{"id":355,"date":"2013-12-13T12:23:28","date_gmt":"2013-12-13T12:23:28","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/eva\/?p=355"},"modified":"2020-05-31T03:44:40","modified_gmt":"2020-05-31T03:44:40","slug":"swingid-hefur-baett-sambandid","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/","title":{"rendered":"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0"},"content":{"rendered":"\n<p><strong>\u00deegar or\u00f0i\u00f0 framhj\u00e1hald er nefnt er kynl\u00edf utan sambands eitt af \u00fev\u00ed fyrsta sem kemur upp \u00ed hugann. \u00de\u00f3 er til f\u00f3lk sem telur ekki neikv\u00e6tt a\u00f0 deila maka s\u00ednum me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. Bjarni og Sara eru \u00e1 fimmtugsaldri og eiga a\u00f0 baki 16 \u00e1ra hj\u00f3naband. \u00deau fluttust fr\u00e1 \u00cdslandi fyrir 5 \u00e1rum og \u00e1 n\u00fdja sta\u00f0num kynntust \u00feau \u00fev\u00ed sem kalla\u00f0 er \u201cswing\u201d, \u00fea\u00f0 er a\u00f0 segja, \u00feau hafa makaskipti og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed h\u00f3pm\u00f6kum. \u00c9g spur\u00f0i Bjarna og S\u00f6ru um upplifun \u00feeirra af swinginu og \u00e1hrif \u00feess \u00e1 samband \u00feeirra. Athugi\u00f0 \u00fe\u00f3 a\u00f0 h\u00e9r er a\u00f0eins um eitt par a\u00f0 r\u00e6\u00f0a og engan veginn v\u00edst a\u00f0 \u00feeirra reynsla s\u00e9 d\u00e6miger\u00f0.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Langa\u00f0i a\u00f0 \u00f6\u00f0last meiri reynslu<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 veri\u00f0 gift \u00ed 16 \u00e1r. Hefur samband ykkar alltaf einkennst af frj\u00e1lslyndi e\u00f0a \u00e1tti \u00fea\u00f0 s\u00e9r einhvern s\u00e9rstakan a\u00f0draganda a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0u\u00f0 a\u00f0 blanda fleira f\u00f3lki \u00ed kynl\u00edf ykkar?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<div class=\"wp-block-image\"><figure class=\"alignleft is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"https:\/\/kvennabladid.is\/wp-content\/uploads\/2013\/12\/Screen-Shot-2013-12-16-at-1.26.11-AM.png\" alt=\"Screen Shot 2013-12-16 at 1.26.11 AM\" class=\"wp-image-4841\" width=\"267\" height=\"269\"\/><\/figure><\/div>\n\n\n\n<p>Sara: Vi\u00f0 byrju\u00f0um ekkert a\u00f0 swinga fyrr en fyrir svona \u00feremur \u00e1rum. \u00dea\u00f0 sem var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 pr\u00f3fa \u00fea\u00f0 var a\u00f0allega \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g var lei\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e9r fannst \u00e9g hafa fari\u00f0 einhvers \u00e1 mis. Foreldrar m\u00ednir eru af erlendu bergi og \u00e9g \u00f3lst upp vi\u00f0 mj\u00f6g \u00edhaldssamar hugmyndir um saml\u00edf og haf\u00f0i n\u00e1nast enga kynl\u00edfsreynslu \u00feegar \u00e9g kynntist Bjarna. Hann haf\u00f0i hins vegar veri\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0rum konum. \u00c9g var forvitin um \u00fea\u00f0 hvernig v\u00e6ri a\u00f0 vera me\u00f0 \u00f6\u00f0rum manni en \u00ed m\u00f6rg \u00e1r var \u00e9g samt ekki tilb\u00fain \u00ed neinar svona tilraunir. Svo fyrir nokkrum \u00e1rum gekk \u00e9g \u00ed gegnum t\u00edmabil \u00fear sem m\u00e9r fannst hj\u00f3nabandi\u00f0 a\u00f0 \u00feessu leyti heftandi og \u00fea\u00f0 var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f3rum a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feetta \u00ed alv\u00f6ru.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um samt oft minnst \u00e1 \u00feetta \u00e1\u00f0ur. Fyrir m\u00f6rgum \u00e1rum l\u00e1sum vi\u00f0 vi\u00f0tal \u00ed \u00edslensku t\u00edmariti vi\u00f0 f\u00f3lk sem stundar swing og vi\u00f0 h\u00f6fum r\u00e6tt \u00feetta af og til s\u00ed\u00f0an.