{"id":2731,"date":"2010-07-30T05:50:28","date_gmt":"2010-07-30T05:50:28","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/?p=2731"},"modified":"2017-09-11T11:39:10","modified_gmt":"2017-09-11T11:39:10","slug":"oooo-svo-mikil-dulla","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/","title":{"rendered":"Oooo &#8230; svo mikil d\u00falla"},"content":{"rendered":"<div id=\"entry-9418\">\n<div>\n<div>\n<p>\u00c9g er sm\u00e1vaxin, lj\u00f3sh\u00e6r\u00f0, geng oftast \u00ed pilsi e\u00f0a kj\u00f3l, nota bl\u00fandur, p\u00edfur og bjarta liti (nema \u00feegar \u00e9g er \u00ed nornarg\u00edrnum). \u00c9g finn til m\u00edn \u00feegar karlmenn segja m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 falleg. M\u00e9r finnst m\u00f3\u00f0urhlutverki\u00f0 vera merkilegasta starf \u00ed heimi og eins \u00feakkl\u00e1t og \u00e9g er feministum fyrir bar\u00e1ttu s\u00edna fyrir menntun kvenna og valkostum, tel \u00e9g a\u00f0 kvenfrelsishreyfingin hafi gert st\u00f3r mist\u00f6k me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa konum \u00feau skilabo\u00f0 a\u00f0 kona sem k\u00fds a\u00f0 vera heimavinnandi s\u00e9 \u00f3sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0, metna\u00f0arlaus, k\u00fagu\u00f0 og yfirh\u00f6fu\u00f0 frekar aumkunarver\u00f0. \u00c9g f\u00e6 fi\u00f0ring \u00ed hjarta\u00f0 \u00feegar \u00e9g s\u00e9 karlmann handleika borv\u00e9l e\u00f0a \u00f6nnur verkf\u00e6ri og finnst gott a\u00f0 l\u00e1ta karlmann lei\u00f0a mig e\u00f0a leggja arm yfir axlir m\u00ednar \u00ed mannmerg\u00f0. \u00c9g teikna bleika bl\u00f3masveiga utan um minnislistana m\u00edna og skreyti heimili mitt me\u00f0 br\u00fa\u00f0um, d\u00fakum, p\u00fa\u00f0um og s\u00e6tum mokkabollum. \u00c9g reikna me\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00feetta sem f\u00e6r \u00fe\u00e1 sem \u00feekkja mig ekki til a\u00f0 kalla mig d\u00fallu e\u00f0a kr\u00fatt. M\u00e9r l\u00edkar \u00fea\u00f0 st\u00f3rilla.<\/p>\n<div id=\"entry-9418\"><\/div>\n<p><!--more--><\/p>\n<p>Margir hafa undrast \u00f3beit m\u00edna \u00e1 \u00feessum or\u00f0um, einkum \u00fear sem \u00e9g er \u00f3sk\u00f6p hrifin af alls kyns d\u00fallulegum hlutum. Hva\u00f0 er svona sl\u00e6mt vi\u00f0 a\u00f0 \u00f6\u00f0rum (einkum karlm\u00f6nnum sem halda a\u00f0 \u00feeir s\u00e9u g\u00e1fa\u00f0ri en \u00feeir eru) finnist \u00e9g s\u00e6t? Og ef \u00e9g er virkilega svona mikill trukkur \u00ed e\u00f0li m\u00ednu, hversvegna gef \u00e9g \u00fe\u00e1 \u00feessa kr\u00fattlegu mynd af m\u00e9r?<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"aligncenter wp-image-2732 size-full\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg\" alt=\"fascinating-womanhood-icon\" width=\"330\" height=\"229\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg 330w, https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon-300x208.jpg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 330px) 100vw, 330px\" \/><\/a>Svari\u00f0 liggur \u00ed hugmyndafr\u00e6\u00f0inni \u00e1 bak vi\u00f0 d\u00falluna. Hugmyndafr\u00e6\u00f0i sem var vins\u00e6l me\u00f0al kristinna h\u00fasm\u00e6\u00f0ra \u00ed Bandar\u00edkjunum \u00e1 fyrri hluta s\u00ed\u00f0ustu aldar og er enn\u00fe\u00e1 praktiseru\u00f0 af st\u00f3rum h\u00f3pum kvenna \u00ed Bandar\u00edkjunum og Evr\u00f3pu. \u00deessar hugmyndir sn\u00faast a\u00f0allega um \u00fea\u00f0 hvernig konan geti gert hj\u00f3naband sitt a\u00f0 dansi \u00e1 r\u00f3sum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera fullkomin eiginkona, \u00fe\u00f3knanleg jafnt eiginmanni s\u00ednum sem Gvu\u00f0i. Helen Andelin er \u00feekktasti bo\u00f0beri \u00feessara kenninga en h\u00fan byggir sinn bo\u00f0skap \u00e1 nokkrum b\u00e6kingum sem gefnir voru \u00fat \u00e1 3. og 4. \u00e1ratugnum. 