{"id":1055,"date":"2002-06-05T12:18:45","date_gmt":"2002-06-05T12:18:45","guid":{"rendered":"http:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/?p=1055"},"modified":"2017-08-27T12:20:11","modified_gmt":"2017-08-27T12:20:11","slug":"vist-ertu-pabbi-minn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/","title":{"rendered":"V\u00edst ertu pabbi minn!"},"content":{"rendered":"<div class=\"articlebody\">Hvernig flytur ma\u00f0ur \u00f3bo\u00f0inn inn \u00e1 pabba sinn, sem ma\u00f0ur \u00feekkir fremur sem kunningja en f\u00f6\u00f0ur? \u00c9g haf\u00f0i velt \u00feeirri spurningu fyrir m\u00e9r m\u00e1nu\u00f0um saman. Vandam\u00e1l nr. eitt var a\u00f0 flytja fr\u00e1 m\u00f6mmu, \u00fea\u00f0 \u00fat af fyrir sig var n\u00f3gu sl\u00e6mt. \u00c9g var b\u00fain a\u00f0 finna lausn \u00e1 \u00fev\u00ed. Sag\u00f0ist endilega vilja fara \u00ed sk\u00f3la fyrir sunnan. H\u00fan s\u00e6tti sig vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sk\u00fdringu, enda \u00fe\u00f3tt h\u00fan hlj\u00f3ti a\u00f0 hafa gert s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g var einfaldlega a\u00f0 fl\u00fdja heimilis\u00e1stand sem var h\u00e6gt og b\u00edtandi a\u00f0 valda m\u00e9r svefnleysi, taugaveiklun og l\u00edkamlegum streitusj\u00fakd\u00f3mum. Hva\u00f0 pabba var\u00f0a\u00f0i var m\u00e1li\u00f0 \u00f3leyst. Hva\u00f0 ef hann vildi n\u00fa mig ekki? \u00c9g haf\u00f0i ekki lagt neina r\u00e6kt vi\u00f0 samband okkar \u00e1rum saman. Haf\u00f0i sjaldan heims\u00f3tt hann og \u00fe\u00e1 haldi\u00f0 mig sem mest \u00fati e\u00f0a k\u00fart yfir b\u00f3kum og for\u00f0ast a\u00f0 gefa honum nokkurt f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 f\u00e1 inns\u00fdn \u00ed mitt pers\u00f3nulega l\u00edf. Sj\u00e1lfur var hann heldur enginn samr\u00e6\u00f0usnillingur svo \u00e9g komst au\u00f0veldlega upp me\u00f0 a\u00f0 \u00feegja. S\u00edmt\u00f6l okkar voru b\u00e6\u00f0i stutt og snubb\u00f3tt;<br \/>\n\u201chvernig gengur \u00ed sk\u00f3lanum?\u201d<br \/>\n\u201cbara vel\u201d<br \/>\n\u201cj\u00e6ja j\u00e1, og alltaf n\u00f3g a\u00f0 gera hj\u00e1 \u00fe\u00e9r?\u201d<br \/>\n\u201cj\u00e1,j\u00e1\u201d<br \/>\nog svo nokkur jamm og j\u00e6ja \u00fear til \u00e9g bar \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 systur m\u00ednar vildu komast a\u00f0. \u00c9g \u00f3tta\u00f0ist a\u00f0 honum \u00fe\u00e6tti \u00e9g lei\u00f0inleg og \u00fear sem m\u00f3\u00f0ir m\u00edn tala\u00f0i alltaf um hann \u00e1 fremur neikv\u00e6\u00f0an h\u00e1tt var \u00e9g hreint ekki viss um a\u00f0 m\u00e9r l\u00edka\u00f0i \u00ed rauninni vi\u00f0 hann. Hann hlaut a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var ekki einl\u00e6g \u00fer\u00e1 eftir meiri samskiptum vi\u00f0 hann sem rak mig til hans, \u00e9g \u00e6tla\u00f0i bara a\u00f0 notf\u00e6ra m\u00e9r tengslin vi\u00f0 hann. \u00dear fyrir utan var hann ekki einu sinni pabbi minn enda \u00fe\u00f3tt allir h\u00e9ldu a\u00f0 \u00e9g h\u00e9ldi \u00fea\u00f0. Hann \u00e1tti nefnilega ekki bl\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00ed m\u00e9r og eftir a\u00f0 \u00e9g komst a\u00f0 \u00fev\u00ed haf\u00f0i \u00e9g s\u00fdnt honum n\u00e1nast algert afskiptaleysi.<\/p>\n<p>Engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur var \u00feetta sta\u00f0an. Heima vildi \u00e9g ekki vera lengur og \u00e9g haf\u00f0i ekki \u00ed \u00f6nnur h\u00fas a\u00f0 venda. \u00dea\u00f0 haf\u00f0i a\u00f0 v\u00edsu hvarfla\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 standa \u00e1 eigin f\u00f3tum en \u00fea\u00f0 samr\u00e6mdist enganveginn sj\u00e1lfsmynd minni a\u00f0 h\u00e6tta \u00ed sk\u00f3la til a\u00f0 afgrei\u00f0a \u00ed sjoppu e\u00f0a t\u00edna bein \u00far \u00feorskfl\u00f6kum. Sk\u00f3li var umhverfi sem \u00e9g \u00feekkti og r\u00e9\u00f0i vi\u00f0 en tilhugsunin um a\u00f0 sl\u00e1 ranga upph\u00e6\u00f0 inn \u00ed b\u00fa\u00f0arkassa olli m\u00e1ttleysistilfinningu \u00ed hnj\u00e1num og m\u00e9r haf\u00f0i auk \u00feess alltaf