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>En n\u00fa eru makaskipti og org\u00edur ekki eitthva\u00f0 sem f\u00f3lk r\u00e6\u00f0ir miki\u00f0 \u00e1 kaffistofunni, hvernig komust \u00fei\u00f0 \u00ed samband vi\u00f0 f\u00f3lk me\u00f0 sama \u00e1hugam\u00e1l?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Vi\u00f0 sko\u00f0u\u00f0um nets\u00ed\u00f0ur og fundum kl\u00fabba \u00ed n\u00e1grenninu. Vi\u00f0 h\u00f6fum l\u00edka \u00e1tt kynfer\u00f0isleg kynni vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i p\u00f6r og einstaklinga sem vi\u00f0 h\u00f6fum kynnst \u00ed gegnum nets\u00ed\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Var\u00f0 fyrir h\u00e1lfger\u00f0u \u00e1falli<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>H\u00f6f\u00f0u\u00f0 \u00fei\u00f0 engar \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 myndi ska\u00f0a samband ykkar a\u00f0 lifa kynl\u00edfi me\u00f0 \u00f6\u00f0rum?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: J\u00fa, \u00feetta var st\u00f3rt skref og okkur fannst \u00feetta vera mikil \u00e1h\u00e6tta, kannski s\u00e9rstaklega af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta var vi\u00f0kv\u00e6mt t\u00edmabil \u00ed okkar sambandi, en \u00fea\u00f0 var \u00feetta vandam\u00e1l a\u00f0 m\u00e9r fannst \u00e9g \u00feurfa meiri kynl\u00edfsreynslu og swingi\u00f0 var\u00f0 okkar lausn \u00e1 \u00fev\u00ed. En fyrsta skipti\u00f0 var samt ekki g\u00f3\u00f0 reynsla. \u00dea\u00f0 var subbuleg stemning \u00fear og Bjarni var\u00f0 fyrir h\u00e1lfger\u00f0u \u00e1falli.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Vi\u00f0 st\u00f3\u00f0um ekki skynsamlega a\u00f0 \u00feessu. Vi\u00f0 f\u00f3rum \u00e1 kl\u00fabb \u00fear sem karlar voru \u00ed miklum meirihluta \u00fea\u00f0 kv\u00f6ldi\u00f0 og \u00e9g var\u00f0 \u00fatundan. Vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um samt a\u00f0 pr\u00f3fa annan kl\u00fabb og fara heim ef \u00f6\u00f0ru hvoru okkar li\u00f0i ekki vel. Og \u00fea\u00f0 var allt \u00f6\u00f0ru v\u00edsi.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>Hefur swingi\u00f0 haft einhver s\u00e9rst\u00f6k \u00e1hrif \u00e1 samband ykkar?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: J\u00e1, \u00feetta er kannski ekki fyrir alla en samband okkar er betra en \u00e1\u00f0ur. Vi\u00f0 t\u00f6lum meira saman um kynl\u00edfi\u00f0 og pr\u00f3fum n\u00fdja hluti.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Vi\u00f0 h\u00f6fum veri\u00f0 mj\u00f6g opin og hreinskilin hvort vi\u00f0 anna\u00f0 og m\u00e9r s\u00fdnist \u00fea\u00f0 einkenna \u00feau p\u00f6r sem vi\u00f0 h\u00f6fum kynnst \u00ed gegnum swingi\u00f0. \u00deetta hefur l\u00edka b\u00e6tt okkar samband \u00e1 \u00feann h\u00e1tt a\u00f0 \u00feegar ma\u00f0ur horfir \u00e1 maka sinn me\u00f0 annarri manneskju \u00fe\u00e1 s\u00e9r ma\u00f0ur hann sem kynveru fr\u00e1 \u00f6\u00f0ru sj\u00f3narhorni en venjulega. \u00dea\u00f0 er \u00e6sandi \u00feegar makinn kemur me\u00f0 n\u00fdja reynslu inn \u00ed kynl\u00edfi\u00f0 og \u00e9g hef l\u00edka kynnst S\u00f6ru betur vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 hennar vi\u00f0 snertingu annarra.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u00dei\u00f0 komi\u00f0 m\u00e9r fyrir sj\u00f3nir eins og afskaplega venjulegt mi\u00f0aldra millist\u00e9ttarpar en \u00e9g g\u00e6ti tr\u00faa\u00f0 a\u00f0 margir \u00e1l\u00edti a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9u a\u00f0allega b\u00f3hemar og f\u00f3lk me\u00f0 afbrig\u00f0ilegar kyn\u00fearfir sem stundar swingkl\u00fabba. Eru einhverjar tilteknar t\u00fdpur \u00e1berandi me\u00f0al gesta?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Vi\u00f0 erum d\u00e6miger\u00f0. \u00dea\u00f0 eru s\u00e9rst\u00f6k kv\u00f6ld fyrir \u00fe\u00e1 sem eru me\u00f0 einhver \u00e1kve\u00f0in fetish en vi\u00f0 h\u00f6fum ekki m\u00e6tt \u00e1 \u00feau kv\u00f6ld.