1963 gaf h\u00fan \u00fat b\u00f3k undir heitinu &#8216;Fascinating Womanhood&#8217; og var\u00f0 h\u00fan g\u00edfurlega vins\u00e6l me\u00f0al kristilegra and-feministahreyfinga \u00e1 7. og 8. \u00e1ratugnum. Enn \u00ed dag er \u00feessari b\u00f3k hampa\u00f0 me\u00f0al kristlinga og \u00e1 henni eru bygg\u00f0 \u00fdmis n\u00e1mskei\u00f0 og nets\u00ed\u00f0ur sem fascinating womanhood hreyfingin (jamm \u00fea\u00f0 er st\u00f3r cult hreyfing \u00ed kringum \u00feessa b\u00f3k) b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1.<\/p>\n<p>Samkv\u00e6mt Helen Andelin er hlutverk konunnar sk\u00fdrt \u00ed Bibl\u00edunni, h\u00fan \u00e1 a\u00f0 vera eiginkona og m\u00f3\u00f0ir, d\u00e1 og vir\u00f0a eiginmann sinn og vera honum hl\u00fd\u00f0in, b\u00faa honum d\u00e1samlegt heimili og sty\u00f0ja hann \u00ed einu og \u00f6llu. Hlutverk hans er a\u00f0 sj\u00e1 henni og b\u00f6rnum farbor\u00f0a, elska hana og annast, sinna gr\u00f3fari heimilsst\u00f6rfum svo sem vi\u00f0ger\u00f0um og vera h\u00f6fu\u00f0 heimilisins, \u00fe.e.hafa vit fyrir henni og taka \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00f6llum meirih\u00e1ttar \u00e1kv\u00f6r\u00f0unum. Samkv\u00e6mt Andelin er megin \u00e1st\u00e6\u00f0a hj\u00f3naskilna\u00f0a og \u00f3hamingju \u00ed hj\u00f3nabandi s\u00fa a\u00f0 f\u00f3lk fylgir ekki \u00feessum l\u00f6gm\u00e1lum. Ef hj\u00f3nabandi\u00f0 er ekki dans \u00e1 r\u00f3sum getur konan laga\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 uppfylla hlutverk sitt og geri h\u00fan \u00fea\u00f0 mun ma\u00f0urinn hennar sj\u00e1lfkrafa sinna s\u00ednu hlutverki betur og allir ver\u00f0a hamingjusamir.<\/p>\n<p>Fascinating Womanhood kennir konunni a\u00f0 la\u00f0a fram \u00e1st og bl\u00ed\u00f0u \u00ed manni s\u00ednum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera s\u00e6t og g\u00f3\u00f0, temja s\u00e9r mj\u00fakar hreyfingar, tala me\u00f0 l\u00e1gstemmdri, silkimj\u00fakri r\u00f6dd og koma s\u00e9r upp kvenlegum \u00e1hugam\u00e1lum. \u00cd anda \u00feessara kenninga eru \u00ed dag haldin n\u00e1mskei\u00f0 fyrir konur \u00ed skilna\u00f0arh\u00e6ttu og n\u00fa er til \u00f3keypis og a\u00f0gengileg net\u00fatg\u00e1fa af frekar\u00a0<a href=\"http:\/\/www.zealandpublishing.co.nz\/FW%20Book\/Fascinating%20Womanhood%20whole%20book%20low%20res.pdf\">\u00f6murlegri b\u00f3k<\/a>\u00a0sem segir s\u00f6gu konu sem bjarga\u00f0i hj\u00f3nabandi s\u00ednu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e6kja sl\u00edkt n\u00e1mskei\u00f0. \u00deetta lesefni vekur hj\u00e1 m\u00e9r s\u00f6mu hughrif og \u00feegar \u00e9g heyri or\u00f0 eins og kr\u00fatt og d\u00falla notu\u00f0 um fullor\u00f0i\u00f0 f\u00f3lk.