{"id":335,"date":"2020-04-27T11:28:32","date_gmt":"2020-04-27T11:28:32","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/eva\/?p=335"},"modified":"2026-02-28T17:35:08","modified_gmt":"2026-02-28T17:35:08","slug":"hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/","title":{"rendered":"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala?"},"content":{"rendered":"\n<p>Forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur ney\u00f0arhj\u00e1lpar Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna hefur sagt a\u00f0 samfara k\u00f3r\u00f3nufaraldrinum megi b\u00faast vi\u00f0 hungursney\u00f0&nbsp;<a href=\"https:\/\/www.theguardian.com\/global-development\/2020\/apr\/21\/coronavirus-pandemic-will-cause-famine-of-biblical-proportions\">\u201e\u00e1 bibl\u00eduskala\u201c<\/a>. Fj\u00f6lmi\u00f0lar v\u00ed\u00f0svegar um heim hafa slegi\u00f0 \u00feessum umm\u00e6lum upp \u00ed fyrirs\u00f6gnum en f\u00e1ir hafa gert tilraun til a\u00f0 sk\u00fdra merkingu \u00feessara or\u00f0a.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00cd ensku er or\u00f0i\u00f0 \u201ebiblical\u201c stundum nota\u00f0 \u00ed s\u00f6mu merkingu og gr\u00ed\u00f0arlegt, a\u00f0allega \u00ed tengslum vi\u00f0 hverskyns hamfarir. Hugrenningartengslin vi\u00f0 pl\u00e1gur bibl\u00edunnar eru auglj\u00f3s. Fr\u00e9ttama\u00f0ur BBC, &nbsp;<a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Michael_Buerk\">Michael Buerk<\/a>, nota\u00f0i \u00feetta or\u00f0alag t.d. um hungurney\u00f0ina \u00ed E\u00fe\u00ed\u00f3p\u00edu \u00e1 n\u00edunda \u00e1ratug s\u00ed\u00f0ustu aldar. \u00dev\u00ed er haldi\u00f0 fram a\u00f0 me\u00f0 \u00feessum umm\u00e6lum hafi Buerk or\u00f0i\u00f0 hvati a\u00f0 stofnun Band-Aid, \u00fear sem fj\u00f6ldi s\u00faperstirna flutti lagi\u00f0 <em>Do They Know it Christmas<\/em>? \u00dev\u00ed verkefni &nbsp;var b\u00e6\u00f0i \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 safna f\u00e9 til hj\u00e1lpar f\u00f3rnarl\u00f6mbum hungursney\u00f0arinnar og vekja al\u00fej\u00f3\u00f0asamf\u00e9lagi\u00f0 til vitundar um \u00e1standi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Er hungur \u00ed Bibl\u00edunni alvarlegra en yfirleitt \u00e1 okkar t\u00edmum? E\u00f0a er \u00feetta bara or\u00f0atilt\u00e6ki sem \u00e6tla\u00f0 er a\u00f0 hr\u00e6ra hj\u00f6rtu okkar?<\/p>\n\n\n\n<h2 class=\"wp-block-heading\">Hall\u00e6ri \u00ed bibl\u00edunni<\/h2>\n\n\n\n<p>\u00deegar tala\u00f0 er um hall\u00e6ri \u00ed Bibl\u00edunni er \u00e1tt vi\u00f0 mj\u00f6g alvarlegan e\u00f0a langvarandi uppskerubrest sem veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 margir svelta. Svo vir\u00f0ist sem tala\u00f0 s\u00e9 um hall\u00e6ri \u00feegar aflei\u00f0ingarnar eru eftirfarandi:<\/p>\n\n\n\n<ul class=\"wp-block-list\">\n<li>F\u00f3lk fl\u00fdr heimahaga s\u00edna \u00ed von um a\u00f0 lifa af.<\/li>\n\n\n\n<li>Samf\u00e9l\u00f6g sem venjulega eru sj\u00e1lfum s\u00e9r n\u00f3g ney\u00f0ast til a\u00f0 leita a\u00f0sto\u00f0ar n\u00e1granna sinna.<\/li>\n\n\n\n<li>Hungri\u00f0 kn\u00fdr f\u00f3lk til a\u00f0 leggja s\u00e9r \u00f3\u00e6ti til munns.<\/li>\n<\/ul>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong>F\u00d3LKSFL\u00d3TTI<\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>D\u00e6mi um hall\u00e6ri sem olli f\u00f3lksfl\u00f3tta er a\u00f0 finna strax \u00ed s\u00f6gu Abrahams og Lot \u00ed fyrstu M\u00f3seb\u00f3k. Svokalla\u00f0ir \u201evelfer\u00f0arfl\u00f3ttamenn\u201c, \u00fe.e. f\u00f3lk sem yfirgefur sv\u00e6\u00f0i \u00fear sem ekkert b\u00ed\u00f0ur \u00feess nema \u00f6rbirg\u00f0, \u00ed von um betra l\u00edf annarssta\u00f0ar, er nefnilega ekki aflei\u00f0ing \u00feess a\u00f0 vestr\u00e6nt velfer\u00f0arkerfi s\u00e9 svo a\u00f0la\u00f0andi, f\u00f3lk hefur einfaldlega alltaf brug\u00f0ist \u00feannig vi\u00f0. \u00de\u00e1, eins og n\u00fa eiga \u00feeir sem eru \u00ed s\u00e6milegum efnum mun meiri m\u00f6guleika en f\u00e1t\u00e6klingar \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 komast undan. \u00dea\u00f0 er heldur ekkert n\u00fdtt a\u00f0 fl\u00f3ttamenn ney\u00f0ist til \u00feess a\u00f0 hagr\u00e6\u00f0a sannleikanum e\u00f0a hreinlega lj\u00faga til um aldur sinn, fj\u00f6lskyldutengsl e\u00f0a a\u00f0ra hagi, til \u00feess a\u00f0 lifa af.