<\/p>\n\n\n\n<p>Sara: \u00deetta er a\u00f0allega f\u00f3lk \u00e1 aldrinum 30-50 \u00e1ra. \u00deegar vi\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um a\u00f0 pr\u00f3fa \u00feetta var \u00e9g d\u00e1l\u00edti\u00f0 feimin og haf\u00f0i \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri ekki n\u00f3gu flott \u00ed \u00fatliti. \u00c9g \u00e1tti alveg eins von \u00e1 a\u00f0 vera eina konan sem liti ekki \u00fat eins og m\u00f3del. En \u00fea\u00f0 er alls ekki \u00feannig. \u00dearna eru alls konar konur \u00e1 m\u00ednum aldri. \u00c9g komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er kyn\u00feokkafull, og ekki bara \u00ed augum \u00feess sem elskar mig. Swingi\u00f0 hefur gert mig djarfari \u00ed kynl\u00edfinu og \u00f3feimnari vi\u00f0 m\u00ednar eigin langanir. \u00dea\u00f0 hefur l\u00edka auki\u00f0 sj\u00e1lfstraust mitt \u00fev\u00ed \u00e9g vissi ekki \u00e1\u00f0ur a\u00f0 karlmenn girntust mig. \u00dea\u00f0 gefur m\u00e9r sj\u00e1lfstraust a\u00f0 vita a\u00f0 karlmenn horfa \u00e1 l\u00edkama minn, d\u00e1st a\u00f0 honum og langar til a\u00f0 snerta hann.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>\u00c1kve\u00f0nar si\u00f0areglur<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>Hvernig er a\u00f0 koma inn \u00e1 svona sta\u00f0? Gengur ma\u00f0ur inn \u00ed org\u00edu og dr\u00edfur sig \u00far f\u00f6tunum og stekkur \u00e1 \u00feann sem manni finnst girnilegastur e\u00f0a er f\u00f3lk vali\u00f0 saman me\u00f0 teningakasti, e\u00f0a hva\u00f0?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: \u00dea\u00f0 gilda \u00e1kve\u00f0nar si\u00f0areglur og ef f\u00f3lk vir\u00f0ir \u00fe\u00e6r ekki \u00fe\u00e1 er \u00fev\u00ed v\u00edsa\u00f0 burt. Enginn f\u00e6r a\u00f0 koma inn undir \u00e1hrifum v\u00edmuefna og f\u00f3lk n\u00e1lgast hva\u00f0 anna\u00f0 af vir\u00f0ingu. Ma\u00f0ur \u00fearf sk\u00fdrt sam\u00feykki fyrir \u00f6llu sem ma\u00f0ur gerir og ef vi\u00f0komandi segir nei \u00fe\u00e1 m\u00e1 ma\u00f0ur ekki spyrja aftur \u00ed \u00fea\u00f0 skipti\u00f0. \u00dea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 athafna sig \u00ed einkar\u00fdmi e\u00f0a vera fyrir allra augum og bj\u00f3\u00f0a \u00f6\u00f0rum a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed leiknum en eins og \u00ed \u00f6\u00f0ru kynl\u00edfi er \u00fea\u00f0 alltaf s\u00e1 sem vill ganga skemmst sem setur m\u00f6rkin.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>Er swingi\u00f0 reglulegur \u00fe\u00e1ttur \u00ed ykkar kynl\u00edfi?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: Nei, ekki \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 m\u00e6tum \u00ed hverri viku. \u00dea\u00f0 koma t\u00edmabil sem vi\u00f0 f\u00f6rum oft og svo \u00e1 milli h\u00f6fum vi\u00f0 minni \u00e1huga. \u00deetta er heldur ekki \u00feannig a\u00f0 ma\u00f0ur taki skyndi\u00e1kv\u00f6r\u00f0un um a\u00f0 skella s\u00e9r \u00e1 kl\u00fabbinn. Ma\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 b\u00f3ka t\u00edma fyrirfram, e\u00f0a m\u00e6la s\u00e9r m\u00f3t vi\u00f0 leikf\u00e9laga, \u00fatvega barnap\u00f6ssun og sk\u00e1lda upp sk\u00fdringar \u00e1 \u00fev\u00ed hvert ma\u00f0ur s\u00e9 a\u00f0 fara.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>Hva\u00f0 er \u00feetta st\u00f3r h\u00f3pur sem stundar ykkar kl\u00fabb?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: \u00dea\u00f0 eru m\u00f6rg hundru\u00f0 manns sem tilheyra kl\u00fabbnum en \u00fea\u00f0 m\u00e6ta au\u00f0vita\u00f0 aldrei allir. \u00cd mi\u00f0ri viku \u00feegar f\u00f3lk m\u00e6tir \u00ed p\u00f6rum hafa oft veri\u00f0 svona 20-30 manns. \u00c1 f\u00f6stud\u00f6gum getur f\u00f3lk komi\u00f0 \u00e1n maka og \u00fe\u00e1 hafa m\u00e6tt upp undir 60 manns.