<\/p>\n<p>Hin t\u00f6frandi kona leggur t\u00f6luver\u00f0an metna\u00f0 \u00ed a\u00f0 vera s\u00e6t fyrir manninn sinn og h\u00fan ver\u00f0ur a\u00f0 hafa hugfast a\u00f0 er ekki hennar smekkur sem skiptir m\u00e1li, heldur hans. Best er a\u00f0 spyrja hann r\u00e1\u00f0a um \u00feetta sem anna\u00f0. En h\u00fan \u00e1 ekki bara a\u00f0 vera s\u00e6t, h\u00fan \u00e1 l\u00edka a\u00f0 helga l\u00edf sitt \u00feeim tilgangi a\u00f0 sn\u00faast \u00ed kringum hann. \u00c9g veit ekki hvort\u00a0<a href=\"http:\/\/www.j-walk.com\/other\/goodwife\/index.htm\">\u00feessar lei\u00f0beiningar<\/a>eru teknar beint upp \u00far b\u00e6klingunum sem ur\u00f0u Andelin innbl\u00e1stur en \u00fe\u00e6r eru svo sannarlega \u00ed fullu samr\u00e6mi vi\u00f0 b\u00f3kina sem kom \u00fat 1963 og n\u00e1msefni\u00f0 sem komum er bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 enn \u00ed dag.<\/p>\n<p>Fyrsta kenning Helen Andelin er \u00f3sk\u00f6p g\u00f3\u00f0. Konan getur kalla\u00f0 \u00fea\u00f0 besta fram \u00ed manni s\u00ednum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka honum eins og hann er og reyna ekki a\u00f0 breyta honum. \u00c9g held a\u00f0 flestir geti fallist \u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e6skilegt \u00ed \u00f6llum samb\u00f6ndum. H\u00fan \u00e1 l\u00edka a\u00f0 meta karlmannlega h\u00e6fileika hans a\u00f0 ver\u00f0leikum og s\u00fdna honum vir\u00f0ingu og a\u00f0d\u00e1un og j\u00e1j\u00e1 \u00feetta hlj\u00f3mar allt afskaplega sanngjarnt. M\u00e9r finnst hinsvegar ekki eins sanngjarnt a\u00f0 h\u00fan eigi a\u00f0 g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 s\u00fdna aldrei meiri f\u00e6rni en hann \u00ed neinu \u00fev\u00ed sem er \u00e1liti\u00f0 karlmannlegt e\u00f0a gefa neinum tilefni til a\u00f0 \u00e6tla a\u00f0 h\u00fan s\u00e9 \u00e1 einhvern h\u00e1tt kl\u00e1rari en hann nema \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 br\u00f3dera og baka au\u00f0vita\u00f0.<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/images1.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-2733\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/images1.jpg\" alt=\"images1\" width=\"239\" height=\"152\" \/><\/a>\u00dea\u00f0 gekk \u00fe\u00f3 ekki alvarlega fram af m\u00e9r fyrr en \u00e9g las kaflann um lei\u00f0togahlutverk mannins. Konan m\u00e1 vissulega hafa sko\u00f0anir. H\u00fan m\u00e1 bera fram \u00f3skir og upp\u00e1stungur og segja manninum hva\u00f0 h\u00fan telur best og r\u00e9ttast en svo framarlega sem hann misb\u00fd\u00f0ur b\u00f6rnum ekki kynfer\u00f0islega e\u00f0a beitir l\u00edkamlegu ofbeldi \u00e1 alvarlegu stigi (\u00fea\u00f0 er au\u00f0vita\u00f0 \u00e1 hans \u00e1byrg\u00f0 a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a hvernig hann agar fj\u00f6lskylduna), \u00fe\u00e1 \u00e1 h\u00fan a\u00f0 l\u00e1ta hann r\u00e1\u00f0a. Eitt verkefni\u00f0 sem mottan \u00ed s\u00f6gunni f\u00e6r er t.d.f\u00f3lgi\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fatb\u00faa, gjarnan \u00ed samvinnu vi\u00f0 b\u00f6rnin, einhverskonar sk\u00edrteini, vi\u00f0urkenningarskjal e\u00f0a jafnvel t\u00e1kn \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 veldissprota og afhenda karlinum me\u00f0 lofor\u00f0i um a\u00f0 h\u00fan og b\u00f6rnin muni framvegis hl\u00fd\u00f0a r\u00e1\u00f0um hans og vi\u00f0urkenna r\u00e9tt hans til a\u00f0 stj\u00f3rna heimilinu. \u00c9g b\u00fdst vi\u00f0 a\u00f0 \u00feeir sem a\u00f0hyllast\u00a0<a href=\"http:\/\/www.christiandomesticdiscipline.com\/home.html\">Christian, Domestic Discipline<\/a>\u00a0hreyfinguna (sem gengur \u00fat \u00e1 gu\u00f0d\u00f3mlegt vald karlsins til a\u00f0 aga konu s\u00edna me\u00f0 flengingum og \u00fe\u00e1 er ekki \u00e1tt vi\u00f0 er\u00f3t\u00edskan leik heldur l\u00edkamlegar refsingar) myndu m\u00e6la me\u00f0 a\u00f0 h\u00fan f\u00e6r\u00f0i honum v\u00f6nd e\u00f0a beltis\u00f3l til a\u00f0 hirta sig me\u00f0.