Halldór Logi Sigurðarson og Helgi Laxdal skrifa
Fóstbræður eru stórkostlegasta skáldvirki íslenskrar menningar. Þeim tókst að fanga alla okkar menningarkima og sérvisku í fimm litlum þáttaröðum. Þau voru ómetanlegur spegill fyrir þjóðarsálina þá og eru enn í dag.
Hvernig myndu Fóstbræður túlka pólitík í dag?
Framsóknarflokkurinn – Gyða Sól
Ef okkur langaði að komast að því væri skemmtilegast bara að halla sér aftur og hlusta á gullmolana sem vella upp á meðan hún sýslar við hitt og þetta. Og guð veit að Gyða Sól er of dugleg til að hætta að sýsla við hitt og þetta. Hún myndi jafnvel renna sér undir bíl komin níu mánuði á leið.
Sjálfstæðisflokkurinn – Ertu að gera grín að mér, helvítið þitt?
Þó hann sé óaðfinnanlega klæddur og vel að máli farinn kann þessi Herramaður ekki mannleg samskipti. Sjálfsmyndin er eitthvað á mis, og Herramaðurinn kippir sér ekki upp við að valta yfir fólk því Herramaðurinn fær það sem Herramaðurinn vill- en auðvitað er hann samt alltaf fórnarlambið.
Miðflokkurinn – Persónulegi trúbadorinn Helgi
Píratapartíið – Spliff, donk og gengja
Vinstri Grænir – Dúettinn Plató
Samfylkingin – Bílastæðaverðirnir
Alltof mikið af persónum, nöfnum, atburðum og fléttum sem á endanum fjalla ekki um neitt.
Flokkur Fólksins – Ragnar Reykás
Viðreisn og Björt Framtíð
Íslenska þjóðin – Indriði
ÉG ER BÚINN AÐ MAAARGSKRIFA ÞENNAN PISTIL OG ENGINN HLUSTAR Á MIG
OG HVER Á AÐ LAGA HÚSNÆÐISMARKAÐINN? Á *ÉG* AÐ GERA ÞAÐ?!
Mitt fyrsta verk á þingi væri að breyta andliti bergrisans á skjaldarmerkinu í Indriða. Vona að enginn sé á móti því.
Halldór Logi Sigurðarson skipar 6. sæti á lista Pírata í Norðvesturkjördæmi
Helgi Laxdal er kapteinn Pírata á Norðausturlandi