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Engin trygging fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 finna f\u00e9laga<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>En n\u00fa lentir \u00fe\u00fa \u00ed \u00fev\u00ed sj\u00e1lfur a\u00f0 ver\u00f0a \u00fatundan \u00feegar \u00fei\u00f0 f\u00f3ru\u00f0 \u00e1 svona sta\u00f0 \u00ed fyrsta sinn. Haldi\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 gerist oft?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: J\u00e1j\u00e1. \u00dea\u00f0 a\u00f0 fara \u00e1 swingkl\u00fabb er engin trygging fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa finnir leikf\u00e9laga, ekki frekar en a\u00f0 \u00fe\u00fa getur veri\u00f0 viss um a\u00f0 hitta skemmtilegt f\u00f3lk ef \u00fe\u00fa fer\u00f0 \u00e1 p\u00f6bb.<\/p>\n\n\n\n<p>Sara: \u00dea\u00f0 eru s\u00e9rstaklega karlmenn sem m\u00e6ta einir sem fara vonsviknir heim. Svo \u00e1 f\u00f3lk l\u00edka misvel saman. Ma\u00f0ur hittir lei\u00f0inlegt f\u00f3lk \u00e1 swingkl\u00fabbum eins og alls sta\u00f0ar annars sta\u00f0ar. Vi\u00f0 h\u00f6fum einu sinni lent \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 hitta engan sem okkur leist \u00e1 og \u00fe\u00e1 er einmitt gott a\u00f0 vera me\u00f0 f\u00e9laga. Fyrsta skipti\u00f0 var misheppna\u00f0 \u00fev\u00ed vi\u00f0 vorum ekki b\u00fain a\u00f0 setja okkur neinar reglur en \u00ed dag myndum vi\u00f0 fara heim ef \u00f6\u00f0ru hvoru okkar li\u00f0i ekki vel.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: \u00dea\u00f0 sama gildir \u00feegar vi\u00f0 hittum f\u00f3lk utan kl\u00fabbsins, ma\u00f0ur \u00e1 alltaf a\u00f0 geta af\u00feakka\u00f0 \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 kosti lei\u00f0indi. En svo er \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00feetta eins og anna\u00f0 \u00ed l\u00edfinu a\u00f0 ma\u00f0ur getur ekkert v\u00e6nst \u00feess a\u00f0 \u00feetta s\u00e9 alltaf fr\u00e1b\u00e6rt. Stundum er \u00fea\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rt en alls ekki alltaf.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Swing er ekki framhj\u00e1hald<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>\u00deegar or\u00f0i\u00f0 framhj\u00e1hald er nefnt er kynl\u00edf utan sambands oft \u00fea\u00f0 fyrsta sem kemur upp \u00ed hugann. Eru\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e1tt vi\u00f0 framhj\u00e1hald e\u00f0a skilgreini\u00f0 \u00fei\u00f0 framhj\u00e1hald \u00e1 annan h\u00e1tt?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: Nei, \u00feetta er ekki framhj\u00e1hald. Vi\u00f0 f\u00f6rum ekki \u00e1 bak vi\u00f0 hvort anna\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Framhj\u00e1hald er \u00fea\u00f0 a\u00f0 breg\u00f0ast trausti. A\u00f0 vir\u00f0a ekki m\u00f6rk hins a\u00f0ilans um \u00fea\u00f0 hvers konar samskipti ma\u00f0ur getur \u00e1tt vi\u00f0 a\u00f0ra. Par getur haft anna\u00f0 samkomulag um \u00fea\u00f0 hvar m\u00f6rkin liggja en \u00feau sem eru f\u00e9laglega vi\u00f0urkennd og vi\u00f0 vir\u00f0um \u00f3skir hvort annars ef m\u00f6rkin eru ekki \u00feau s\u00f6mu.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>Koma upp svolei\u00f0is tilvik, a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 mismunandi m\u00f6rk?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: J\u00e1. \u00c9g er til d\u00e6mis ekki tilb\u00fain til a\u00f0 stunda kynl\u00edf me\u00f0 vinum okkar. Vi\u00f0 h\u00f6fum eignast s\u00e9rstaka swing-vini en \u00e9g vil ekki eiga samskipti vi\u00f0 \u00feau a\u00f0 \u00f6\u00f0ru leyti og \u00e9g myndi heldur ekki vilja kynl\u00edf me\u00f0 f\u00f3lki sem vi\u00f0 umg\u00f6ngumst dagsdaglega. Bjarni myndi ekki hafa \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed en \u00fear sem \u00e9g hef ekki \u00e1huga \u00e1 \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 gerum vi\u00f0 \u00fea\u00f0 ekki. Vi\u00f0 misbj\u00f3\u00f0um ekki hvort \u00f6\u00f0ru.