<\/p>\n<p>Til \u00feess a\u00f0 hj\u00f3nabandi\u00f0 gangi upp er mikilv\u00e6gt a\u00f0 konan s\u00e9 fj\u00e1rhagslega \u00f3sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0. \u00dea\u00f0 er hans hlutverk a\u00f0 sj\u00e1 fyrir henni og ef hann f\u00e6r ekki a\u00f0 uppfylla \u00fea\u00f0 hlutverk sker\u00f0ir \u00fea\u00f0 karlmennsku hans og hann ver\u00f0ur hundlei\u00f0inleg v\u00e6luskj\u00f3\u00f0a. Ef konuna langar a\u00f0 kaupa eitthva\u00f0 sem hann hefur ekki efni \u00e1 a\u00f0 veita henni, \u00e1 h\u00fan ekki a\u00f0 taka a\u00f0 s\u00e9r hlutastarf heldur einfaldlega a\u00f0 endursko\u00f0a gildismat sitt og komast a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 hamingja hennar s\u00e9 ekki f\u00f3lgin \u00ed veraldarg\u00e6\u00f0um heldur m\u00f3\u00f0urhlutverkinu. Ef hann hefur \u00ed raun efni \u00e1 \u00fev\u00ed sem h\u00fan telur sig \u00fearfnast en vill ekki l\u00e1ta \u00fea\u00f0 eftir henni, getur h\u00fan haft \u00e1hrif \u00e1 hann me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sjarmera hann upp \u00far sk\u00f3num. Ekki me\u00f0 frekju, heldur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bi\u00f0ja fallega og brosandi \u00e1 sama h\u00e1tt og l\u00edtil, vel uppalin st\u00falka.<\/p>\n<p>Reyndar gengur \u00feessi hugmyndafr\u00e6\u00f0i a\u00f0 afskaplega miklu leyti \u00fat \u00e1 \u00edmynd litlu telpunnar. Konan \u00e1 a\u00f0 velja s\u00e9r telpulegan kl\u00e6\u00f0na\u00f0 og h\u00e1rgrei\u00f0slu. H\u00fan a\u00f0 spila sig hj\u00e1lparvana (e\u00f0a helst a\u00f0 vera \u00fea\u00f0 \u00ed alv\u00f6ru) og leita til hans \u00e1 sama h\u00e1tt og l\u00edtil telpa leitar til f\u00f6\u00f0ur s\u00edns (\u00feetta er sagt berum or\u00f0um.) H\u00fan \u00e1 a\u00f0 vera s\u00e6t og g\u00f3\u00f0 eins og sm\u00e1stelpa og beita barnslegum r\u00e1\u00f0um til a\u00f0 f\u00e1 s\u00ednu framgengt. Ef ma\u00f0urinn hennar rei\u00f0ist vi\u00f0 hana \u00e1 h\u00fan ekki a\u00f0 svara honum fullum h\u00e1lsi, heldur dempa rei\u00f0i hans me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 horfa sk\u00f6mmustulega ni\u00f0ur \u00ed g\u00f3lfi\u00f0 e\u00f0a ef hann er mj\u00f6g har\u00f0ur vi\u00f0 hana, gr\u00e1ta. H\u00fan getur l\u00edka \u00ed sumum tilvikum gripi\u00f0 inn \u00ed \u00e1\u00f0ur en hann er or\u00f0inn brj\u00e1la\u00f0ur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 spyrja sakleysislega &#8216;you are not going to be mad with poor little me are you?