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deannig segir fyrsta M\u00f3seb\u00f3k fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feegar Abraham haf\u00f0i fer\u00f0ast yfir Kanaan og kom me\u00f0 hjar\u00f0ir s\u00ednar, fj\u00f6lskyldu og \u00fer\u00e6la til su\u00f0urhluta landsins var hall\u00e6ri \u00ed landinu. Abraham og f\u00f3lk hans voru hir\u00f0ingjar og undir venjulegum kringumst\u00e6\u00f0um hef\u00f0u \u00feau dvali\u00f0 nokkrar vikur e\u00f0a m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 \u00fev\u00ed sv\u00e6\u00f0i. \u00dear sem engin beit var fyrir b\u00fastofninn vegna \u00feurrka og enga f\u00e6\u00f0u a\u00f0 hafa, \u00e1kva\u00f0 Abraham a\u00f0 fara me\u00f0 allt sitt li\u00f0 til Egyptalands.<\/p>\n\n\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignleft\"><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2020\/05\/abraham-sarah-pharaoh.jpg\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2020\/05\/abraham-sarah-pharaoh.jpg\" alt=\"\"\/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\"><em>Abraham&nbsp;afhendir fara\u00f3 S\u00f6ru<\/em><\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>Abraham f\u00e9kk S\u00f6ru, konu s\u00edna og h\u00e1lfsystur, til a\u00f0 blekkja Egypta me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segjast vera systir Abrahams en taka ekki fram a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru l\u00edka hj\u00f3n. \u00c1st\u00e6\u00f0an var s\u00fa a\u00f0 hann \u00f3tta\u00f0ist a\u00f0 Egyptar myndu drepa hann til a\u00f0 n\u00e1 af honum konunni. \u00dea\u00f0 \u00fe\u00f3tti f\u00falmannlegt a\u00f0 nau\u00f0ga giftum konum en \u00fea\u00f0 var h\u00e6gt a\u00f0 b\u00e6ta \u00far \u00fev\u00ed veseni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 losa sig vi\u00f0 eiginmanninn.<\/p>\n\n\n\n<p>Blekkingin reyndist vel um hr\u00ed\u00f0, a.m.k. fyrir Abraham, \u00fev\u00ed Sara var \u201etekin \u00ed h\u00fas fara\u00f3s\u201c og Abraham f\u00e9kk fyrir hana nokku\u00f0 gott ver\u00f0, b\u00e6\u00f0i b\u00faf\u00e9na\u00f0 og \u00fer\u00e6la. Engum s\u00f6gum fer af \u00fev\u00ed hversu \u00e1n\u00e6g\u00f0 Sara var me\u00f0 \u00feessa r\u00e1\u00f0st\u00f6fun.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1 endanum komst upp um \u00feau og var \u00feeim v\u00edsa\u00f0 \u00far landi, svo sem enn vi\u00f0gengst.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong>A\u00d0STO\u00d0 FR\u00c1 N\u00c1GRANNAL\u00d6NDUM<\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>\u00cd fyrstu M\u00f3seb\u00f3k er einnig sagan af draumum Fara\u00f3s en \u00fea\u00f0 er sennilega \u00feekktasta saga bibl\u00edunnar af uppskerubresti. J\u00f3sef haf\u00f0i veri\u00f0 seldur \u00ed \u00fer\u00e6ld\u00f3m til Egyptalands. \u00dear var\u00f0 hann fyrir nau\u00f0gunartilraun af h\u00e1lfu konu h\u00fasb\u00f3nda s\u00edns. Hann fl\u00fa\u00f0i undan henni en h\u00fan sneri s\u00f6gunni vi\u00f0 og \u00e1saka\u00f0i J\u00f3sef um a\u00f0 hafa reynt a\u00f0 nau\u00f0ga s\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p>Vegna \u00feessara f\u00f6lsku \u00e1sakana lendir J\u00f3sef \u00ed fangelsi \u00fear sem hann r\u00e6\u00f0ur drauma samfanga sinna. Fara\u00f3 berst s\u00fa g\u00e1fa hans til eyrna og hann f\u00e6r J\u00f3sef til a\u00f0 r\u00e1\u00f0a fyrir sig tvo drauma.