veri\u00f0 sagt a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ru bara au\u00f0nuleysingjar sem ekki f\u00e6ru beint \u00ed framhaldssk\u00f3la. \u00deeirri firru tr\u00fa\u00f0i \u00e9g, enda \u00fe\u00f3tt \u00e9g v\u00e6ri annars haldin \u00fer\u00e6tugirni um flest sem bar \u00e1 g\u00f3ma. \u00cd fullvissu \u00feess a\u00f0 l\u00edfi m\u00ednu v\u00e6ri einfaldlega loki\u00f0 ef \u00e9g dr\u00e6gi \u00fea\u00f0 \u00ed nokkra m\u00e1nu\u00f0i a\u00f0 fara \u00ed framhaldssk\u00f3la, fl\u00fa\u00f0i \u00e9g \u00e1 n\u00e1\u00f0ir pabba m\u00edns, sem var eiginlega ekki pabbi minn enda \u00fe\u00f3tt hann hef\u00f0i alltaf greitt me\u00f0lag me\u00f0 m\u00e9r og gert \u00f3tal tilraunir til a\u00f0 n\u00e1lgast mig. Hann var pabbi systra minna \u00fev\u00ed \u00feeirra bl\u00f3\u00f0 var af hans bl\u00f3\u00f0i en mitt bl\u00f3\u00f0 var \u00far einhverjum kalli \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 sem \u00e9g haf\u00f0i aldrei s\u00e9\u00f0.<\/p>\n<p>Svo, hvernig flytur ma\u00f0ur \u00f3bo\u00f0inn inn \u00e1 mann sem er ekki einu sinni fjarskyldur \u00e6ttingi \u00fe\u00f3tt nafni\u00f0 hans hangi aftan vi\u00f0 manns eigi\u00f0? Og hvert fer ma\u00f0ur ef hann segir nei? \u00c9g leysti \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa honum einfaldlega ekki f\u00e6ri \u00e1 a\u00f0 segja nei. \u00c9g stillti m\u00e9r upp fyrir framan hann, einbeitt \u00e1 svip, krosslag\u00f0i handleggina \u00e1 brj\u00f3stinu og horf\u00f0i beint \u00ed augu hans \u00ed von um a\u00f0 \u00feau l\u00fdstu sannf\u00e6ringu og \u00e1kve\u00f0ni.<br \/>\n\u201c\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 flytja til \u00fe\u00edn\u201d hv\u00e6sti \u00e9g milli samanbitinna tannanna, tilb\u00fain a\u00f0 halda aftur af t\u00e1rafl\u00f3\u00f0inu ef hann fyndi s\u00e9r afs\u00f6kun til a\u00f0 segja nei og fann greinilega sj\u00e1lf a\u00f0 augu m\u00edn l\u00fdstu \u00f3\u00f6ryggi en ekki \u00e1kve\u00f0ni. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 honum \u00ed l\u00f3fa lagi\u00f0 a\u00f0 hafna m\u00e9r. Hann bj\u00f3 \u00ed l\u00edtilli einstaklings\u00edb\u00fa\u00f0 sem henta\u00f0i enganveginn fyrir f\u00f6\u00f0ur og unglingsst\u00falku, bara \u00fea\u00f0 var fullkomin sk\u00fdring, hef\u00f0i hann ekki treyst s\u00e9r til a\u00f0 taka vi\u00f0 m\u00e9r.<\/p>\n<p>En pabbi sag\u00f0i ekki nei. Hann sag\u00f0i \u201cvelkomin\u201d og \u00fer\u00fdsti m\u00e9r a\u00f0 s\u00e9r. Ekki fast og ekki lengi, bara r\u00e9tt til a\u00f0 l\u00e1ta einl\u00e6gni s\u00edna \u00ed lj\u00f3s. Hann spur\u00f0i ekki um \u00e1st\u00e6\u00f0ur n\u00e9 hversu lengi \u00e9g hygg\u00f0ist stoppa en f\u00f3r \u00feess \u00ed sta\u00f0 \u00ed byggingarv\u00f6ruverslun og keypti rennihur\u00f0 til a\u00f0 skipta svefnherberginu \u00ed tvennt.<\/p>\n<p>Fyrstu m\u00e1nu\u00f0ina \u00fe\u00f6g\u00f0um vi\u00f0 saman. Vi\u00f0 hlustu\u00f0um \u00e1 fr\u00e9ttirnar \u00ed h\u00e1deginu og fundum stundum umr\u00e6\u00f0uefni \u00fat fr\u00e1 \u00feeim en vi\u00f0 r\u00e6ddum aldrei neitt pers\u00f3nulegt. Pabbi vann vaktavinnu svo hann var oft a\u00f0 heiman \u00e1 kv\u00f6ldin og \u00fe\u00f6gnin var ekki eins \u00fer\u00fagandi \u00feegar enginn var til a\u00f0 tala vi\u00f0. \u00c9g var alltaf fegin \u00feegar hann var \u00e1 kv\u00f6ldvakt. \u00c9g eigna\u00f0ist flj\u00f3tlega k\u00e6rasta sem \u00e9g eyddi me\u00f0 \u00f6llum stundum sem pabbi var a\u00f0 heiman en \u00feegar pabbi var \u00ed fr\u00edi \u00e1tti \u00e9g a\u00f0 koma heim \u00ed kv\u00f6ldmat. \u00deetta var eina reglan sem hann setti m\u00e9r og \u00e9g var v\u00f6n a\u00f0 vir\u00f0a reglur.<\/p>\n<p>\u00deegar pabbi var heima \u00e1 kv\u00f6ldin f\u00f3rum vi\u00f0 \u00ed b\u00ed\u00f3, a\u00f0allega til a\u00f0 \u00feurfa ekki a\u00f0 tala saman, held \u00e9g. Heima hj\u00e1 m\u00f6mmu var \u00e9g v\u00f6n a\u00f0 vera me\u00f0 vinkonum m\u00ednum \u00e1 kv\u00f6ldin en \u00e9g fann greinilega a\u00f0 pabbi \u00e6tla\u00f0ist til \u00feess a\u00f0 \u00e9g eyddi \u00feeim kv\u00f6ldum sem hann var heima me\u00f0 honum og \u00e9g hl\u00fdddi \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00ed rauninni aldrei or\u00f0a\u00f0. Vi\u00f0 s\u00e1um hverja einustu mynd sem var s\u00fdnd \u00ed kvikmyndah\u00fasunum \u00feennan vetur og \u00feegar vi\u00f0 vorum b\u00fain a\u00f0 sj\u00e1 allar b\u00ed\u00f3myndir sem voru \u00ed bo\u00f0i, f\u00f3rum vi\u00f0 \u00ed leikh\u00fas. \u00deegar leiks\u00fdningar voru uppurnar f\u00f3r hann me\u00f0 mig \u00e1 karatem\u00f3t enda \u00fe\u00f3tt \u00e9g hef\u00f0i engan \u00e1huga \u00e1 karate. Aflei\u00f0ingin var\u00f0 s\u00fa a\u00f0 enda \u00fe\u00f3tt vi\u00f0 pabbi hef\u00f0um l\u00edti\u00f0 um a\u00f0 tala, vandist \u00e9g n\u00e6rveru hans og \u00feau kv\u00f6ld sem vi\u00f0 f\u00f3rum ekki \u00fat, sat \u00e9g \u00feegjandi me\u00f0 honum yfir sj\u00f3nvarpinu \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 fl\u00fdja \u00fe\u00f6gnina \u00ed f\u00e9lagsskap annarra unglinga. Sm\u00e1m saman h\u00e6tti \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera \u00f3\u00fe\u00e6gilegt. Vi\u00f0 hl\u00f3gum saman yfir sj\u00f3nvarpsefni og b\u00ed\u00f3myndum og einn daginn t\u00f3k \u00e9g eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 hl\u00f3gum stundum saman a\u00f0 einhverju sem engum \u00f6\u00f0rum fannst fyndi\u00f0. L\u00edklega var \u00fea\u00f0 fyrst \u00fe\u00e1 sem m\u00e9r f\u00f3r a\u00f0 \u00feykja v\u00e6nt um hann.<\/p>\n<p>Kannski var \u00fea\u00f0 bara af \u00fev\u00ed a\u00f0 pabbi ger\u00f0i r\u00e1\u00f0 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 f\u00e6rum saman \u00ed b\u00ed\u00f3, kannski \u00fe\u00f3tti m\u00e9r \u00feetta \u00fe\u00e6gileg lei\u00f0 til a\u00f0 vera samvistum vi\u00f0 hann. \u00c9g geri m\u00e9r ekki alveg grein fyrir \u00fev\u00ed en allavega f\u00f3r \u00e9g me\u00f0 honum \u00e1 kvikmyndir sem m\u00e9r hef\u00f0i aldrei dotti\u00f0 \u00ed hug a\u00f0 sj\u00e1 nema af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann stakk upp \u00e1 \u00fev\u00ed. Hann var hrifinn af slagsm\u00e1lamyndum og \u00e9g l\u00e9t mig hafa \u00fea\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 Eye of the Tiger og Bruce Lee myndir, \u00fe\u00f3tt \u00fe\u00e6r vektu ekki beinl\u00ednis \u00e1huga minn. Og alveg \u00e1n \u00feess a\u00f0 gera s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed leiddi fa\u00f0ir minn mig inn \u00ed t\u00f6rfraheim hrollvekjunnar.<\/p>\n<p>Hrollvekjur voru \u00ed t\u00edsku og pabbi haf\u00f0i ekki hugmynd um a\u00f0 m\u00e9r haf\u00f0i aldrei veri\u00f0 leyft a\u00f0 horfa \u00e1 efni \u00ed sj\u00f3nvarpi sem var \u201cbanna\u00f0 b\u00f6rnum\u201d hva\u00f0 \u00fe\u00e1 meir, svo \u00f6ll m\u00edn reynsla af hryllingi og spennu var bundin raunveruleikanum. \u00c1 n\u00e6turnar vakna\u00f0i \u00e9g \u00ed svitak\u00f3fi vi\u00f0 martra\u00f0arkennda drauma um risakolkrabba, var\u00falfa og \u00f6nnur l\u00edfsh\u00e6ttuleg skr\u00edmsli sem \u00e1ttu l\u00edti\u00f0 skylt vi\u00f0 afturg\u00f6ngurnar sem \u00e9g \u00f3lst upp me\u00f0. \u00c1 bernskuheimili m\u00ednu var allt morandi \u00ed draugum en \u00f3gnin heima vi\u00f0 var ekki bundin \u00fej\u00f3\u00f0sagnaarfinum sem bj\u00f3 \u00ed h\u00fasinu. \u00d3gnin heima var st\u00f6\u00f0ugt spennu\u00e1stand, tilfinning \u00feess a\u00f0 b\u00faa \u00e1 lifandi eldfjalli og von \u00e1 gosi \u00e1 hverri stundu. Draugar m\u00f3\u00f0ur minnar voru f\u00e9lagsskapur sem truflu\u00f0u okkur l\u00edti\u00f0. Mamma tr\u00fa\u00f0i sta\u00f0fastlega \u00e1 drauga en hennar draugar voru ekki h\u00e6ttulegir. A\u00f0eins andar hinna framli\u00f0nu sem \u00e1ttu vi\u00f0 hana erindi til sp\u00e1sagna e\u00f0a til a\u00f0 krefjast grei\u00f0a. \u00deessh\u00e1ttar draugar \u00fer\u00f6mmu\u00f0u kannski stigann um mi\u00f0n\u00e6tti\u00f0, \u00e1ttu til a\u00f0 skj\u00f3ta m\u00e9r v\u00e6gan skelk \u00ed bringu en ger\u00f0u engum mein og l\u00e9tu sig hverfa um lei\u00f0 og ma\u00f0ur sag\u00f0i \u201ckomi \u00feeir sem koma vilja, m\u00e9r og m\u00ednum a\u00f0 meinalausu\u201d. \u00c9g var miklu hr\u00e6ddari vi\u00f0 rotturnar \u00ed kjallaranum en \u00feessi draugagrey.