- Beittu ritskoðun. Ekki með því að sía burt bull og persónuárásir heldur líka gild rök. Samþykku aðeins þau komment á bloggið þitt sem eru þér að skapi. Eyddu ummælum sem þú getur ekki svarað á FB veggnum þínum. Þá lítur veggurinn út eins og enginn geti svarað þér og heimskingjar munu trúa því.
- Kallaðu alla sem eru þér ósammála „tröll“ og notaðu frasann „ekki fóðra tröllin“ til þess að skjóta þér undan svörum.
- Beittu rökvillum og þegar þér er bent á rökvilluna segðu þá „ekki fóðra tröllin.“
- Kallaðu góð og gild rök strámann eða útúrsnúning. Það hljómar eins og þú vitir hvað rökvilla er og ef þú ert beðinn að útskýra í hverju strámaðurinn eða útúrsnúningurinn er fólginn, neitaðu þá að fóðra tröllin.
- Ásakaðu þá sem gagnrýna málflutning þinn um persónuárásir. Ef þú ert beðinn um að benda á það í hverju nákvæmlega persónuárásin felst, neitaðu þá að fóðra tröllin.
- Ef þú ert feministi nægir að kalla allt sem þú ert ósammála hrútskýringar. Fáir munu nenna standa í því að reyna að rökræða við þig svo þú getur lokað allri umræðu með þessum snilldartrixum.
- Ef þú lendir í þeirri aðstöðu að neyðast til að svara fyrir bullið í þér, ekki þá viðurkenna að þú hafir gert mistök. Segðu frekar að þeir sem gagnrýna þig hafi misskilið þig.
Nokkur trix sem asnar beita í umræðum