<\/p>\n\n\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignright\"><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2020\/05\/brur-jsefs.jpg\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2020\/05\/brur-jsefs.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-14232\"\/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\"><em>Br\u00e6\u00f0ur J\u00f3sefs voru me\u00f0al \u00feeirra sem leitu\u00f0u til Egypta vegna hall\u00e6risins<\/em><\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>\u00cd fyrri draumi fara\u00f3s stigu sj\u00f6 feitar k\u00fdr upp \u00far \u00e1nni en \u00e1 eftir \u00feeim komu sj\u00f6 magrar k\u00fdr sem \u00e1tu hinar feitu \u00e1n \u00feess a\u00f0 fitna neitt vi\u00f0 \u00fea\u00f0. \u00cd seinni draumnum s\u00e1 fara\u00f3 sj\u00f6 falleg korn\u00f6x. \u00c1 eftir \u00feeim sputtu sj\u00f6 visin \u00f6x sem b\u00e1ru ekkert korn. J\u00f3sef r\u00e9\u00f0 draumana \u00e1 \u00feann veg a\u00f0 \u00ed v\u00e6ndum v\u00e6ru sj\u00f6 g\u00f3\u00f0 \u00e1r en \u00e1 eftir \u00feeim yr\u00f0i sj\u00f6 \u00e1ra hall\u00e6ri. Fara\u00f3 ger\u00f0i J\u00f3sef a\u00f0 r\u00e1\u00f0gjafa s\u00ednum og hann nota\u00f0i g\u00f3\u00f0u \u00e1rin sj\u00f6 til a\u00f0 safna birg\u00f0um til m\u00f6gru \u00e1ranna.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00deegar hall\u00e6ri\u00f0 brast \u00e1 voru for\u00f0ab\u00far opnu\u00f0 og f\u00f3lk gat keypt korn. \u00de.e.a.s. \u00feeir sem \u00e1ttu eitthva\u00f0 a\u00f0 selja \u00e1 m\u00f3ti. Engum s\u00f6gum fer af \u00feeim sem \u00e1ttu enga sj\u00f3\u00f0i en h\u00f6f\u00f0u samt unni\u00f0 nau\u00f0ungarvinnu vi\u00f0 birg\u00f0as\u00f6fnun. Auk \u00feess ur\u00f0u m\u00f6rg l\u00f6nd illa \u00fati og \u00fear sem enginn var undirb\u00fainn nema Egyptar komu menn fr\u00e1 n\u00e1grannal\u00f6ndunum til Egyptalands til a\u00f0 kaupa korn. Ekki er geti\u00f0 um \u00f6rl\u00f6g \u00feeirra sem ekki g\u00e1tu fer\u00f0ast til Egyptalands og bo\u00f0i\u00f0 fram f\u00e9 en vi\u00f0 getum \u00edmynda\u00f0 okkur hva\u00f0 var\u00f0 um \u00fe\u00e6r fj\u00f6lskyldur.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong>\u00d3\u00c6TI<\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>\u00deeir sem ekki bjuggu svo vel a\u00f0 geta fl\u00fai\u00f0 \u00e1 n\u00e1\u00f0ir n\u00e1granna\u00fej\u00f3\u00f0a e\u00f0a keypt af \u00feeim korn ur\u00f0u, samkv\u00e6mt ritningunni, a\u00f0 \u00e9ta \u00fea\u00f0 sem h\u00e6gt var a\u00f0 kyngja, hvort sem flokka\u00f0ist sem matur e\u00f0a eitthva\u00f0 anna\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00d6nnur konungab\u00f3k segir fr\u00e1 hall\u00e6ri \u00ed Samar\u00edu. El\u00edsa sp\u00e1ma\u00f0ur segir \u00fej\u00f3ni s\u00ednum a\u00f0 sj\u00f3\u00f0a s\u00fapu e\u00f0a pottr\u00e9tt handa \u201esonum sp\u00e1mannanna\u201c. (Sp\u00e1mannssveinar tilheyr\u00f0u s\u00e9rst\u00f6kum reglum sem hver um sig laut forystu eins sp\u00e1manns, en voru ekki endilega afkomendur sp\u00e1manna.) Sveinarnir fara a\u00f0 leita matar, einn \u00feeirra finnur \u00f3\u00feekkta villijurt og t\u00ednir af henni \u00e1vexti sem hann setur \u00ed pottinn. Samkv\u00e6mt enskri \u00fe\u00fd\u00f0ingu var \u00feetta \u00e1v\u00f6xtur af graskers\u00e6tt.<\/p>\n\n\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignleft is-resized\"><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2020\/05\/elisa.jpg\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2020\/05\/elisa.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-14233\" style=\"width:372px;height:377px\"\/><\/a><figcaption class=\"wp-element-caption\"><em>Menn t\u00f6ldu a\u00f0 El\u00edsa hef\u00f0i sett galdur \u00ed mj\u00f6li\u00f0 og <\/em><br><em>\u00feannig gert \u00e1v\u00f6xtinn ska\u00f0lausan<\/em><\/figcaption><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p>Mennirnir br\u00f6g\u00f0u\u00f0u \u00e1 matnum en g\u00e1tu ekki bor\u00f0a\u00f0 hann. Sagt er a\u00f0 \u00feeir hafi hlj\u00f3\u00f0a\u00f0 upp yfir sig og sagt; \u201e\u00fea\u00f0 er dau\u00f0i \u00ed pottinum!