<\/p>\n<p>Kvikmyndaskr\u00edmslin voru allt \u00f6\u00f0ruv\u00edsi. \u00deau voru ekki a\u00f0eins \u00f3greinilegur skuggi e\u00f0a \u00ferusk me\u00f0 sp\u00e1d\u00f3msg\u00e1fu, heldur lifandi verur sem bitu f\u00f3lk \u00e1 h\u00e1ls e\u00f0a slitu af \u00fev\u00ed \u00fatlimina einn af \u00f6\u00f0rum. Samt heillu\u00f0u \u00feessar lj\u00f3tu myndir mig jafnvel meira en Grimms\u00e6vint\u00fdrin ger\u00f0u um 8 \u00e1ra aldurinn og s\u00e6lustraumurinn sem f\u00f3r um mig \u00feegar \u00e9g vakna\u00f0i af martr\u00f6\u00f0inni var d\u00e1samleg upplifun, merki \u00feess a\u00f0 \u00e9g v\u00e6ri \u00fer\u00e1tt fyrir allt \u00f3hult, a\u00f0 hryllingurinn v\u00e6ri sk\u00e1ldskapur en ekki lifandi \u00f3gn um n\u00fdjan fj\u00f6lskylduharmleik n\u00e6sta dag og \u00fear n\u00e6sta, \u00f3gn um upplausn, \u00f6ryggisleysi og rei\u00f0ar raddir. \u00c9g f\u00f3r st\u00f6ku sinnum \u00ed b\u00ed\u00f3 me\u00f0 k\u00e6rastanum, \u00e1 s\u00f6mu myndirnar og \u00e9g var \u00feegar b\u00fain a\u00f0 sj\u00e1 me\u00f0 pabba. En hryllingsmyndir s\u00e1 \u00e9g eing\u00f6ngu me\u00f0 pabba m\u00ednum. M\u00e9r fannst \u00fea\u00f0 \u00e1 einhvern h\u00e1tt l\u00edkt \u00fev\u00ed a\u00f0 eiga sameiginlegt leyndarm\u00e1l.<\/p>\n<p>\u00c9g var sv\u00f6ng fyrstu vikurnar hj\u00e1 pabba. Fa\u00f0ir minn er \u00f3venju matgrannur en \u00e9g var a\u00f0 taka vaxtarkipp og brenndi sennilega \u00ferisvar sinnum meiru en hann og var auk \u00feess alin upp vi\u00f0 st\u00f6\u00f0ugt huggunar\u00e1t. \u00c9g var kurteis og feimin og \u00feegar pabbi spur\u00f0i hvort \u00e9g v\u00e6ri s\u00f6dd eftir eina j\u00f3g\u00fartd\u00f3s e\u00f0a tv\u00e6r fiskibollur, kinka\u00f0i \u00e9g kolli og \u00feakka\u00f0i fyrir mig. \u00deegar hann var farinn \u00ed vinnuna, \u00e1t \u00e9g allt sem t\u00f6nn \u00e1 festi \u00ed h\u00fasinu en reyndi \u00fe\u00f3 eftir megni a\u00f0 taka l\u00edti\u00f0 af hverri tegund og fela \u00f6ll ummerki. \u00dea\u00f0 mist\u00f3kst hrapalega. Brau\u00f0i\u00f0 hvarf \u00far frystikistunni, Cheeriospakkinn t\u00e6mdist \u00e1 \u00f6rf\u00e1um d\u00f6gum og allt \u00ed einu var aldrei til kex e\u00f0a \u00e1vextir \u00e1 heimilinu. Pabbi nefndi \u00feetta stj\u00f3rnlausa \u00e1t aldrei einu or\u00f0i en \u00feegar hann \u00e1tta\u00f0i sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1tvagl var flutt inn \u00e1 hann, sau\u00f0 hann tv\u00f6faldan skammt af fiskibollum og keypti n\u00f3gu miki\u00f0 af skyri og \u00e1leggi til a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti \u00e9ti\u00f0 n\u00e6gju m\u00edna \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feess s\u00e6just merki \u00ed \u00edssk\u00e1pnum.<\/p>\n<p>\u00c9g var ekki v\u00f6n \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 bi\u00f0ja um neitt og hj\u00e1 pabba upplif\u00f0i \u00e9g blankheit \u00ed fyrsta sinn. \u00dea\u00f0 var ekki af \u00fev\u00ed a\u00f0 pabbi v\u00e6ri n\u00edskur heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann skorti h\u00e6fni til a\u00f0 lesa hugsanir. \u00c9g var alin upp vi\u00f0 \u00fea\u00f0 vi\u00f0horf a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00f3kurteisi a\u00f0 bi\u00f0ja um eitthva\u00f0 a\u00f0 fyrra brag\u00f0i enda \u00feurftum vi\u00f0 \u00feess ekki. \u00de\u00f3tt samskiptamynstri\u00f0 \u00e1 heimili m\u00f3\u00f0ur minnar v\u00e6ri \u00f3heppilegt, g\u00e6tti h\u00fan \u00feess alltaf a\u00f0 okkur krakkana skorti ekkert efnislegt. Heima hj\u00e1 m\u00f6mmu \u00f3x matur \u00ed \u00edssk\u00e1pnum, fatna\u00f0ur \u00ed sk\u00e1punum og peningar \u00ed v\u00f6sunum eftir \u00fe\u00f6rfum. \u00c9g g\u00e6tti systkina minna og f\u00e9kk vasapeninga, fatna\u00f0 og \u00fdmsar gjafir \u00ed sta\u00f0 launa. Ekkert \u00f3h\u00f3flegt samt og vi\u00f0 m\u00e1ttum aldrei heimta e\u00f0a nau\u00f0a. Ef mig langa\u00f0i \u00ed eitthva\u00f0, ba\u00f0 \u00e9g ekki um \u00fea\u00f0 heldur benti \u00e1 \u00fea\u00f0 og spur\u00f0i hvort henni \u00fe\u00e6tti \u00fea\u00f0 ekki fallegt. \u00deegar \u00e9g reyndi a\u00f0 koma pabba \u00ed skilning um \u00fearfir m\u00ednar \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt sag\u00f0i hann bara sko\u00f0un s\u00edna \u00e1 hlutnum. Sennilega hefur \u00fea\u00f0 aldrei hvarfla\u00f0 a\u00f0 honum a\u00f0 setningin \u201cfinnast \u00fe\u00e9r \u00feessir sk\u00f3r fallegir?