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>Myndu\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00fdsa ykkar hj\u00f3nabandi sem \u201eopnu sambandi\u201c?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: Nei. Af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 erum ekki me\u00f0 \u00f6\u00f0rum nema r\u00e6\u00f0a \u00fea\u00f0 fyrirfram.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Vi\u00f0 h\u00f6fum einu sinni hitt f\u00f3lk hvort \u00ed s\u00ednu lagi og \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 r\u00e6tt \u00e1\u00f0ur. Annars er \u00feetta eitthva\u00f0 sem vi\u00f0 gerum saman.<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Engin tilfinningatengsl<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>\u00cd hugum flestra eru sterk tengsl milli \u00e1star og kynl\u00edfs. Myndast tilfinningatengsl \u00feegar \u00fei\u00f0 sofi\u00f0 hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Nei. \u00c9g hef aldrei or\u00f0i\u00f0 hrifinn af konu \u00ed \u00feessum a\u00f0st\u00e6\u00f0um. \u00c1st og kynl\u00edf er ekki \u00fea\u00f0 sama og m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 b\u00e6\u00f0i d\u00fdpka \u00e1stina og b\u00e6ta kynl\u00edfi\u00f0 a\u00f0 vera me\u00f0vita\u00f0ur um \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Sara: \u00dea\u00f0 er gaman a\u00f0 swinga en \u00fea\u00f0 skilur ekki neitt eftir sig eins og \u00feegar ma\u00f0ur elskast. Fyrir sk\u00f6mmu hringdi \u00ed mig kona sem vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um hitt \u00e1samt manninum hennar fyrir um \u00fea\u00f0 bil \u00e1ri s\u00ed\u00f0an. \u00c9g var d\u00e1litla stund a\u00f0 koma henni fyrir mig. \u00deegar ma\u00f0ur stundar kynl\u00edf me\u00f0 \u00feessu hugarfari \u00fe\u00e1 myndar ma\u00f0ur ekki tengsl.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u00c9g hef heyrt \u00fe\u00e1 kenningu a\u00f0 \u00fe\u00f3tt opin samb\u00f6nd geti gengi\u00f0 upp \u00fe\u00e1 s\u00e9 \u00e1herslan alltaf meiri \u00e1 f\u00f3rnina en \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur f\u00e6r \u00ed sta\u00f0inn. Upplifi\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fea\u00f0 sem f\u00f3rn a\u00f0 deila maka ykkar me\u00f0 \u00f6\u00f0rum?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: Ekki f\u00f3rn, nei. \u00dea\u00f0 er st\u00f3r \u00e1kv\u00f6r\u00f0un a\u00f0 deila maka s\u00ednum me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. \u00dea\u00f0 krefst hugrekkis og mikils trausts. En ma\u00f0ur er bara a\u00f0 deila honum kynfer\u00f0islega, \u00feetta eru ekki \u00e1starsamb\u00f6nd heldur leikur og \u00feegar traust og hreinskilni r\u00edkir \u00fe\u00e1 f\u00e6r ma\u00f0ur meira til baka.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Ma\u00f0ur f\u00e6r til d\u00e6mis efni \u00ed fantas\u00edur. N\u00fd reynsla ver\u00f0ur svo hluti af okkar kynl\u00edfi.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Halda swinginu leyndu<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>\u00dea\u00f0 hv\u00edlir \u00e1kve\u00f0in leynd yfir \u00feessari kynheg\u00f0un og \u00fei\u00f0 vilji\u00f0 t.d. ekki koma fram undir nafni. Er \u00feetta miki\u00f0 leyndarm\u00e1l e\u00f0a vita a\u00f0rir af \u00feessu?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: Vi\u00f0 h\u00f6ldum \u00feessu leyndu. \u00dea\u00f0 er ekki \u00fea\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 sk\u00f6mmumst okkar heldur eru bara svo miklir ford\u00f3mar r\u00edkjandi.