&#8217;<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 kemur sk\u00fdrt fram a\u00f0 \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feetta allt saman s\u00e9 fr\u00e1leitt a\u00f0 konan eigi a\u00f0 l\u00e1ta k\u00faga sig. H\u00fan hefur t.d. alveg r\u00e9tt til a\u00f0 rei\u00f0ast. Ekki n\u00e1tt\u00farulega \u00fat af einhverjum tittlingask\u00edt eins og \u00fev\u00ed a\u00f0 hann komi bara \u00ed mat \u00feegar honum sj\u00e1lfum \u00fe\u00f3knast, drekki of miki\u00f0, sl\u00e1i ekki l\u00f3\u00f0ina eins oft og h\u00fan vill e\u00f0a gangi illa um en ef hann misb\u00fd\u00f0ur henni alvarlega \u00e1 h\u00fan a\u00f0 l\u00e1ta hann vita hva\u00f0 henni finnst. \u00dea\u00f0 sem skiptir m\u00e1li er \u00fe\u00f3 hvernig h\u00fan tj\u00e1ir sig. H\u00fan \u00e1 ekki a\u00f0 r\u00edfast og skammast, heldur taka litlar, vel upp aldar telpur s\u00e9r til fyrirmyndar. H\u00fan getur t.d. stappa\u00f0 ni\u00f0ur f\u00e6ti, hnykkt til h\u00f6f\u00f0inu og hnussa\u00f0. H\u00fan m\u00e1 l\u00edka nota lj\u00f3t or\u00f0, svo framarlega sem h\u00fan g\u00e6tir \u00feess a\u00f0 vega ekki a\u00f0 karlmennsku hans. Veifiskati og rola v\u00e6ru \u00feannig \u00f3vi\u00f0eigandi en h\u00fan getur hinsvegar leyft s\u00e9r a\u00f0 kalla hann \u00f3\u00feokka (beast e\u00f0a heartless man). H\u00fan getur l\u00edka komi\u00f0 tilfinningum s\u00ednum til skila me\u00f0 innihaldslausum h\u00f3tunum, t.d. um a\u00f0 tala aldrei vi\u00f0 hann framar. \u00deegar ma\u00f0urinn s\u00e9r hva\u00f0 h\u00fan rei\u00f0ist kr\u00fattlega, mun hann ekki sn\u00faast til varnar, heldur finna hj\u00e1 s\u00e9r hv\u00f6t til a\u00f0 sleikja \u00far henni rei\u00f0ina.<\/p>\n<p>Ef h\u00fan getur ekki hugsa\u00f0 s\u00e9r \u00feessa a\u00f0fer\u00f0, getur h\u00fan nota\u00f0 &#8216;the poor little me approach&#8217;, \u00fe.e. a\u00f0 vekja vorkunn hans. H\u00e9r eru t\u00e1r mj\u00f6g vi\u00f0eigandi. S\u00f6g\u00f0 er saga konu sem vandi manninn sinn af framhj\u00e1haldi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hlaupa gr\u00e1tandi \u00ed fang hans \u00feegar hann kom heim fr\u00e1 frillunni og kveina: &#8216;how could you do this to poor little me?&#8217;<\/p>\n<p>Ekki vir\u00f0ist vera reikna\u00f0 me\u00f0 \u00feeim m\u00f6guleika a\u00f0 konur tj\u00e1i rei\u00f0i s\u00edna eins og fullor\u00f0i\u00f0 f\u00f3lk, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e6\u00f0a m\u00e1lin \u00ed alv\u00f6ru, gera manninum lj\u00f3st hvar \u00feolm\u00f6rkin liggja og hva\u00f0a aflei\u00f0ingar \u00fea\u00f0 mun hafa ef hann misb\u00fd\u00f0ur henni aftur og standa vi\u00f0 \u00fea\u00f0, heldur stendur vali\u00f0 milli \u00feess a\u00f0 f\u00e1 frekjukast a\u00f0 h\u00e6tti barna (sem r\u00e9ttilega er ekki m\u00e6lt me\u00f0 \u00fear sem \u00fea\u00f0 lei\u00f0i bara til illinda) og a\u00f0 nota kr\u00fattlegri barnaa\u00f0fer\u00f0ir. Og \u00e1rangurinn l\u00e6tur ekki \u00e1 s\u00e9r standa segja \u00fe\u00e6r. Kannski \u00fea\u00f0 s\u00e9 bara \u00feetta sem p\u00f3lit\u00edkusar \u00feurfa a\u00f0 l\u00e6ra til a\u00f0 sannf\u00e6ra andst\u00e6\u00f0inga s\u00edna? Bara vera n\u00f3gu kr\u00fattlegir og stappa ni\u00f0ur f\u00e6ti \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 r\u00f6kr\u00e6\u00f0a? Ma\u00f0ur s\u00e9r t.d. fyrir s\u00e9r a\u00f0 Svand\u00eds Svavars geti sannf\u00e6rt b\u00e6\u00f0i Samfylkinguna og minnihlutann um nau\u00f0syn \u00feess a\u00f0 hverfa fr\u00e1 st\u00f3ri\u00f0jusefnunni, bara me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00ed bleikan kj\u00f3l og stappa ni\u00f0ur f\u00e6ti. N\u00fa e\u00f0a gr\u00e1ta fallega ef hnussi\u00f0 dugar ekki til og h\u00f3ta a\u00f0 tala aldrei vi\u00f0 Samfylkinguna framar.