\u201c \u00deeir hafa v\u00e6ntanlega hlj\u00f3\u00f0a\u00f0 anna\u00f0hvort af hr\u00e6\u00f0slu e\u00f0a \u00feeim hefur or\u00f0i\u00f0 svona illt. El\u00edsa sp\u00e1ma\u00f0ur b\u00e6tti \u00fe\u00e1 mj\u00f6li \u00ed pottinn en vi\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0 r\u00e9tturinn \u00e6tur og enginn bei\u00f0 ska\u00f0a af.<\/p>\n\n\n\n<p>L\u00edklega hefur \u00e1v\u00f6xturinn ekki veri\u00f0 h\u00e6ttulegur, bara mj\u00f6g beiskur \u00e1 brag\u00f0i\u00f0, kannski svi\u00f0i\u00f0 \u00ed munn og valdi\u00f0 \u00f3lgu \u00ed maga. En \u00fea\u00f0 sem skiptir h\u00e9r m\u00e1li er a\u00f0 skorturinn var sl\u00edkur a\u00f0 f\u00f3lk nota\u00f0i \u00e1vexti &nbsp;sem \u00fea\u00f0 \u00feekkti ekki til matar og l\u00e9t sig hafa \u00fea\u00f0 a\u00f0 bor\u00f0a k\u00e1ssuna enda \u00fe\u00f3tt brag\u00f0i\u00f0 vekti, ekki bara \u00f3tta, heldur sannf\u00e6ringu um a\u00f0 maturinn v\u00e6ri eitra\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p>Sagan segir fr\u00e1 fleiri ney\u00f0ar\u00farr\u00e6\u00f0um \u00e1 t\u00edmum hungursney\u00f0arinnar \u00ed Samar\u00edu. \u00dear var svo hart \u00ed \u00e1ri a\u00f0 asnah\u00f6fu\u00f0 voru seld til matar \u00e1 okurpr\u00eds. Asnar eru me\u00f0al hinna \u00f3hreinu d\u00fdra \u00feannig a\u00f0 \u00feetta er svona \u00e1l\u00edka vi\u00f0bj\u00f3\u00f0ur og fyrir gy\u00f0inga og m\u00fasl\u00edma a\u00f0 eta sv\u00ednakj\u00f6t e\u00f0a \u00cdslendinga a\u00f0 \u00e9ta hunda.<\/p>\n\n\n\n<p>Einnig segir a\u00f0 d\u00fafnadrit hafi veri\u00f0 selt h\u00e1u ver\u00f0i. S\u00fa t\u00falkun a\u00f0 d\u00fafnadrit hafi veri\u00f0 nota\u00f0 til manneldis hefur veri\u00f0 dregin \u00ed efa, sumir telja \u00feetta \u00fe\u00fd\u00f0ingarvillu og a\u00f0rir a\u00f0 driti\u00f0 hafi \u00ed raun gengi\u00f0 kaupum og s\u00f6lum en ekki til matar heldur sem eldsneyti. En driti\u00f0 er nefnt \u00ed beinum tengslum vi\u00f0 hungur og s\u00f6gunni er fylgt eftir af enn \u00f3ge\u00f0slegri fr\u00e1s\u00f6gn af konum sem ger\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r samkomulag um a\u00f0 drepa b\u00f6rn s\u00edn og sj\u00f3\u00f0a til matar. Ef eitthva\u00f0 er m\u00e1 n\u00fa telja l\u00edklegra a\u00f0 f\u00f3lk hafi lagt s\u00e9r d\u00fafnadrit til munns en s\u00edn eigin afkv\u00e6mi.<\/p>\n\n\n\n<p>Hva\u00f0 er satt og hva\u00f0 er \u00fdkt \u00ed \u00feessum s\u00f6gum ver\u00f0ur ekki \u00fatklj\u00e1\u00f0 h\u00e9r en \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 getum slegi\u00f0 f\u00f6stu er a\u00f0 \u00ed hungursney\u00f0 \u00e1 \u201ebibl\u00eduskala\u201c ver\u00f0ur \u00f6rv\u00e6ntingin sl\u00edk a\u00f0 ef f\u00f3lk f\u00e6r ekki hj\u00e1lp \u00fe\u00e1 leggur \u00fea\u00f0 s\u00e9r til munns eitthva\u00f0 sem getur veri\u00f0 h\u00e6ttulegt, eitthva\u00f0 sem \u00fev\u00ed b\u00fd\u00f0ur vi\u00f0 og myndi aldrei tala um sem f\u00e6\u00f0u vi\u00f0 e\u00f0lilegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\"><strong>AL\u00deJ\u00d3\u00d0LEG SKILGREINING \u00c1 HUNGURSNEY\u00d0<\/strong><\/h3>\n\n\n\n<p>Fj\u00f6ldi \u00feeirra jar\u00f0arb\u00faa sem hafa ekki ofan \u00ed sig er \u00f3tr\u00falegur. \u00c1ri\u00f0 2019 voru meira en eitt af hverjum fimm b\u00f6rnum undir fimm \u00e1ra aldri vann\u00e6r\u00f0. Ekki \u00ed \u00feeirri merkingu a\u00f0 \u00feau g\u00e6tu oft hugsa\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 bor\u00f0a meira, heldur \u00ed \u00feeirri merkingu a\u00f0 \u00feau bera ska\u00f0a af \u00fev\u00ed, svo sem \u00feroskah\u00f6mlun, beinkr\u00f6m og fleiri kvilla sem geta haft \u00e1hrif \u00e1 heilsufar \u00feeirra&nbsp; og afkomum\u00f6guleika til l\u00edfst\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p>En \u00fea\u00f0 er ekki svelti \u00ed \u00feessum skilningi sem \u00e1tt er vi\u00f0 me\u00f0 hungursney\u00f0. Til \u00feess a\u00f0 Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0irnar l\u00fdsi yfir hungursney\u00f0 \u00fearf eftirfarandi skilyr\u00f0um a\u00f0 vera fulln\u00e6gt:<\/p>\n\n\n\n<ul class=\"wp-block-list\">\n<li>Minnst 20% heimila \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu \u00feurfa a\u00f0 vera \u00ed s\u00e1rri ney\u00f0 vegna f\u00e6\u00f0uskorts og eiga takmarka\u00f0a m\u00f6guleika \u00e1 a\u00f0 komast \u00fat \u00far \u00fev\u00ed \u00e1standi.<\/li>\n\n\n\n<li>Minnst 30% barna undir 5 \u00e1ra aldri \u00e1 \u00fev\u00ed sv\u00e6\u00f0i \u00feurfa a\u00f0 vera vann\u00e6r\u00f0<\/li>\n\n\n\n<li>Fleiri en tveir af hverjum 10 \u00fe\u00fasund svelta til bana daglega.<\/li>\n<\/ul>\n\n\n\n<p>\u00c1 \u00cdslandi myndi \u00feetta merkja a\u00f0 \u00e1 einni viku myndu 510 manns deyja \u00far hungri.<\/p>\n\n\n\n<p>N\u00fa er hungursney\u00f0 ekkert sjaldg\u00e6ft fyrirb\u00e6ri. Bara \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu 10 \u00e1rum hefur hungursey\u00f0 lagt millj\u00f3nir a\u00f0 velli, \u00ed S\u00f3mal\u00edu, Vestur-Afr\u00edku, Yemen, Su\u00f0ur-S\u00fadan og N\u00edger\u00edu og tugir millj\u00f3na sem \u00fe\u00f3 hafa lifa\u00f0 af munu aldrei b\u00ed\u00f0a \u00feess b\u00e6tur. Margir hafa misst heilsuna og eiga enga m\u00f6guleika \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 endurreisa b\u00fastofn sinn og r\u00e6ktarl\u00f6nd nema me\u00f0 utana\u00f0komandi a\u00f0sto\u00f0. Margir hafa misst heimili s\u00edn og eru n\u00fa \u00e1 fl\u00f3tta, \u00fdmist \u00ed eigin landi e\u00f0a utan \u00feess.<\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<h3 class=\"wp-block-heading\">\u00c1 BIBL\u00cdUSKALA<\/h3>\n\n\n\n<p>\u00deegar al\u00fej\u00f3\u00f0astofnanir tala um hungursney\u00f0 \u00e1 \u201ebibl\u00edulegum skala\u201c m\u00e1 b\u00faast vi\u00f0 a\u00f0 \u00e1standi\u00f0 ver\u00f0i me\u00f0 versta m\u00f3ti. Ekki a\u00f0 aflei\u00f0ingarnar ver\u00f0i a\u00f0rar en venjulega, heldur bara fleiri sem \u00fej\u00e1st.<\/p>\n\n\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"aligncenter\"><a href=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2020\/05\/maxresdefault.jpg\"><img decoding=\"async\" src=\"http:\/\/www.norn.is\/pistlar\/wp-content\/uploads\/sites\/2\/2020\/05\/maxresdefault-1024x576.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-14234\"\/><\/a><\/figure>\n<\/div>\n\n\n<p><\/p>\n\n\n\n<p>Bibl\u00edus\u00f6gurnar endurtaka sig st\u00f6\u00f0ugt. \u00c1 okkar d\u00f6gum bor\u00f0ar f\u00e1t\u00e6kt f\u00f3lk d\u00fdraf\u00f3\u00f0ur. \u00c1 okkar d\u00f6gum, r\u00e9tt eins og \u00e1 t\u00edmum gamla testamentisins, hefur sveltandi f\u00f3lk bor\u00f0a\u00f0&nbsp;<a href=\"https:\/\/metro.co.uk\/2018\/08\/24\/people-forced-to-eat-rotting-meat-as-venezuela-economic-crisis-gets-worse-7877731\">skemmdan mat<\/a>,&nbsp;<a href=\"https:\/\/www.independent.co.uk\/news\/world\/africa\/starving-zambians-turn-to-poison-plants-in-desperation-126904.html\">eitra\u00f0ar jurtir<\/a>&nbsp;og&nbsp;<a href=\"http:\/\/www.nbcnews.com\/id\/22902512\/ns\/world_news-americas\/t\/haitis-poor-resort-eating-mud-prices-rise\/#.XqWBG2j0lPZ\">dr\u00fdgt mj\u00f6l me\u00f0 mold<\/a>&nbsp;til \u00feess a\u00f0 halda s\u00e9r \u00e1 l\u00edfi. Sennilega hefur d\u00fafnadriti\u00f0 veri\u00f0 heilsusamlegra en moldark\u00f6kur.<\/p>\n\n\n\n<p>R\u00edk samf\u00e9l\u00f6g geta reikna\u00f0 me\u00f0 enn fleiri fl\u00f3ttam\u00f6nnum \u00e1 n\u00e6stu \u00e1rum og enn\u00fe\u00e1 meiri \u00fatl\u00e1tum vegna ney\u00f0arhj\u00e1lpar. Millj\u00f3nir munu \u00fej\u00e1st. Margir munu b\u00f3kstaflega deyja \u00far hungri, a\u00f0rir veikjast alvarlega af \u00fev\u00ed a\u00f0 bor\u00f0a \u00f3\u00e6ti og mikill fj\u00f6ldi fl\u00fdja heimahaga s\u00edna.