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: F\u00f3lk getur \u00e1tt \u00e1 h\u00e6ttu a\u00f0 missa vinnuna og lenda \u00ed \u00f6\u00f0rum vandr\u00e6\u00f0um ef kemst \u00ed h\u00e1m\u00e6li a\u00f0 \u00fea\u00f0 stundi swingkl\u00fabb. \u00deetta er kannski svipa\u00f0 og me\u00f0 samkynhneig\u00f0 \u00e1\u00f0ur. \u00c9g \u00e1 alveg eins von \u00e1 a\u00f0 m\u00fararnir \u00ed kringum swingi\u00f0 falli n\u00e6st svo \u00fea\u00f0 v\u00e6ri j\u00e1kv\u00e6tt ef v\u00e6ri h\u00e6gt a\u00f0 hafa \u00feetta uppi \u00e1 bor\u00f0inu en \u00e9g er ekki tilb\u00fainn til \u00feess.<\/p>\n\n\n\n<p>Sara: \u00deetta er l\u00edka bara einkam\u00e1l. \u00c9g sag\u00f0i vinkonu minni fr\u00e1 \u00feessu og einu sinni \u00feegar h\u00fan var b\u00fain a\u00f0 drekka a\u00f0eins meira en skynsamlegt var f\u00f3r h\u00fan a\u00f0 tala full lauslega \u00ed \u00e1heyrn annarra. \u00c9g k\u00e6ri mig ekkert um a\u00f0 mitt kynl\u00edf s\u00e9 \u00e1 allra v\u00f6rum svo eftir \u00fea\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feetta ekki vi\u00f0 a\u00f0ra. \u00c9g vil heldur alls ekki a\u00f0 b\u00f6rnin okkar viti \u00feetta.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Vi\u00f0 r\u00e6\u00f0um kynfer\u00f0ism\u00e1l vi\u00f0 b\u00f6rnin eftir aldri \u00feeirra og \u00feroska en vi\u00f0 segjum \u00feeim ekki hva\u00f0 vi\u00f0 gerum \u00ed r\u00faminu e\u00f0a hva\u00f0a kl\u00e1mmyndir vi\u00f0 h\u00f6fum horft \u00e1 og \u00feetta er bara \u00ed sama flokki.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Kynjamunur<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>\u00deegar \u00fei\u00f0 sko\u00f0i\u00f0 ykkar samband og \u00feeirra sem \u00fei\u00f0 kannist vi\u00f0 \u00ed gegnum swingi\u00f0, sj\u00e1i\u00f0 \u00fei\u00f0 mun \u00e1 \u00e1huga f\u00f3lks eftir kyni?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: \u00dea\u00f0 eru fleiri karlar sem m\u00e6ta einir \u00e1 kv\u00f6ldum sem eru opin fyrir einhleypa og \u00feegar vi\u00f0 h\u00f6fum kynnst p\u00f6rum \u00e1 netinu \u00fe\u00e1 eru \u00fea\u00f0 venjulega karlarnir sem skrifa.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: Me\u00f0al okkar kunningja er \u00fea\u00f0 samt oftar konan sem hefur \u00e1tt frumkv\u00e6\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feetta \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 s\u00e9 svo karlinn sem gerir eitthva\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed. \u00dea\u00f0 er annars athyglisvert a\u00f0 \u00feegar vi\u00f0 h\u00f6fum tala\u00f0 vi\u00f0 einhleypa swingara \u00e1 netinu \u00fe\u00e1 er eins og konurnar vilji l\u00e1ta ganga \u00e1 eftir s\u00e9r. Halda okkur heitum en aldrei h\u00e6gt a\u00f0 fastsetja stefnum\u00f3t. Karlarnir hins vegar tala digurbarkalega en m\u00e6ta svo ekki \u00feegar til \u00e1 a\u00f0 taka. \u00dea\u00f0 hefur samt aldrei klikka\u00f0 a\u00f0 hitta p\u00f6r.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\"><strong>Best a\u00f0 fara r\u00f3lega af sta\u00f0<\/strong><\/h2>\n\n\n\n<p><strong>Myndu\u00f0 \u00fei\u00f0 m\u00e6la me\u00f0 swingkl\u00fabbum fyrir a\u00f0ra?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>Sara: \u00c9g held a\u00f0 \u00feeir sem hafa \u00e1huga \u00e1 \u00feessu \u00feurfi enga ytri hvatningu. \u00deessi vinkona m\u00edn sem \u00e9g sag\u00f0i fr\u00e1 swinginu vir\u00f0ist spennt fyrir \u00feessu og h\u00fan hefur oft sagt vi\u00f0 mig a\u00f0 vi\u00f0 \u00e6ttum endilega a\u00f0 draga hana og manninn hennar me\u00f0 okkur. En \u00e9g hef engan \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 taka \u00fe\u00e1 \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 mig. F\u00f3lk sem vill swinga ver\u00f0ur bara a\u00f0 gera eitthva\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed sj\u00e1lft.