Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarráðherra, næstæðsti maður innanríkismála á Íslandi hefur fjallað nokkuð um skoðanir sínar á staðgöngumæðrun. Hún er mótfallin staðgöngumæðrun enda þótt allar marktækar rannsóknir á Vesturlöndum sýni að allt sem andstæðingar staðgöngumæðrunar halda fram um nauðung og hörmungar tengdar henni er goðsögn ein.
Halla veit alveg af þessum rannsóknum og ég hef undrast afstöðu hennar og satt að segja verið dálítið hneyksluð á því að manneskja í valdastöðu telji sig geta sniðgengið allar rannsóknir undanfarinna áratuga. Nú hefur Halla þó gert nánari grein fyrir hugmyndafræðinni að baki viðhorfi sínu og nú loksins er ég búin að sjá ljósið. Þetta snýst semsagt ekki um kvenfrelsi, heldur um menningarlega afstöðu til legsins.
Þessi pistill Höllu vakti mig til meðvitundar um meðvitundarleysi mitt, ef svo má að orði komast. Meðvitundarleysi mitt um minn eigin líkama. Og ekki bara mitt, heldur samfélagsins alls. Í raun ríkir víðtækt menningarlegt meðvitundarleysi um innri líffæri.
Tökum t.d. hið mikilvæga líffæri bris. Ég verð að játa á mig alvarlega vanþekkingu á starfsemi brissins. Ég er ekki einu sinni viss um staðsetningu þess í mínum eigin líkama. Ef ég fengi verki í brisið, myndi ég sennilega segja lækninum að ég væri með verki í kvið eða baki. Það væri ekki svo alvarlegt mál ef þetta meðvitundarleysi einskorðaðist við mig, en ég skal hengja mig upp á það að meirihluti þjóðarinnar getur ekki útskýrt muninn á brisi og milta eða staðsett þessi líffæri í líkamanum.
Nauðsynlegt er að taka upp sjálfbæra framtíðarsýn og stefna að markvissri mótun menningarlegrar meðvitundar um leg og önnur innri líffæri. Í því samhengi ber að leggja áherslu á kynjaða stefnumörkun, því eins og Germaine Greer hefur bent á; „women have very little idea of how much men hate them“. Meðal annars þessvegna er nauðsynlegt að lögbinda umráðarétt feminista yfir móðurlífum kvenna og taka upp óklámvæddar skýringarmyndir af brisi.
Að lokum vil ég þakka Höllu Gunnarsdóttur skrif hennar um hagsmunamál kvenna og nýja sýn mína á greindarlega framsetningu. Án hennar hefði þessi pistill aldrei orðið til.