<\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 er \u00fea\u00f0 ekki hugmyndafr\u00e6\u00f0i Helen Andelin sem f\u00f3lk hefur \u00ed huga \u00feegar \u00fea\u00f0 notar or\u00f0i\u00f0 d\u00falla en \u00fea\u00f0 er samt \u00feessi \u00edmynd sem er undirliggjandi. \u00cdmyndin af veru sem er s\u00e6t og heillandi en um lei\u00f0 \u00f3\u00e1byrg og \u00f3sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0. Veru sem vekur hl\u00fdju, sam\u00fa\u00f0, verndar\u00fer\u00e1 og k\u00e6ti en ekki veru sem \u00fe\u00fa ber\u00f0 vir\u00f0ingu fyrir, rei\u00f0ir \u00feig \u00e1 og tekur mark \u00e1. Ekki \u00edmynd jafningja. Kr\u00fatt eiga alveg \u00e1 r\u00e9tt \u00e1 s\u00e9r og meira en \u00fea\u00f0. \u00cdmynd d\u00fallunnar er falleg og ind\u00e6l \u00feegar um er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a verur sem hafa ekki forsendur til a\u00f0 bera \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r og krefjast \u00feess a\u00f0 vera teknar alvarlega. Sm\u00e1b\u00f6rn eru d\u00fallur. Hundar og kettir geta veri\u00f0 kr\u00fatt. \u00deau vekja \u00ed okkur bl\u00ed\u00f0ar, g\u00f3\u00f0ar, br\u00e1\u00f0nau\u00f0synlegar tilfinningar og heimurinn \u00fearf \u00feessvegna \u00e1 kr\u00fattum a\u00f0 halda. En um lei\u00f0 og vi\u00f0 tengjum \u00feessa \u00edmynd fullor\u00f0inni manneskju, setjum vi\u00f0 hana \u00ferepi ne\u00f0ar \u00ed vi\u00f0ringarstiganum, h\u00fan ver\u00f0ur \u00ed hugum okkar barnaleg, stundum aumkunarver\u00f0, jafnvel fyrirlitleg. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 verulegu leyti \u00fea\u00f0 sem karlremba gengur \u00fat \u00e1. F\u00e6stir karlmenn hata konur e\u00f0a telja r\u00e9tt og gott a\u00f0 beita \u00fe\u00e6r ofbeldi og k\u00fagun. Mj\u00faka karlremban sem l\u00edtur \u00e1 konur sem kr\u00fatt, eitthva\u00f0 sem er alveg h\u00e6gt a\u00f0 eiga \u00e1n\u00e6gjustundir me\u00f0 en \u00fearf ekki a\u00f0 taka mj\u00f6g alvarlega, er miklu algengari en hrottinn.<\/p>\n<p>Hin viti borna kona er ekki d\u00falla. H\u00fan er heldur ekki neinn s\u00e9rstakur trukkur. Henni dettur ekki \u00ed hug a\u00f0 gefa eftir r\u00e9tt sinn til a\u00f0 safna postul\u00ednsd\u00fakkum ef h\u00fan hefur \u00e1n\u00e6gju af \u00fev\u00ed, bara til \u00feess a\u00f0 samr\u00e6mast einhverri sta\u00f0almynd af t\u00f6ffara og ef h\u00fan vill aka jar\u00f0\u00fdtu \u00fe\u00e1 merkir \u00fea\u00f0 ekkert endilega a\u00f0 h\u00fan geti ekki hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 nota h\u00e1a h\u00e6la \u00e1 \u00e1rsh\u00e1t\u00ed\u00f0inni. H\u00fan kl\u00e6\u00f0ir sig eins og henni s\u00fdnist og sinnir \u00feeim verkefnum sem henni s\u00fdnist. \u00de\u00f3tt h\u00fan votti karlmanni \u00feakk\u00e6ti \u00feegar hann gerir vi\u00f0 b\u00edlinn hennar, veit h\u00fan sj\u00e1lf hven\u00e6r h\u00fan \u00fearfnast r\u00e1\u00f0a hans og hven\u00e6r h\u00fan k\u00e6rir sig um a\u00f0sto\u00f0 hans og \u00e1lit. H\u00fan \u00feiggur me\u00f0 gle\u00f0i gjafir sem gefnar eru af \u00e1st e\u00f0a hl\u00fdhug en h\u00fan bi\u00f0ur ekki um \u00fe\u00e6r eins og sm\u00e1krakki. Jafnvel \u00fe\u00f3tt h\u00fan bindi bleikan bor\u00f0a \u00ed h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 s\u00e9r og tj\u00e1i \u00e1st