<\/p>\n\n\n\n<p>Bjarni: \u00dea\u00f0 sem \u00e9g get m\u00e6lt me\u00f0 er a\u00f0 \u00feeir sem \u00e6tla a\u00f0 pr\u00f3fa \u00feetta standi betur a\u00f0 \u00fev\u00ed en vi\u00f0 ger\u00f0um \u00ed fyrsta skipti\u00f0. Ef \u00e9g \u00e6tti a\u00f0 fara til baka \u00fe\u00e1 myndum vi\u00f0 fyrst horfa \u00e1 a\u00f0ra \u00ed leik og snertast \u00e1n \u00feess a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a \u00f6\u00f0rum a\u00f0 vera me\u00f0. R\u00e6\u00f0a svo saman \u00feegar heim er komi\u00f0 og \u00e1kve\u00f0a \u00fe\u00e1 fyrst hvort vi\u00f0 vildum pr\u00f3fa a\u00f0 ganga lengra n\u00e6st.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deegar or\u00f0i\u00f0 framhj\u00e1hald er nefnt er kynl\u00edf utan sambands eitt af \u00fev\u00ed fyrsta sem kemur upp \u00ed hugann. \u00de\u00f3 er til f\u00f3lk sem telur ekki neikv\u00e6tt a\u00f0 deila maka s\u00ednum me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. Bjarni og Sara eru \u00e1 fimmtugsaldri og eiga a\u00f0 baki 16 \u00e1ra hj\u00f3naband. \u00deau fluttust fr\u00e1 \u00cdslandi fyrir 5 \u00e1rum og \u00e1 n\u00fdja [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":7,"featured_media":357,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"off","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[46],"tags":[158,159,157,156],"class_list":["post-355","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-gestapistlar-vidtol","tag-ast","tag-framhjahald","tag-kynlif","tag-swing","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.4 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0 - Eva Hauksd\u00f3ttir<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0 - Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"\u00deegar or\u00f0i\u00f0 framhj\u00e1hald er nefnt er kynl\u00edf utan sambands eitt af \u00fev\u00ed fyrsta sem kemur upp \u00ed hugann. \u00de\u00f3 er til f\u00f3lk sem telur ekki neikv\u00e6tt a\u00f0 deila maka s\u00ednum me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. Bjarni og Sara eru \u00e1 fimmtugsaldri og eiga a\u00f0 baki 16 \u00e1ra hj\u00f3naband. \u00deau fluttust fr\u00e1 \u00cdslandi fyrir 5 \u00e1rum og \u00e1 n\u00fdja [&hellip;]\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2013-12-13T12:23:28+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2020-05-31T03:44:40+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2013\/12\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"688\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"451\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"13 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34\"},\"headline\":\"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0\",\"datePublished\":\"2013-12-13T12:23:28+00:00\",\"dateModified\":\"2020-05-31T03:44:40+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/\"},\"wordCount\":2518,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/36\\\/2013\\\/12\\\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg\",\"keywords\":[\"\u00e1st\",\"framhj\u00e1hald\",\"kynl\u00edf\",\"swing\"],\"articleSection\":[\"Gestapistlar &amp; vi\u00f0t\u00f6l\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/\",\"name\":\"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0 - Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/36\\\/2013\\\/12\\\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg\",\"datePublished\":\"2013-12-13T12:23:28+00:00\",\"dateModified\":\"2020-05-31T03:44:40+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/36\\\/2013\\\/12\\\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/36\\\/2013\\\/12\\\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg\",\"width\":688,\"height\":451},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2013\\\/12\\\/13\\\/swingid-hefur-baett-sambandid\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"description\":\"Evu