Jónas Kristjánsson spyr hvort Sigmundur Davíð sé bófi eða bjáni. Samkvæmt hugmynd Carlo M. Cipolla um bjánaskapinn fer þetta tvennt gjarnan saman. Ritgerð Cipolla heitir í enskri þýðingu „The Basic Law of Human Stupidity„. Með orðinu „stupidity“ á hann ekki við heimsku í merkingunni lág greindarvísitala heldur það sem ég kalla bjánaskap; tilhneigingu til að taka ákvarðanir sem eru bæði órökréttar og hafa fyrirsjáanlega í för með sér meiri skaða en ávinning.
Manngerðir Cipolla
Cipolla telur upp fjórar megin manngerðir:
Aftur að spurningu Jónasar
Ef við reynum að svara spurningu Jónasar um Sigmund Davíð út frá hugmyndum Cipolla, kemur þrennt til greina, snillingurinn, bófinn eða bjáninn. Sigmundur Davíð og hans flokkur kom vel út úr kosningum og það er mjög ótrúlegt að samfélagið muni hagnast á þingsetu hans án þess að það komi honum sjálfum til góða. Það þarf því eitthvað mjög óvænt að koma fram til þess að hann falli í flokk þeirra aumkunarverðu.
Ef Framsóknarflokknum tekst að standa við mikilvægustu kosningaloforð sín er Sigmundur Davíð snillingur samkvæmt greiningu Cipolla. Ef stóru kosningaloforðin verða svikin og afleiðingarnar verða þær að Framsóknarflokkurinn missi stóran hluta fylgis síns og Sigmundur glati vinsældum sínum, þá er hann (skv Cipolla) bjáni. Ef honum tekst bæði að halda vinsældum og svíkja kosningaloforð út á þá hugmynd að hann hafi ekki vitað hvað var að gera þegar hann kynnti loforðalistann er hann bófi. M.a.s. mjög snjall bófi.
Komi á daginn að Sigmundur Davíð sé ekki hreinræktaður snillingur er hinsvegar ljóst að samkvæmt greiningu Cipolla eru kjósendur Framsóknarflokksins bjánar. Margir þeirra aumkunarverðir bjánar. Því ef Sigmundur Davíð er ekki snillingur þá mun samfélagið allt bera skaða af ríkisstjórn Silfurskeiðabandalagsins.
Við skulum vona að Sigmundur Davíð sé snillingur. Þá gætum við með nokkurri sanngirni dregið í efa hið fyrsta lögmál Cipolla um bjánaskapinn; fjöldi bjána í umferð verður aldrei ofmetinn.