s\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 smyrja nesti fyrir manninn sinn, merkir \u00fea\u00f0 ekki a\u00f0 h\u00fan s\u00e6tti sig vi\u00f0 a\u00f0 hann skilji \u00f3hreinar n\u00e6rbuxur eftir \u00e1 ba\u00f0g\u00f3linu. H\u00fan getur be\u00f0ist afs\u00f6kunar ef \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 en h\u00fan l\u00e6tur engan va\u00f0a yfir sig e\u00f0a komast upp me\u00f0 \u00f3sanngjarnar kr\u00f6fur e\u00f0a gagnr\u00fdni. Og ef h\u00fan rei\u00f0ist gerir h\u00fan sig skiljanlega a\u00f0 \u00fev\u00ed marki a\u00f0 \u00fe\u00fa missir alla l\u00f6ngun til a\u00f0 komast a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 gerist ef \u00fe\u00fa misb\u00fd\u00f0ur henni \u00ed anna\u00f0 sinn.<\/p>\n<\/div>\n<\/div>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c9g er sm\u00e1vaxin, lj\u00f3sh\u00e6r\u00f0, geng oftast \u00ed pilsi e\u00f0a kj\u00f3l, nota bl\u00fandur, p\u00edfur og bjarta liti (nema \u00feegar \u00e9g er \u00ed nornarg\u00edrnum). \u00c9g finn til m\u00edn \u00feegar karlmenn segja m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 falleg. M\u00e9r finnst m\u00f3\u00f0urhlutverki\u00f0 vera merkilegasta starf &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":2732,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,6],"tags":[320],"class_list":["post-2731","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-kyndillinn","category-kynjaimyndir-og-mismunun","tag-born"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.4 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Oooo ... svo mikil d\u00falla - Kyndillinn<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Oooo ... svo mikil d\u00falla - Kyndillinn\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"\u00c9g er sm\u00e1vaxin, lj\u00f3sh\u00e6r\u00f0, geng oftast \u00ed pilsi e\u00f0a kj\u00f3l, nota bl\u00fandur, p\u00edfur og bjarta liti (nema \u00feegar \u00e9g er \u00ed nornarg\u00edrnum). \u00c9g finn til m\u00edn \u00feegar karlmenn segja m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 falleg. M\u00e9r finnst m\u00f3\u00f0urhlutverki\u00f0 vera merkilegasta starf &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Kyndillinn\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2010-07-30T05:50:28+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-09-11T11:39:10+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"330\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"229\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"13 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"Oooo &#8230; svo mikil d\u00falla\",\"datePublished\":\"2010-07-30T05:50:28+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-11T11:39:10+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/\"},\"wordCount\":2547,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2016\\\/08\\\/fascinating-womanhood-icon.jpg\",\"keywords\":[\"B\u00f6rn\"],\"articleSection\":[\"Kyndillinn\",\"Kynja\u00edmyndir og mismunun\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/\",\"name\":\"Oooo ... svo mikil d\u00falla - Kyndillinn\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2016\\\/08\\\/fascinating-womanhood-icon.jpg\",\"datePublished\":\"2010-07-30T05:50:28+00:00\",\"dateModified\":\"2017-09-11T11:39:10+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2016\\\/08\\\/fascinating-womanhood-icon.