X

Sæt á sundfötum

 

Loksins lætur sumarið sjá sig og Íslendingar flykkjast í sund. Eflaust þurfa margir að endurnýja sundfatalagerinn og hér eru nokkrar hugmyndir fyrir þá sem vilja eitthvað nýtt og hressandi.

Ekki er langt síðan Jónína Benediksdóttir komst að því að til eru sundföt fyrir konur sem vilja ekki synda nánast naktar eða þurfa af trúarlegum ástæðum að hylja allan líkama sinn.

Það er þó langt frá því að allir séu sammála um að sundföt eigi að hylja holdsins fegurð og sumum finnst sundfatnaður betri eftir því sem meira af líkamnum er sýnilegt. Hér er skemmtilegur innyflasundbolur fyrir þær sem vilja sýna ALLT.

 

Nema náttúrulega að maður telji að áhorfendum finnist leggöng og eggjastokkar áhugaverðari en þarmar.
Með vagínu-naríunum væri svo viðeigandi að nota free the nipple toppinn.

 


Og þeim sem finnst ekki nógu langt gengið með því að sýna innri líffæri stendur til boða
kynþokkafullur beinagrindarsundbolur.

 


 

Ef þú fílar beinagrindur ætti þetta bikini að hindra baðstrandardóna
í því að gerast of nærgöngulir.

 

Nema dóninn sé líka með beinablæti en þá gæti þessi lausn hentað betur.

 

Ef gullfiskarnir þínir eru haldnir aðskilnaðarkvíða geturðu slegið tvær flugur í einu höggi,  tekið þá með þér í sund og um leið spókað þig á þessum skemmtilega fiskabúrsbikinitopp.

 

Þegar sundfatnaður er annars vegar eiga konur alltaf fleiri valkosti en karlar (æ þú veist – út af feðraveldinu og allt það) en úrvalið af karlmannlegum baðfatnaði hefur þó skánað á síðustu árum. Man-kini er okkur vitanlega enn ekki hægt að fá í íslensku fánalitunum en þangað til verður sá bandaríski að duga.

 

 

Sætir bossasundbolir fyrir karlmenn eru skemmtileg andhverfa við lendaskýlur frumstæðra þjóðflokka og sýna svo ekki verður um villst hversu háþróuð siðmenning okkar er orðin.

 

 


Hálfbrókin kemur sterk inn fyrir þá sem vilja sýna meira. Nota má bjarta liti og ekkert til viðbótar til að draga athyglina að þeim líkamshlutum sem maður er ánægðastur með. Þessar líflegu sundskýlur má skoða betur hér.

 


Og ef bjartir litir duga ekki til að vekja athygli á djásninu er
þessi gulltillasundskýla alveg tilvalin.

 

Eins og sjá má er sundfatnaður oftar en ekki efnisrýr, svona ef við undanskiljum gallann semhneykslaði Jónínu Ben á dögunum. Flest sundföt sem ætluð eru múslímakonum hylja allt nema andlitið, fætur fyrir neðan ökkla og hendur frá úlnliðum. Það er þó allt eins líklegt að kona eða karl vilji sýna sem mest af líkanum en hylja andlitið. Hér er komin lausn fyrir þá sem vilja ekki þekkjast í sundi, hentar t.d. vel fyrir sundlaugadóna. Svo er líka hægt að fá þessa fínu sundvettlinga ef maður vill ekki skilja eftir sig fingraför. Fleiri gerðir afandlitsskýlum má sjá hér.

dindilhosan: