neinar undirtektir. R\u00e9tta formi\u00f0 er til, stelpur skulu vessg\u00fa ganga inn \u00ed \u00fea\u00f0 og ef \u00fe\u00e6r vilja \u00fea\u00f0 ekki \u00fe\u00e1 \u00fearf a\u00f0 \u201elaga vi\u00f0horfin hj\u00e1 \u00feeim\u201c og \u201es\u00e6kja \u00fe\u00e6r inn \u00ed bekkina\u201c.<\/p>\n<p>\u00dei\u00f0 sem standi\u00f0 a\u00f0 spurningakeppni framhaldssk\u00f3lanna, endilega taki\u00f0 upp kynjakv\u00f3ta.\u00a0<em>Gettu betur<\/em>\u00a0er \u00e1g\u00e6tur vettvangur fyrir sl\u00edka tilraun. En geri\u00f0 \u00fea\u00f0 hei\u00f0arlega. Vi\u00f0urkenni\u00f0 a\u00f0 s\u00fa r\u00e1\u00f0st\u00f6fun hafi s\u00e1ral\u00edti\u00f0 me\u00f0 kynjajafnr\u00e9tti a\u00f0 gera en sn\u00faist \u00f6llu fremur um p\u00f3lit\u00edskt \u00edmyndarrunk. Vi\u00f0urkenni\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i\u00f0 s\u00e9 ekki a\u00f0 stelpur f\u00e1i a\u00f0 bl\u00f3mstra \u00e1 s\u00ednum eigin forsendum heldur a\u00f0 sveigja \u00fe\u00e1ttinn a\u00f0 kr\u00f6fum systraveldisins. Systraveldisins sem \u00fevert \u00e1 allar hugmyndir um valdeflingu kvenna, hangir v\u00e6landi \u00ed buxnask\u00e1lmum \u00feeirra \u00f6\u00f0linga sem enn \u00ed dag skilgreina hi\u00f0 eftirs\u00f3knarver\u00f0a, b\u00e6\u00f0i hva\u00f0 var\u00f0ar inntak og form.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Af hverju \u00fearf a\u00f0 jafna kynjahlutf\u00f6llin \u00ed spurningakeppni framhaldssk\u00f3lanna? A\u00f0 s\u00f6gn Stef\u00e1ns P\u00e1lssonar \u00fearf kynjakv\u00f3ta af \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0Gettu betur er ekki n\u00f3gu gott sj\u00f3nvarpsefni eins og er. Af\u00a0pistli hans\u00a0\u00e1 Kn\u00fazinu \u00ed g\u00e6r m\u00e1 einnig r\u00e1\u00f0a a\u00f0 hann \u00fej\u00e1ist af samviskubiti &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":580,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,6],"tags":[147,140,89,141,139],"class_list":["post-578","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kyndillinn","category-kynjaimyndir-og-mismunun","tag-gettu-betur","tag-karlamenning","tag-knuz-is","tag-kvennamenning","tag-kynjakvotar"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.4 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur - Kyndillinn<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur - Kyndillinn\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Af hverju \u00fearf a\u00f0 jafna kynjahlutf\u00f6llin \u00ed spurningakeppni framhaldssk\u00f3lanna? A\u00f0 s\u00f6gn Stef\u00e1ns P\u00e1lssonar \u00fearf kynjakv\u00f3ta af \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0Gettu betur er ekki n\u00f3gu gott sj\u00f3nvarpsefni eins og er. Af\u00a0pistli hans\u00a0\u00e1 Kn\u00fazinu \u00ed g\u00e6r m\u00e1 einnig r\u00e1\u00f0a a\u00f0 hann \u00fej\u00e1ist af samviskubiti &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Kyndillinn\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2013-01-24T23:57:59+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-09-11T10:48:48+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"300\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"300\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"7 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur\",\"datePublished\":\"2013-01-24T23:57:59+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-11T10:48:48+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/\"},\"wordCount\":1387,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2014\\\/08\\\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg\",\"keywords\":[\"Gettu betur\",\"Karlamenning\",\"Knuz.is\",\"Kvennamenning\",\"Kynjakv\u00f3tar\"],\"articleSection\":[\"Kyndillinn\",\"Kynja\u00edmyndir og mismunun\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/\",\"name\":\"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur - Kyndillinn\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2014\\\/08\\\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg\",\"datePublished\":\"2013-01-24T23:57:59+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-11T10:48:48+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2014\\\/08\\\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2014\\\/08\\\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg\",\"width\":300,\"height\":300},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/\",\"name\":\"Kyndillinn\",\"description\":\"Eva um kyn og kl\u00e1m\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur - Kyndillinn","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur - Kyndillinn","og_description":"Af hverju \u00fearf a\u00f0 jafna kynjahlutf\u00f6llin \u00ed spurningakeppni framhaldssk\u00f3lanna? A\u00f0 s\u00f6gn Stef\u00e1ns P\u00e1lssonar \u00fearf kynjakv\u00f3ta af \u00fev\u00ed a\u00f0\u00a0Gettu betur er ekki n\u00f3gu gott sj\u00f3nvarpsefni eins og er. Af\u00a0pistli hans\u00a0\u00e1 Kn\u00fazinu \u00ed g\u00e6r m\u00e1 einnig r\u00e1\u00f0a a\u00f0 hann \u00fej\u00e1ist af samviskubiti &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/","og_site_name":"Kyndillinn","article_published_time":"2013-01-24T23:57:59+00:00","article_modified_time":"2017-09-11T10:48:48+00:00","og_image":[{"width":300,"height":300,"url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"7 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur","datePublished":"2013-01-24T23:57:59+00:00","dateModified":"2017-09-11T10:48:48+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/"},"wordCount":1387,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg","keywords":["Gettu betur","Karlamenning","Knuz.is","Kvennamenning","Kynjakv\u00f3tar"],"articleSection":["Kyndillinn","Kynja\u00edmyndir og mismunun"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/","name":"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur - Kyndillinn","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg","datePublished":"2013-01-24T23:57:59+00:00","dateModified":"2017-09-11T10:48:48+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/#primaryimage","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg","contentUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2014\/08\/15810555-cartoon-red-hairy-monster-300x300.jpg","width":300,"height":300},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/thessvegna-tharf-kynjakvota-i-gettu-betur\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"\u00deessvegna \u00fearf kynjakv\u00f3ta \u00ed Gettu betur"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/","name":"Kyndillinn","description":"Eva um kyn og kl\u00e1m","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/578","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=578"}],"version-history":[{"count":3,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/578\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2093,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/578\/revisions\/2093"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/media\/580"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=578"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=578"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=578"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}