\u201d merkti \u00ed raun: \u201csk\u00f3rnir m\u00ednir eru of \u00fer\u00f6ngir og \u00e9g er or\u00f0in peningalaus.\u201d \u00c9g man a\u00f0 hann spur\u00f0i hvort mig vanta\u00f0i peninga nokkrum vikum eftir a\u00f0 \u00e9g flutti til hans en \u00e9g \u00e1tti enn\u00fe\u00e1 d\u00e1l\u00edti\u00f0 eftir af sumarlaununum m\u00ednum og sag\u00f0i \u00fev\u00ed nei \u00e1n \u00feess a\u00f0 taka fram a\u00f0 mig vanta\u00f0i samt eitt og anna\u00f0 sem kref\u00f0ist fj\u00e1r\u00fatl\u00e1ta. Sk\u00f3leysi\u00f0 leysti \u00e9g me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma m\u00e9r upp hrifningu \u00e1 k\u00ednask\u00f3m. \u00deeir kostu\u00f0u a\u00f0eins 20% af venjulegu sk\u00f3ver\u00f0i og \u00e1 \u00feeim slarka\u00f0i \u00e9g langt fram \u00e1 veturinn \u00ed h\u00e1lku og krapa, \u00fear til fa\u00f0ir minn f\u00f3r sj\u00e1lfur me\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fat \u00ed ruslatunnu og keypti almennilega sk\u00f3 \u00e1 mig.<\/p>\n<p>\u00c9g haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed launa\u00f0ri vinnu um sumari\u00f0 \u00ed fyrsta sinn og fannst \u00e9g r\u00edk en \u00e9g var heldur ekki v\u00f6n \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 sj\u00e1 m\u00e9r fyrir nau\u00f0synjum sj\u00e1lf. \u00c9g veit ekki enn\u00fe\u00e1 hvort pabbi hefur \u00e1tta\u00f0 sig \u00e1 \u00fev\u00ed hva\u00f0 m\u00e9r \u00fe\u00f3tti erfitt a\u00f0 bi\u00f0ja um peninga e\u00f0a hvort \u00fatgangurinn \u00e1 m\u00e9r hefur bara fari\u00f0 \u00ed taugarnar \u00e1 honum en \u00feegar \u00e9g \u00f3x skyndilega upp \u00far f\u00f6tunum m\u00ednum a\u00f0eins tveimur m\u00e1nu\u00f0um eftir a\u00f0 \u00e9g eyddi n\u00e1nast \u00f6llum sumarpeningunum m\u00ednum \u00ed sk\u00f3lab\u00e6kur og fatna\u00f0, f\u00f3r hann \u00e1n nokkurra m\u00e1lalenginga me\u00f0 mig \u00ed b\u00e6inn og l\u00e9t mig velja m\u00e9r f\u00f6t. \u00c9g \u00feurfti ekki a\u00f0 bi\u00f0ja um neitt og hann nefndi engar fj\u00e1rh\u00e6\u00f0ir en \u00e9g h\u00e9lt a\u00f0 hann hlyti a\u00f0 vera f\u00e1t\u00e6kur og valdi \u00fea\u00f0 \u00f3d\u00fdrasta sem \u00e9g fann. \u00dev\u00ed t\u00f3k hann ekki eftir og \u00fev\u00ed mi\u00f0ur fannst honum \u00e9g hafa \u201cg\u00f3\u00f0an smekk\u201d. Hann kveikti heldur ekki \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 16 \u00e1ra unglingur kemst ekki af \u00e1n vasapeninga, fyrr en \u00e9g var or\u00f0in svo bl\u00f6nk a\u00f0 \u00e9g f\u00f3r me\u00f0 honum \u00ed Fjar\u00f0arkaup og setti d\u00f6mubindapakka \u00ed innkaupak\u00f6rfuna svo l\u00edti\u00f0 bar \u00e1, \u00ed von um a\u00f0 hann t\u00e6ki ekki eftir \u00fev\u00ed. Hann nefndi \u00fea\u00f0 ekki og l\u00e9t mig um a\u00f0 ganga fr\u00e1 v\u00f6runum \u00feegar vi\u00f0 komum heim en sama kv\u00f6ld r\u00e9tti hann m\u00e9r peningase\u00f0il me\u00f0 \u00feeim or\u00f0um a\u00f0 f\u00f3lk \u00e1 m\u00ednum aldri \u00e6tti a\u00f0 geta keypt s\u00e9r str\u00e6t\u00f3kort e\u00f0a brj\u00f3ssykurspoka \u00e1n \u00feess a\u00f0 gera grein fyrir \u00fev\u00ed heima. Eftir \u00fea\u00f0 f\u00e9kk \u00e9g vasapeninga m\u00e1na\u00f0arlega \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feurfa nokkurnt\u00edma a\u00f0 minna \u00e1 \u00fea\u00f0. Fj\u00e1rh\u00e6\u00f0in var a\u00f0 v\u00edsu l\u00e6gri en \u00e9g var v\u00f6n a\u00f0 f\u00e1 hj\u00e1 m\u00f3\u00f0ur minni en \u00e1 hinn b\u00f3ginn spur\u00f0i pabbi aldrei \u00ed hva\u00f0 peningarnir f\u00e6ru og \u00feegar \u00e9g \u00feurfti \u00e1 aukafj\u00e1rveitingu a\u00f0 halda til a\u00f0 koma \u00ed veg fyrir \u00f3t\u00edmab\u00e6rar barneignir, f\u00e9kk \u00e9g hana or\u00f0alaust, \u00e1n kr\u00f6fu um sk\u00fdringar. \u00dea\u00f0 var \u00ed eina skipti\u00f0 sem \u00e9g ba\u00f0 pabba um peninga. \u00c9g \u00feor\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 v\u00edsu ekki en \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0ur \u00feor\u00f0i \u00e9g a\u00f0 ver\u00f0a \u00f3l\u00e9tt og stundi \u00fev\u00ed upp erindinu \u00ed kr\u00f3num og aurum, rei\u00f0ub\u00fain me\u00f0 sk\u00fdringu ef hann b\u00e6\u00f0i um hana. En pabbi ba\u00f0 ekki um sk\u00fdringu heldur r\u00e9tti m\u00e9r or\u00f0alaust \u00fea\u00f0 sem \u00e9g ba\u00f0 um.<\/p>\n<p>\u00deannig lif\u00f0um vi\u00f0 heilan vetur, \u00ed kurteislegri \u00fe\u00f6gn. Pabbi reyndi a\u00f0 geta s\u00e9r til um \u00fearfir m\u00ednar \u00e1n \u00feess a\u00f0 spyrja \u00f3\u00fe\u00e6gilegra spurninga. \u00c9g reyndi a\u00f0 vera sem minnst fyrir honum og fela \u00fe\u00e6r \u00fearfir sem \u00e9g m\u00f6gulega gat. Samskipti okkar voru vinsamleg en ekki al\u00fa\u00f0leg, vi\u00f0 umgengumst hvort anna\u00f0 af vir\u00f0ingu en ekki \u00e1st. Vi\u00f0 lif\u00f0um \u00ed l\u00edkamlegri n\u00e1l\u00e6g\u00f0 vi\u00f0 matbor\u00f0i\u00f0 og \u00ed b\u00ed\u00f3salnum en \u00e1ttum l\u00edtil pers\u00f3nuleg samskipti. Svo kom a\u00f0 uppgj\u00f6ri. \u00c9g veit ekki almennilega hva\u00f0 var\u00f0 til \u00feess. Pabbi var a\u00f0 f\u00e6ra \u00fdsufl\u00f6k upp \u00far pottinum og \u00e9g var a\u00f0 leggja \u00e1 bor\u00f0i\u00f0. Allt \u00ed einu fann \u00e9g hj\u00e1 m\u00e9r \u00f3m\u00f3tst\u00e6\u00f0ilega \u00fe\u00f6rf fyrir a\u00f0 f\u00e1 nokku\u00f0 \u00e1 hreint. Vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 eldh\u00fassbor\u00f0inu var l\u00edtill sk\u00e1pur me\u00f0 mynd af \u00f6mmu minni fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan var kornung. \u00c9g t\u00f3k myndina og sko\u00f0a\u00f0i hana gaumg\u00e6filega \u00e1 me\u00f0an pabbi lag\u00f0i fiskfati\u00f0 og kart\u00f6flurnar \u00e1 bor\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>\u201c\u00c9g er l\u00edk henni\u201d sag\u00f0i \u00e9g svo. Pabbi leit \u00e1 myndina og svo \u00e1 mig og hristi h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 forvi\u00f0a.<br \/>\n\u201cNei, \u00fe\u00fa ert hreint ekkert l\u00edk henni\u201d sag\u00f0i hann.<br \/>\n\u201cV\u00edst er \u00e9g l\u00edk henni\u201d \u00fer\u00e6tti \u00e9g \u201c\u00c9g held a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt pabbi minn!\u201d b\u00e6tti \u00e9g vi\u00f0.<br \/>\nHann \u00feag\u00f0i d\u00e1litla stund og horf\u00f0i \u00e1 mig.<br \/>\n\u201cAu\u00f0vita\u00f0 er \u00e9g pabbi \u00feinn\u201d sag\u00f0i hann svo.<br \/>\n\u201c\u00c9g held a\u00f0 \u00fe\u00fa eigir bl\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00ed m\u00e9r\u201d orga\u00f0i \u00e9g og fann a\u00f0 t\u00e1rin voru farin a\u00f0 renna ni\u00f0ur andliti\u00f0 \u00e1 m\u00e9r.<\/p>\n<p>Pabbi gekk til m\u00edn og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 taka mig \u00ed fangi\u00f0 en \u00e9g bar\u00f0i hann hva\u00f0 eftir anna\u00f0 me\u00f0 litlu hnefunum m\u00ednum \u00fear til hann t\u00f3k um hendur m\u00ednar og st\u00f6\u00f0va\u00f0i mig. \u00c9g gr\u00e9t, en ekki me\u00f0 vi\u00f0kv\u00e6mnislegum viprum um munnvikin og blikandi t\u00e1ri \u00e1 hvarmi, heldur me\u00f0 h\u00e1um stj\u00f3rnlausum orgum. Hann t\u00f3k utan um mig og h\u00e9lt m\u00e9r \u00fe\u00e9tt a\u00f0 s\u00e9r \u00e1 me\u00f0an skyrtan hans gegnblotna\u00f0i af t\u00e1rum og hori.<br \/>\n\u201cV\u00edst ertu pabbi minn! H\u00fan hefur bara misreikna\u00f0 sig e\u00f0a \u00e9g hef f\u00e6\u00f0st a\u00f0eins fyrir t\u00edmann.\u201d orga\u00f0i \u00e9g hva\u00f0 eftir anna\u00f0, \u00fear til t\u00e1rin h\u00e6ttu a\u00f0 streyma og samankrepptir hnefarnir sl\u00f6knu\u00f0u.<\/p>\n<p>Pabbi sleppti m\u00e9r ekki.