Og þessvegna ætla ég næst að kjósa flokk sem er tilbúinn til að vinna að því að koma á borgaralaunum. Það myndi ekki eyða hlutallslegri fátækt en það myndi draga úr kostnaði við félagslega kerfið því það væri hægt að leggja niður stóran hluta af þjónustumiðstöðvum og reka nokkur hundruð svokallaðra ráðgjafa sem gegna því hlutverki einu að reyna að losna við fólk sem þarfnast fjárhagsaðstoðar. Auk þess gætu þeir fátækustu þá dregið fram lífið án þess að gefa einhverjum félagsráðgjafa aðgang að bankareikningum sínum og sitja undir niðurlægjandi „ráðgjöf“.