blogg\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g\",\"caption\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\"},\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/author\\\/evahauks\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0 - Eva Hauksd\u00f3ttir","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0 - Eva Hauksd\u00f3ttir","og_description":"\u00deegar or\u00f0i\u00f0 framhj\u00e1hald er nefnt er kynl\u00edf utan sambands eitt af \u00fev\u00ed fyrsta sem kemur upp \u00ed hugann. \u00de\u00f3 er til f\u00f3lk sem telur ekki neikv\u00e6tt a\u00f0 deila maka s\u00ednum me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. Bjarni og Sara eru \u00e1 fimmtugsaldri og eiga a\u00f0 baki 16 \u00e1ra hj\u00f3naband. \u00deau fluttust fr\u00e1 \u00cdslandi fyrir 5 \u00e1rum og \u00e1 n\u00fdja [&hellip;]","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/","og_site_name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","article_published_time":"2013-12-13T12:23:28+00:00","article_modified_time":"2020-05-31T03:44:40+00:00","og_image":[{"width":688,"height":451,"url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2013\/12\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"13 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#\/schema\/person\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34"},"headline":"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0","datePublished":"2013-12-13T12:23:28+00:00","dateModified":"2020-05-31T03:44:40+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/"},"wordCount":2518,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2013\/12\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg","keywords":["\u00e1st","framhj\u00e1hald","kynl\u00edf","swing"],"articleSection":["Gestapistlar &amp; vi\u00f0t\u00f6l"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/","name":"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0 - Eva Hauksd\u00f3ttir","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2013\/12\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg","datePublished":"2013-12-13T12:23:28+00:00","dateModified":"2020-05-31T03:44:40+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#\/schema\/person\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/#primaryimage","url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2013\/12\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg","contentUrl":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2013\/12\/swingers-in-bed-688x451-1.jpg","width":688,"height":451},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2013\/12\/13\/swingid-hefur-baett-sambandid\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Swingi\u00f0 hefur b\u00e6tt sambandi\u00f0"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","description":"Evu blogg","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#\/schema\/person\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g","caption":"Eva Hauksd\u00f3ttir"},"url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/author\/evahauks\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/355","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/users\/7"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=355"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/355\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":356,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/355\/revisions\/356"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/media\/357"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=355"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=355"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=355"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}