<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00fa vola\u00f0a hj\u00f6r\u00f0 sem telur sig r\u00e9ttborna til l\u00edfsg\u00e6\u00f0a mun \u00fe\u00e1, eins og venjulega, sj\u00e1 ofsj\u00f3num yfir hverri kr\u00f3nu sem r\u00edkustu samf\u00e9l\u00f6g heims l\u00e1ta af hendi rakna og vilja fyrir alla muni v\u00edsa sem flestu fl\u00f3ttaf\u00f3lki \u00fat \u00ed hafsauga. St\u00f6\u00f0ugt mun glymja gamli, falski s\u00f6ngurinn um a\u00f0 \u201er\u00e9tta lei\u00f0in\u201c s\u00e9 s\u00fa \u201ea\u00f0 hj\u00e1lpa \u00feessu f\u00f3lki heima\u201c og \u201eh\u00e6tta a\u00f0 henda peningum \u00ed ney\u00f0arhj\u00e1lp en hj\u00e1lpa \u00feeim heldur til sj\u00e1lfshj\u00e1lpar.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p>S\u00f6mu mannleysur hef\u00f0u sennilega sagt Samverjum a\u00f0 \u00e9ta sk\u00edt, en bara n\u00e6ringarr\u00edkan d\u00fafnask\u00edt samt, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er svo vel meinandi \u00feetta f\u00f3lk. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i l\u00edka d\u00e1\u00f0st a\u00f0 r\u00e1\u00f0snilld El\u00edsa sp\u00e1manns \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 sj\u00e1 hryllinginn a\u00f0 baki s\u00f6gunni. Og a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u hef\u00f0u \u00feeir s\u00f6mu stutt brottv\u00edsun Abrahams og S\u00f6ru \u00far Egyptalandi og krafist \u00feess a\u00f0 \u00feeim yr\u00f0i refsa\u00f0 fyrir a\u00f0 lj\u00faga til um hj\u00faskaparst\u00f6\u00f0u s\u00edna.<\/p>\n\n\n<div class=\"vlp-link-container vlp-template-default wp-block-visual-link-preview-link\">\n\t<a href=\"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2016\/07\/05\/hvad-hefdi-jesus-gert\/\" class=\"vlp-link\" title=\"Hva\u00f0 hef\u00f0i Jes\u00fas gert?\" target=\"_blank\"><\/a>\t\t<div class=\"vlp-link-image-container\">\n\t\t<div class=\"vlp-link-image\">\n\t\t\t<img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" style=\"max-width: 150px;\" width=\"150\" height=\"98\" src=\"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/Samverjinn.jpg\" class=\"attachment-150x999 size-150x999\" alt=\"\" srcset=\"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/Samverjinn.jpg 688w, https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/Samverjinn-300x197.jpg 300w\" sizes=\"auto, (max-width: 150px) 100vw, 150px\" \/>\t\t<\/div>\n\t<\/div>\n\t\t<div class=\"vlp-link-text-container\">\n\t\t\t\t<div class=\"vlp-link-title\">\n\t\t\tHva\u00f0 hef\u00f0i Jes\u00fas gert?\t\t<\/div>\n\t\t\t\t\t\t<div class=\"vlp-link-summary\">\n\t\t\tKristnir menn reyna i\u00f0ulega a\u00f0 sl\u00e1 einkaeign sinni \u00e1 almennar hugmyndir um manng\u00e6sku. Hugmyndir sem eru sennilega jafngamlar mannkyninu. \u00dea\u00f0 fer stundum \u00ed taugarnar \u00e1 m\u00e9r \u00feegar \u00fe\u00e6r eru kalla\u00f0ar \u201ekristileg gildi\u201c. Kannski er \u00fea\u00f0 \u00f3\u00fearfa vi\u00f0kv\u00e6mni. \u00deessi gildi sem \u00f6ll tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 og si\u00f0fr\u00e6\u00f0ikerfi, \t\t<\/div>\n\t\t\t<\/div>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur ney\u00f0arhj\u00e1lpar Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna hefur sagt a\u00f0 samfara k\u00f3r\u00f3nufaraldrinum megi b\u00faast vi\u00f0 hungursney\u00f0&nbsp;\u201e\u00e1 bibl\u00eduskala\u201c. Fj\u00f6lmi\u00f0lar v\u00ed\u00f0svegar um heim hafa slegi\u00f0 \u00feessum umm\u00e6lum upp \u00ed fyrirs\u00f6gnum en f\u00e1ir hafa gert tilraun til a\u00f0 sk\u00fdra merkingu \u00feessara or\u00f0a. \u00cd ensku er or\u00f0i\u00f0 \u201ebiblical\u201c