Í þessu tilviki er það alls ekki raunin. Umrædd færsla er órökstuddur sleggjudómur yfir klámframleiðendum, Hótel Sögu og Icelandair. Vel má vera að þetta séu allt saman hin mestu skítafyrirtæki og ég get vel skilið að Sóleyju Tómasdóttur finnist þetta fólk ógeðfellt. Hún er líka í fullum rétti með að flíka tilfinningum sínum í garð þessa iðnaðar og þess tiltækis að halda klámþing á Íslandi, í sinni eigin vefbók. Ég skil hinsvegar ekki hvernig fréttamönnum Moggans dettur í hug að það sé viðeigandi að vísa í rakalausan tilfinningavaðal eins og hann væri fréttaskýring.
View Comments (1)
------------------------
var að renna yfir þetta og er líka steinhissa...skil ekki af hverju settur er tengill á þessa síðu með fréttinni. þetta er bara svona "venjulegt bloggtuð"
Posted by: baun | 16.02.2007 | 11:54:54