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/5\\\/2016\\\/08\\\/fascinating-womanhood-icon.jpg\",\"width\":330,\"height\":229},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/oooo-svo-mikil-dulla\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Oooo &#8230; svo mikil d\u00falla\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/\",\"name\":\"Kyndillinn\",\"description\":\"Eva um kyn og kl\u00e1m\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/kyndillinn\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Oooo ... svo mikil d\u00falla - Kyndillinn","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Oooo ... svo mikil d\u00falla - Kyndillinn","og_description":"\u00c9g er sm\u00e1vaxin, lj\u00f3sh\u00e6r\u00f0, geng oftast \u00ed pilsi e\u00f0a kj\u00f3l, nota bl\u00fandur, p\u00edfur og bjarta liti (nema \u00feegar \u00e9g er \u00ed nornarg\u00edrnum). \u00c9g finn til m\u00edn \u00feegar karlmenn segja m\u00e9r a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 falleg. M\u00e9r finnst m\u00f3\u00f0urhlutverki\u00f0 vera merkilegasta starf &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/","og_site_name":"Kyndillinn","article_published_time":"2010-07-30T05:50:28+00:00","article_modified_time":"2017-09-11T11:39:10+00:00","og_image":[{"width":330,"height":229,"url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"13 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"Oooo &#8230; svo mikil d\u00falla","datePublished":"2010-07-30T05:50:28+00:00","dateModified":"2017-09-11T11:39:10+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/"},"wordCount":2547,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg","keywords":["B\u00f6rn"],"articleSection":["Kyndillinn","Kynja\u00edmyndir og mismunun"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/","name":"Oooo ... svo mikil d\u00falla - Kyndillinn","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg","datePublished":"2010-07-30T05:50:28+00:00","dateModified":"2017-09-11T11:39:10+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/#primaryimage","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg","contentUrl":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-content\/uploads\/sites\/5\/2016\/08\/fascinating-womanhood-icon.jpg","width":330,"height":229},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/oooo-svo-mikil-dulla\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Oooo &#8230; svo mikil d\u00falla"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/","name":"Kyndillinn","description":"Eva um kyn og kl\u00e1m","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2731","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2731"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2731\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":2734,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/2731\/revisions\/2734"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/media\/2732"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2731"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=2731"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/kyndillinn\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=2731"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}