stundum nota\u00f0 \u00ed s\u00f6mu merkingu og gr\u00ed\u00f0arlegt, a\u00f0allega \u00ed tengslum vi\u00f0 hverskyns hamfarir. Hugrenningartengslin [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":7,"featured_media":337,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"off","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[85,449,448],"tags":[27,86,87],"class_list":["post-335","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-mannudarmal","category-truarbrogd","category-ymislegt","tag-biblian","tag-fataekt","tag-hungursneyd","et-has-post-format-content","et_post_format-et-post-format-standard"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.4 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala? - Eva Hauksd\u00f3ttir<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala? - Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur ney\u00f0arhj\u00e1lpar Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna hefur sagt a\u00f0 samfara k\u00f3r\u00f3nufaraldrinum megi b\u00faast vi\u00f0 hungursney\u00f0&nbsp;\u201e\u00e1 bibl\u00eduskala\u201c. Fj\u00f6lmi\u00f0lar v\u00ed\u00f0svegar um heim hafa slegi\u00f0 \u00feessum umm\u00e6lum upp \u00ed fyrirs\u00f6gnum en f\u00e1ir hafa gert tilraun til a\u00f0 sk\u00fdra merkingu \u00feessara or\u00f0a. \u00cd ensku er or\u00f0i\u00f0 \u201ebiblical\u201c stundum nota\u00f0 \u00ed s\u00f6mu merkingu og gr\u00ed\u00f0arlegt, a\u00f0allega \u00ed tengslum vi\u00f0 hverskyns hamfarir. Hugrenningartengslin [&hellip;]\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2020-04-27T11:28:32+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2026-02-28T17:35:08+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"http:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/abraham1-688x451-1.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"688\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"451\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"11 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34\"},\"headline\":\"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala?\",\"datePublished\":\"2020-04-27T11:28:32+00:00\",\"dateModified\":\"2026-02-28T17:35:08+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/\"},\"wordCount\":2250,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/36\\\/2020\\\/05\\\/abraham1-688x451-1.jpg\",\"keywords\":[\"Bibl\u00edan\",\"f\u00e1t\u00e6kt\",\"hungursney\u00f0\"],\"articleSection\":[\"Mann\u00fa\u00f0arm\u00e1l\",\"Tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0\",\"\u00ddmislegt\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/\",\"name\":\"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala? - Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/36\\\/2020\\\/05\\\/abraham1-688x451-1.jpg\",\"datePublished\":\"2020-04-27T11:28:32+00:00\",\"dateModified\":\"2026-02-28T17:35:08+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/36\\\/2020\\\/05\\\/abraham1-688x451-1.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/wp-content\\\/uploads\\\/sites\\\/36\\\/2020\\\/05\\\/abraham1-688x451-1.jpg\",\"width\":688,\"height\":451},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/2020\\\/04\\\/27\\\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala?\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"description\":\"Evu blogg\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"is\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g\",\"caption\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\"},\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/eva\\\/author\\\/evahauks\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala? - Eva Hauksd\u00f3ttir","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala? - Eva Hauksd\u00f3ttir","og_description":"Forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur ney\u00f0arhj\u00e1lpar Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna hefur sagt a\u00f0 samfara k\u00f3r\u00f3nufaraldrinum megi b\u00faast vi\u00f0 hungursney\u00f0&nbsp;\u201e\u00e1 bibl\u00eduskala\u201c. Fj\u00f6lmi\u00f0lar v\u00ed\u00f0svegar um heim hafa slegi\u00f0 \u00feessum umm\u00e6lum upp \u00ed fyrirs\u00f6gnum en f\u00e1ir hafa gert tilraun til a\u00f0 sk\u00fdra merkingu \u00feessara or\u00f0a. \u00cd ensku er or\u00f0i\u00f0 \u201ebiblical\u201c stundum nota\u00f0 \u00ed s\u00f6mu merkingu og gr\u00ed\u00f0arlegt, a\u00f0allega \u00ed tengslum vi\u00f0 hverskyns hamfarir. Hugrenningartengslin [&hellip;]","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/","og_site_name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","article_published_time":"2020-04-27T11:28:32+00:00","article_modified_time":"2026-02-28T17:35:08+00:00","og_image":[{"width":688,"height":451,"url":"http:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/abraham1-688x451-1.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"11 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#\/schema\/person\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34"},"headline":"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala?","datePublished":"2020-04-27T11:28:32+00:00","dateModified":"2026-02-28T17:35:08+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/"},"wordCount":2250,"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/abraham1-688x451-1.jpg","keywords":["Bibl\u00edan","f\u00e1t\u00e6kt","hungursney\u00f0"],"articleSection":["Mann\u00fa\u00f0arm\u00e1l","Tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0","\u00ddmislegt"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/","name":"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala? - Eva Hauksd\u00f3ttir","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/abraham1-688x451-1.jpg","datePublished":"2020-04-27T11:28:32+00:00","dateModified":"2026-02-28T17:35:08+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#\/schema\/person\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/#primaryimage","url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/abraham1-688x451-1.jpg","contentUrl":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-content\/uploads\/sites\/36\/2020\/05\/abraham1-688x451-1.jpg","width":688,"height":451},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/2020\/04\/27\/hvad-merkir-hungur-a-bibliuskala\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"Hva\u00f0 merkir hungur \u00e1 Bibl\u00eduskala?"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","description":"Evu blogg","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/#\/schema\/person\/1d9742389918a297671033a2b53d3d34","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"is","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/3690cd9ff7436a8a5d80acdc8fcb1046fbb9e002d4b532c85080d1bcbede84ce?s=96&d=mm&r=g","caption":"Eva Hauksd\u00f3ttir"},"url":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/author\/evahauks\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/335","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/users\/7"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=335"}],"version-history":[{"count":16,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/335\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":7063,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/335\/revisions\/7063"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/media\/337"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=335"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=335"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/eva\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=335"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}