<br \/>\n\u201cNei\u201d sag\u00f0i hann svo \u201c\u00e9g \u00e1 ekki bl\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00fa ert ekkert l\u00edk m\u00e9r e\u00f0a m\u00ednu f\u00f3lki. \u00de\u00fa f\u00e6ddist ekki degi fyrir t\u00edmann og \u00fea\u00f0 var einsk\u00e6r heppni a\u00f0 \u00e9g skyldi f\u00e1 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 ver\u00f0a pabbi \u00feinn.\u201d<br \/>\n\u00c9g var aftur farin a\u00f0 grenja.<br \/>\n\u201cV\u00edst ertu pabbi minn!\u201d<br \/>\n\u201cJ\u00e1, au\u00f0vita\u00f0!\u201d<br \/>\n\u201c\u00de\u00fa \u00e1tt v\u00edst bl\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00ed m\u00e9r.\u201d<br \/>\n\u201cNei elskan m\u00edn\u201d<br \/>\n\u201cV\u00cdST!\u201d<br \/>\n\u201cNei. Enda skiptir \u00fea\u00f0 engu m\u00e1li\u201d<br \/>\n\u201cV\u00edst skiptir \u00fea\u00f0 m\u00e1li!\u201d<br \/>\n\u201cNei.\u201d<\/p>\n<p>\u00deessa rullu endurt\u00f3kum vi\u00f0 aftur og aftur me\u00f0 \u00fdmsum tilbrig\u00f0um \u00e1 me\u00f0an \u00fdsan k\u00f3lna\u00f0i \u00e1 bor\u00f0inu. Og \u00feegar \u00e9g loksins sefa\u00f0ist sag\u00f0i \u00e9g \u00fea\u00f0 einasta eina sem m\u00e9r datt \u00ed hug:<br \/>\n\u201cPabbi. Eigum vi\u00f0 a\u00f0 ekki g\u00e1 hvort er eitthva\u00f0 n\u00fdtt \u00ed b\u00ed\u00f3?\u201d<\/p>\n<p>Daginn eftir sko\u00f0u\u00f0um vi\u00f0 fasteignaaugl\u00fdsingar og leitu\u00f0um a\u00f0 st\u00e6rri \u00edb\u00fa\u00f0.<\/p><\/div>\n<div class=\"replybar\"><\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvernig flytur ma\u00f0ur \u00f3bo\u00f0inn inn \u00e1 pabba sinn, sem ma\u00f0ur \u00feekkir fremur sem kunningja en f\u00f6\u00f0ur? \u00c9g haf\u00f0i velt \u00feeirri spurningu fyrir m\u00e9r m\u00e1nu\u00f0um saman. Vandam\u00e1l nr. eitt var a\u00f0 flytja fr\u00e1 m\u00f6mmu, \u00fea\u00f0 \u00fat af fyrir sig var n\u00f3gu &hellip; <a href=\"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/\">Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa <span class=\"meta-nav\">&rarr;<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1,14],"tags":[],"class_list":["post-1055","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-dindilhosan","category-minningabokin"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.7 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>V\u00edst ertu pabbi minn! - Dindilhosan<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"is_IS\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"V\u00edst ertu pabbi minn! - Dindilhosan\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Hvernig flytur ma\u00f0ur \u00f3bo\u00f0inn inn \u00e1 pabba sinn, sem ma\u00f0ur \u00feekkir fremur sem kunningja en f\u00f6\u00f0ur? \u00c9g haf\u00f0i velt \u00feeirri spurningu fyrir m\u00e9r m\u00e1nu\u00f0um saman. Vandam\u00e1l nr. eitt var a\u00f0 flytja fr\u00e1 m\u00f6mmu, \u00fea\u00f0 \u00fat af fyrir sig var n\u00f3gu &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"Dindilhosan\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2002-06-05T12:18:45+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2017-08-27T12:20:11+00:00\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Eva Hauksd\u00f3ttir\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"16 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/vist-ertu-pabbi-minn\\\/#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/vist-ertu-pabbi-minn\\\/\"},\"author\":{\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"headline\":\"V\u00edst ertu pabbi minn!\",\"datePublished\":\"2002-06-05T12:18:45+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-27T12:20:11+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/vist-ertu-pabbi-minn\\\/\"},\"wordCount\":3199,\"articleSection\":[\"Dindilhosan\",\"Minningab\u00f3kin\"],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/vist-ertu-pabbi-minn\\\/\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/vist-ertu-pabbi-minn\\\/\",\"name\":\"V\u00edst ertu pabbi minn! - Dindilhosan\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/#website\"},\"datePublished\":\"2002-06-05T12:18:45+00:00\",\"dateModified\":\"2017-08-27T12:20:11+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/vist-ertu-pabbi-minn\\\/#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"is\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/vist-ertu-pabbi-minn\\\/\"]}]},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/vist-ertu-pabbi-minn\\\/#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"V\u00edst ertu pabbi minn!\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/\",\"name\":\"Dindilhosan\",\"description\":\"- L\u00e9ttmeti\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"is\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c\",\"name\":\"Eva Hauksd\u00f3ttir\",\"sameAs\":[\"http:\\\/\\\/www.norn.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/www.norn.is\\\/dindilhosan\\\/author\\\/eva\\\/\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"V\u00edst ertu pabbi minn! - Dindilhosan","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/","og_locale":"is_IS","og_type":"article","og_title":"V\u00edst ertu pabbi minn! - Dindilhosan","og_description":"Hvernig flytur ma\u00f0ur \u00f3bo\u00f0inn inn \u00e1 pabba sinn, sem ma\u00f0ur \u00feekkir fremur sem kunningja en f\u00f6\u00f0ur? \u00c9g haf\u00f0i velt \u00feeirri spurningu fyrir m\u00e9r m\u00e1nu\u00f0um saman. Vandam\u00e1l nr. eitt var a\u00f0 flytja fr\u00e1 m\u00f6mmu, \u00fea\u00f0 \u00fat af fyrir sig var n\u00f3gu &hellip; Halda \u00e1fram a\u00f0 lesa &rarr;","og_url":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/","og_site_name":"Dindilhosan","article_published_time":"2002-06-05T12:18:45+00:00","article_modified_time":"2017-08-27T12:20:11+00:00","author":"Eva Hauksd\u00f3ttir","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":false,"Est. reading time":"16 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/"},"author":{"name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"headline":"V\u00edst ertu pabbi minn!","datePublished":"2002-06-05T12:18:45+00:00","dateModified":"2017-08-27T12:20:11+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/"},"wordCount":3199,"articleSection":["Dindilhosan","Minningab\u00f3kin"],"inLanguage":"is"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/","url":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/","name":"V\u00edst ertu pabbi minn! - Dindilhosan","isPartOf":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/#website"},"datePublished":"2002-06-05T12:18:45+00:00","dateModified":"2017-08-27T12:20:11+00:00","author":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/#breadcrumb"},"inLanguage":"is","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/"]}]},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/vist-ertu-pabbi-minn\/#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"V\u00edst ertu pabbi minn!"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/#website","url":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/","name":"Dindilhosan","description":"- L\u00e9ttmeti","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"is"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/#\/schema\/person\/2eb0fcae9e1ecc61987f7ed9c878531c","name":"Eva Hauksd\u00f3ttir","sameAs":["http:\/\/www.norn.is"],"url":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/author\/eva\/"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1055","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1055"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1055\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1056,"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1055\/revisions\/1056"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1055"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1055"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.norn.is\/dindilhosan\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1055"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}