Birta (skáldskapur)
Vænting
Á vorköldum morgni ruddi vænting þín glufu í malbikið og breiddi krónu mót nýþvegnum hjólkoppi. Halda áfram að lesa →
Vetur
Kannski var sumarið andvaka. Friðsemdin græn bylti sér veturlangt undir kvíðboga mínum og blæfrjóir vorlaukar sáðu væntingum í erfiði mitt.…
Vökuvísa
Þér hef ég sungið atkvæði fremur en ákvæði, margvísur umfram fávísur og niður valkvæðanna lék undir þá sjaldan að háttvísur…
Hlutskipti
Þegar rokkarnir voru þagnaðir spann ég söguþráð á hljóðsnældu og fléttaði þætti í símalínu. Þegar rauðir þræðir röknuðu úr vef…
Hugarró
Ekki sakna ég þagnarinnar sem skriðin úr hugskoti nágrannans hvískraði ógnarþulur við óvarinn glugga bernsku minnar. Næturlangt. En spurði einskis.…
Ljóð handa konum á uppleið
Sjaldan hafa þeir bræður Gáski og Háski vikið frá mér spannarlengd á hlaupum mínum niður stigann. Skottast ýmist á eftir…
Ævintýr hins ósagða
Löngum hafa nöfn mín hrakist fyrir vindum og hvítur stormurinn felur í sér fyrirheit um frekari sviptingar. Án sektar án…
Ástkonan
Er klæðist mánagyðjan möttli skýja og myrkrið drýpur hljótt af birkigreinum og skuggaverur skjótast undan steinum skæruárar óttans dyra knýja.…
Andlit barns
Kannski veistu aldrei hvar þú stendur né hver ég er. Engill er ég ekki af himnum sendur en er þó…
Óður til Samfylkingarinnar
Stóriðjulauslátir, gandreiðarstígvélabrögðóttir fyrirtækisfærissinnar gengu í hring út frá innkomu utan um afkomu. Veraldarauðkífið leit upp og lyfti hægindastólpípuhattinum; „frúin er…